Results for 2007-06

19.6.2007 | Total Eclipse II

Einstotaleclipse

Skífan strikes again. Fór í dag í Skífuna að sækja miða á Air-tónleikana í kvöld.

Fyrst að ég var þar browsaði ég aðeins verslunina og fann mér PJ Harvey disk á góðu verði sem ég keypti mér. Svo rakst ég á gamlan kunningja, í Indie-rekkanum (sem mér finnst admittedly dáldið undarleg flokkun). Það var Total Eclipse of the Sun smáskífan með Einstürzende Neubauten.

Smáskífan var ennþá á ISK 2.490,- jafnvel þrátt fyrir VSK-lækkunina. Ég tók málið á ný upp við afgreiðslustúlku sem var nærstödd. Hún tjáði mér að vissulega væri þetta vitlaust verð og að platan kostaði í raun ISK 2.200,-

Ég sagði að þetta væri ennþá alveg jafn fáránlegt verð og þá dró hún í efa að þetta væri smáskífa og leit á mig eins og ég væri lygari. "Þetta er þá ábyggilega ekki smáskífa!"

Skífan er ekki kúl.


5 comments
(Arnaldur)



19.6.2007 | Pappírs-pésa partý

utskriftmatur

Á laugardaginn fór fram glæsileg veisla hér í garðinum mínum í tilefni þess að Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur rétti mér pappír og Kristín Ingólfsdóttir rektor tók í hendina á mér... heilsaði mér.

Með öðrum orðum var verið að leysa mig út úr Háskóla Íslands, þeim verndaða vinnustað (í bili). Athöfnin sjálf var svakalega löng bið eftir því að nafnið mitt væri kallað upp og síðan var brunað heim í veislu.

Veislan var ótrúlega vel heppnuð, vil ég meina, og töluvert vel sótt. Í raun var hún svo vel heppnuð að ég vil meina að Mezzoforte hafi séð sér ástæðu til að troða upp daginn eftir og spila homage til veislunnar á miðri Lækjargötu. Ég vil endilega þakka öllum sem sáu sér fært að mæta og fagna með mér og fjölskyldu minni. Veislan stóð lengi fram eftir nóttu og fór vel á með fólki. Þeir sem misstu af henni mega fara að kjökra... NÚNA.

utskriftgaman

Ég vil líka nota tækifærið og þakka fyrir allar þær fallegu gjafir sem fólk var að bera á mig. Aldrei átti ég von á öðru eins. Takk-takk-takk-takk-takk.

Ég hafði hugsað mér að skella upp myndum frá veislunni, en ég ætla að bíða með það þar til fleiri myndir skila sér í hús og hafa þetta dálítið samræmt við endurbætur á síðunni sem ættu að eiga sér stað von bráðar. Good things come to those who wait. (Góðir hlutir gerast hægt.)


6 comments
(Sveinbjörn)



13.6.2007 | Sjálfsskoðun

Er búinn að vera með félaga í heimsókn hérna síðan á laugardag. Mikið búið um að vera og því lítil action hérna á þessari síðu.

Svo reyndar var ég líka eitthvað að fokkast í HTML-inu og síðan mín hvarf og ég gat ekki séð hana. Dúkkaði svo óskiljanlega aftur upp í gær. Skil ekkert í þessu því fólk virðist hafa getað skoðað síðuna síðustu daga.

Að öðru leyti var ég að velta því fyrir mér hvort að sjálfs-googlunar-tíðni (hversu oft maður googlar sjálfan sig) fólks aukist eftir því sem það verður meira áberandi í þjóðfélaginu. Ég fæ upp skemmtilegt mental-image af Davíð Oddssyni og Ólafi Ragnari að googla sjálfa sig á milljón og fárast yfir öllu bullinu sem er á netinu og þeir hafa enga stjórn á.


7 comments
(Þóra)



7.6.2007 | Hell NO!

Þetta er náttúrulega fullkomnlega óásættanlegt. Þá getur maður saltað Amríku í bili.

Merkilegt samt að fréttin er um pirringin við lengri biðraðir en ekki óheilbrigða og ömurlega persónu-upplýsinga gagnasöfnun.


6 comments
(Sveinbjorn)



7.6.2007 | 5-0 - Nýr íslenskur spennuharmleikur

nidurlaeging

Hmmm... 5-0 fyrir Svíum. Þetta er frekar mikið lame. Hann Eyjólfur verður eitthvað að fara að spike-a drykkjarvatnið hjá þessum greyjum. Eða bara að fara að láta þá spila fótbolta.

Merkilega ósmekklegt líka þetta síðasta mark. Ég fór actually að hlæja þegar ég sá þetta.

Lærdómsríkt...

Annars er bara nóg að gera hjá manni. Og ég hef nú einsett mér það að vera búinn að uppfæra útlitið á síðunni minni innan 2 vikna.


2 comments
(Sindri)



6.6.2007 | London 2012

london2012

Gæti lógóið fyrir Ólympíuleikana 2012 í London verið með því ljótasta sem hefur verið hannað síðan Bryggjuhverfið í Grafarvogi á sínum tíma?

Lógóið kostaði Breta £400.000. Ég vildi óska að ég hefði fengið þann kontrakt.

Það sem mér finnst samt best er að Ólympíunefndin þurfti að fjarlægja nýlega auglýsingu vegna þess að hún var svo hyper-intensly overloaded af grafík, að fólk sem sá hana fékk flogaveikiskast.

Hér er linkur á flogaveikis-vidjóið.

(Varúð, ekki horfa á þetta ef þið eruð flogaveik, í alvöru.)


6 comments
(Arnaldur)



5.6.2007 | Spjoidt

Nú er ég sæll og glaður. Peningamálin komin á hreint, vinnumálin að skýrast og heimsókn frá fjarlægum slóðum yfirvofandi. Það er nú varla hægt að biðja um mikið fleira í bili...

Svo er bara veisla í kringum pappírsafhendinguna þann 16da. Meira um það síðar.




4.6.2007 | Opin Ber Stjórn Sýsla

Skráði mig í dag í diplómunám í Opinberri Stjórnsýslu. Svona til að hafa eitthvað að gera næsta árið með vinnu. Vei. Nú fæ ég að ráða...

Annars er ég búinn að vera að vinna að því að uppfæra þennan vef og það hefur gengið mis-vel. Hef haft í ansi mörgu að snúast undanfarið og látið ýmis svoleiðis verkefni sitja á hakanum.

Mikil drama-Tík með hundinn minn í gær. Nenni ekki að segja frá því in detail, en þetta var heilmikið vesen og fól í sér ferð á hundaslysó.

Svo eru allir að flytja þessa dagana og maður fær ekki frið fyrir fólki sem er annaðhvort að bjóða manni í innflutningspartý eða betla hjálp frá manni.

I'm out...


3 comments
(Sveinbjörn)