18.9.2007 | Opinberun um Stjórnsýslu

Ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um þennan kúrs í Opinberri Stjórnsýslu. Námsefnið er temmilega interessant, en öll umgjörðin virðist vera frekar banal, uptight og ströng.

Ég allavega hafna því að fara að vinna hópverkefni í næsta mánuði, sem mér finnst vera fullkomlega fáránleg krafa, sökum þess að hópverkefni eru hvorki sniðug né skemmtileg, né heldur hafa þau þessi jákvæðu félagslegu áhrif á einstaklinga sem þeim er ætlað (og ég vil meina að sé eina ástæðan fyrir því að stungið sé upp á þessari vitleysu). In any case þá get ég ekki tekið þátt í þessu bulli sökum vinnu.

Af hverju má maður ekki bara lesa theoríuna sína í friði?

Manneskja sem stingur upp á The Protestant Ethic and the Spirit of Capitalism eftir Weber sem hliðsjónarefni í kúrs, hefur:

  • a) ekki lesið hana...
  • b) ekki áttað sig á því ennþá hvað Weber er leiðinlegur penni...
  • c) ekki áttað sig á því að PSEC eftir Weber er stúdía í sjálfri sér en ekki hliðsjónarefni...

---

Síðast en ekki síst, en þó ótengt þessu öllu. Hvað eru þessir geðsjúklingar að spá? Er fólk endanlega búið að missa allt vit? Ég man alveg eftir Lækjartorgi 1995-96.

Takið eftir stormsveitarbragnum á þessari mynd líka.


1 comments
(Steinn)




1 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Steinn at 18.9.2007

Steinn

Þetta er sú alversta og heimskasta hugmynd sem ég hef heyrt í svo ótrúlega langan tíma. Vei, opnun fullt af skemmtistöðum í Hlíðunum og Vesturbænum. Þetta er ekki hægt, þessi Stefán Whatshisface er bara eitthvað veikur á geði og authoritarian lögreglustjóri. Fuss og svei!


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment