Nú eyði ég talsvert miklum tíma hér á Odda þessa dagana enda baneitraður Babbari yfirvofandi. Nú er ég tiltölulega fókusaður á sjálfan mig aðallega, en þó er ekki laust við að mér finnst ég vera að taka eftir allskyns fólki sem að passar ekki hingað inn.
Mig grunar sterklega að hér séu menntaskólanemar að campa á næturnar í einhverri pervers tilraun að lesa fyrir próf.
Grunur minn var fyrst vakinn þegar ég sá fólk, sem ég hefði t.a.m. ekki afgreitt í ríkinu, lesa hérna allt í kring um mig. Hormónabrestur hugsaði ég fyrst, en þá fór ég að taka eftir því að þetta fólk er aldrei með tölvur, sem er grunsamlegt hérna.
Loka vísbendingin var svo áðan þegar tveir barnungir drengir stóðu og reyktu beint fyrir utan hurðina, og höfðu skellt gúmmímottu milli stafs og hurðar til að hún lokaðist ekki. Þetta fékk mig til að afleiða eftirfarandi:
Nú hef ég svosem ekkert á móti því að deila þessu húsnæði hér, og þigg félagsskapinn á nóttunni þegar minna er um fólk. En verra er ef menntaskólanemar eru farnir að ganga á það litla pláss sem fyrir er í húsinu almennt. Að ekki sé minnst á ákveðna þætti í umgengni.
Ætli það sé ekki annars lendingin. Að Oddi verði endastöð fyrir andvana umrenningaflóð frá N1.
Þú getur alltaf hrakið þetta menntaskólalið í burtu með því að láta þér vaxa yfirvaraskegg á Nietzschískum skala, og hlaupið um bygginguna öskrandi yfirlýsingar um dauða Guðs.
The password to post a comment is:
(Steinn)