Results for 2007-08

29.8.2007 | Kínverskt Marathon

Ókei, mér finnst alltaf gaman þegar fólk tekur sig til og gerir eitthvað merkilegt og sniðugt til að vekja athygli á sér og einhverju í kringum sig.

Þetta finnst mér samt frekar yfirdrifið og eiginlega ósiðlega illvirknislegt. Hvaða manneskja lætur barnið sitt hlaupa 1 og hálft marathon á dag í tvo mánuði og eltir á skellinöðru?

Ég sé þetta alveg fyrir mér: -"Elskan mín, pabbi þarf að taka bensín. Hlauptu bara áfram, ég næ þér..."

Svo gat maður verið að fárast yfir þessu Latabæjarhlaupi. Þessi stelpa hefði rústað því...




29.8.2007 | Kaffisorg...

Nú er ég ofstopafullur kaffidrykkjumaður og vinn ötullega að því að drekka í mig magasár.

Ég fór á kaffihús í gær og drakk þar tvo kaffibolla í góðri trú um að sá seinni væri ábót. Svo reyndist ekki vera. Þegar ég stóð upp og borgaði fyrir mig og sessunaut minn sem ég vildi splæsa á, stóð ég frammi fyrir reikning upp á ISK 1.040,-

Verður maður ekki bara heima, á kafi í kaffibruggi héðan í frá?




28.8.2007 | Íslensk tónlist ofl.

islandskjaldamerk1

Nú búum við á Íslandi. Maður skyldi halda að Ísland og jafnvel höfuðstaður landsins Reykjavík væri rétti staðurinn til að nálgast íslenskt menningarefni.

Undanfarið hef ég reynt að verða mér út um ýmsar eldri íslenskar hljómplötur, kvikmyndir og bækur sem ég nenni ekki að telja upp hérna og haft lítið erindi sem erfiði.

Afhverju er ekki haldið betur um þessa hluti hér á landi. Mér leið á tímabili eins og ég væri genginn inn í tvíhöfða-sketsinn um Mega með Megaleuth og Carpet my Apartment með Nancy Hendstidge and the Carpetband. Þó var þetta nú hvorki flókið né erfitt dót sem ég var að falast eftir.


6 comments
(Dún og fiður.)



24.8.2007 | Jói Pikkóló (á la Laxness)

Var að snapa mér djobb á hóteli í morgun. Sem er últra nice og eitthvað sem mig langaði mikið til að gera.

Þó verð ég að segja að það er pínku bömmer að ég verð að setja öll áform um útferðir á pásu á næstunni. Boð mitt um ferðafélag er því hér með dregið til baka, enda svosem frekar dræm viðbrögð við því.

Allt í allt verð ég þó að segja að ég er frekar sáttur við það hvernig málin hafa þróast. Meira svona...


5 comments
(Arnaldur)



23.8.2007 | Freshjive 2007

-Búinn að setja up temporary nýtt look.

-Bráðum koma skemmtilegri breytingar m.a. á innihaldi ofl.

-Btw. Þessi file-manager í mentatnum er fokking snilld Sveinbjörn.

-Vill í alvöru enginn koma með mér til úglanda?




13.8.2007 | Sysífos er enn að rembast við steininn...

helludrasl

Ég var búinn að ákveða að ég myndi ekki fara aftur í hellurnar í sumar. Á þessu stigi málsins er ég hinsvegar búinn að gera lítið annað en að bera grjót. Mig langar alveg svakalega mikið til að fara að gera eitthvað annað, og eignast líf á ný...

Í því skyni að flýja raunveruleikann short-term, er ég semi-búinn að ákveða að fara eitthvað til útlanda í lok ágúst/byrjun sept.

Er einhver til í að fara með mér til reasonably raunhæfra útlanda á þeim tíma? (Reasonably raunhæft útilokar sjálfkrafa lönd á borð við Egyptaland, Mali, Khirgizstan, Mongólíu, Japan og Páskaeyju)

Annars er ég bara búinn að ákveða það að mig langar til að vera í kringum fólk um næstu helgi og fá mér bjór og sígó og jafnvel vindil eða tvo. Er þetta ekki að detta í menningarnótt um það leyti? Meldið ykkur, þarna felupúkarnir ykkar...

Talandi um næturlíf Reykjavíkur, ég heyrði ágætis rök í útvarpinu í dag fyrir því að þáttur í auknu ofbeldi og sóðagangi í miðbænum væri reykingabannið. Meikar að vissu leyti sense. Hafði ekki pælt í þessu sjálfur.


8 comments
(Doddi)



6.8.2007 | ALIVE

Ég er á lífi...

1 comments
(Sveinbjörn)