19.9.2007 | Vertu ríkur... alltaf!

verturikuralltafjoi1

Var að komast að því að þetta var að detta inn núna rétt áðan. Hérna eru fleiri sketsar sem gerast á fjármálanámskeiði Jóhanns: "Vertu ríkur alltaf".

Ég leik hér gimpalegan félaga hans sem hefur verið plataður út í að vera aðstoðarmaður hans í þessu vafasama verkefni.

Persónulegt uppáhald mitt er nú "Eilífðarvélin" (það var líka gaman að taka hana upp). Annars eru þarna nokkrir helvíti góðir þótt ég segi sjálfur frá.

verturikureghambo1

Það er kannski dálítill hængur á þessu öllu saman að mér finnst of erfitt að finna þessa síðu, m.a. út af því að url-ið sem er skrifað í auglýsingunni er með séríslenskum stöfum, á meðan að í raunveruleikanum er svo ekki. Ennfremur eru vídjóin alltof þung. Allavega fyrir mína low-end vél. Það þyrfti að vera hægt að velja um resolution eða e-ð. Á minni vél er allt þetta flash algerlega að choke-a processorinn.

Maður ætti kannski að reyna að verða sér úti um vinnu á auglýsingastofu, þar sem eru vélar með nýjum intel-örgjöfum á hverju strái.


1 comments
(Hildur)




1 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Hildur at 19.9.2007

Hildur

Þetta eru frábærar auglýsingar þú og Jói eru æðislegir karakterar:) Hlakka til að sjá meira af þér Arnaldur í auglýsingarbransanum og hver veit.. kannski seinna í kvikmyndabransanum:)


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment