19.6.2007 | Total Eclipse II

Einstotaleclipse

Skífan strikes again. Fór í dag í Skífuna að sækja miða á Air-tónleikana í kvöld.

Fyrst að ég var þar browsaði ég aðeins verslunina og fann mér PJ Harvey disk á góðu verði sem ég keypti mér. Svo rakst ég á gamlan kunningja, í Indie-rekkanum (sem mér finnst admittedly dáldið undarleg flokkun). Það var Total Eclipse of the Sun smáskífan með Einstürzende Neubauten.

Smáskífan var ennþá á ISK 2.490,- jafnvel þrátt fyrir VSK-lækkunina. Ég tók málið á ný upp við afgreiðslustúlku sem var nærstödd. Hún tjáði mér að vissulega væri þetta vitlaust verð og að platan kostaði í raun ISK 2.200,-

Ég sagði að þetta væri ennþá alveg jafn fáránlegt verð og þá dró hún í efa að þetta væri smáskífa og leit á mig eins og ég væri lygari. "Þetta er þá ábyggilega ekki smáskífa!"

Skífan er ekki kúl.


5 comments
(Arnaldur)




5 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Doddi at 20.6.2007

Doddi

Þetta smáskífuævintýri hefur greinilega fengið töluvert á þig.

[ Reply ]

Arnaldur at 21.6.2007

Arnaldur

Mér finnst þetta bara vera brot á grundvallar-réttindum neytenda. Ég er farinn að missa svefn yfir þessu.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 25.6.2007

Sveinbjörn

Er ekki málið að taka bara smá Loop Troop á þetta?

"So I just stopped in army-gear
I put on shades and I dyed my hair
I got my razor-blade teeth
and strangling shoe-laces,
Gas-mask and explosive suitcases
Ready to go to war on the record-store
Sellin overpriced cd's; I’m gonna smash the door,
Light up the Molotov-cocktail - boom!"

[ Reply ]

Sveinbjörn at 16.7.2007

Sveinbjörn

Jæja, er þessi síða bara dauð hjá þér, dawg?

[ Reply ]

Arnaldur at 17.7.2007

Arnaldur

Nei, nei. Ég er bara bissí maður.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment