Færslan hér að neðan er ef til vill eilítið óljós... og taugaveikluð.
Henni til útskýringar er það að ég fékk símhringingu frá HÍ kl. 11.15 í morgun þar sem mér var tjáð að ég gæti ekki útskrifast sökum einingaskorts og ókláruðum skyldukúrsum.
Við nánari eftirgrennslan og tilrauna til sáttaumleitana kom í ljós að um skrifræðisvillu var að ræða og engu var ábótavant á námsferli mínum.
Enn á ný stefnir allt hraðbyri í útskrift...
Fjúff...
Er samt ekki frekar rich að segja að engu sé ábótavant á námsferli þínu? Getur nokkuð maður haldið slíku fram?
Hmm....ég myndi segja það um sjálfan mig, án þess að hika. Mér tókst að útskrifast með góða fyrstu einkunn með minimum effort -- og þá meina ég *absolutely minimum* effort. Ég get mér til um að Arnaldur sé í sama pakka. Er hægt að biðja um meira?
The password to post a comment is:
(Einar Örn)