Hmmm... 5-0 fyrir Svíum. Þetta er frekar mikið lame. Hann Eyjólfur verður eitthvað að fara að spike-a drykkjarvatnið hjá þessum greyjum. Eða bara að fara að láta þá spila fótbolta.
Merkilega ósmekklegt líka þetta síðasta mark. Ég fór actually að hlæja þegar ég sá þetta.
Lærdómsríkt...
Annars er bara nóg að gera hjá manni. Og ég hef nú einsett mér það að vera búinn að uppfæra útlitið á síðunni minni innan 2 vikna.
Íslenska landsliðið í fótbolta er gersamlega margbúið að drulla upp á bak. Það er alveg hræðilegt að horfa á liðið spila nú til dags.
Ég skil ekkert í KSÍ að ráða mann með enga reynslu af þjálfun sem landsliðsþjálfara. Eina reynslan sem hann hafði var að þjálfa U-19 eða U-21. Það hefur aldrei verið samasemmerki á milli þess að vera góður leikmaður og góður þjálfari. Nú hafa þeir brennt sig á þessu tvisvar, mér fannst Ásgeir Sigurvinsson reyndar mun betri.
Afhverju ráða þeir ekki erlendan herforingja með almennilegan aga sem leikmenn taka alvarlega, mann sem getur skipulagt almennilegan varnarleik. Tökum sem dæmi Otto Rehagel sem gerði Grikki að evrópumeisturum. Hann lét þá bara spila alvöru varnarleik og þeir unnu leiki 1-0 og urðu að lokum Evr.meistarar.
The password to post a comment is:
(Sindri)