Ég var búinn að ákveða að ég myndi ekki fara aftur í hellurnar í sumar. Á þessu stigi málsins er ég hinsvegar búinn að gera lítið annað en að bera grjót. Mig langar alveg svakalega mikið til að fara að gera eitthvað annað, og eignast líf á ný...
Í því skyni að flýja raunveruleikann short-term, er ég semi-búinn að ákveða að fara eitthvað til útlanda í lok ágúst/byrjun sept.
Er einhver til í að fara með mér til reasonably raunhæfra útlanda á þeim tíma? (Reasonably raunhæft útilokar sjálfkrafa lönd á borð við Egyptaland, Mali, Khirgizstan, Mongólíu, Japan og Páskaeyju)
Annars er ég bara búinn að ákveða það að mig langar til að vera í kringum fólk um næstu helgi og fá mér bjór og sígó og jafnvel vindil eða tvo. Er þetta ekki að detta í menningarnótt um það leyti? Meldið ykkur, þarna felupúkarnir ykkar...
Talandi um næturlíf Reykjavíkur, ég heyrði ágætis rök í útvarpinu í dag fyrir því að þáttur í auknu ofbeldi og sóðagangi í miðbænum væri reykingabannið. Meikar að vissu leyti sense. Hafði ekki pælt í þessu sjálfur.
Þetta reykingabann er allavega að gera mig fokillan og ofbeldisfullan.
Mér skilst að skv. sænsku lögreglunni hafi lyfjanauðgunum fjölgað talsvert eftir að reykingabann á skemmtistöðum tók gildi þar í landi. Fólk fer þá út að reykja, skilur drykkina sína eftir á meðan og illa innrætt fólk laumar ólyfjan í þá.
Róhipnol-nauðgun og obfeldi. Ég vissi að ekkert gott myndi koma af þessu reykingabanni ;)
The password to post a comment is:
(Doddi)