Ég er mikið búinn að vera að velta fyrir mér hver er mesti badass dude kvikmyndanna en get reyndar ekki alveg ákveðið mig. Annað vefst líka fyrir mér, en það er hvort ég er að einskorða mig við myndir, karaktera, leikara osfr.
Hér fyrir neðan er shortlistinn eins og hann er í dag. Klárlega: Al Pacino (Scarface, Carlito's Way); Bruce Lee (Fists of Fury, Enter the Dragon); Richard Roundtree (Shaft); Robert De Niro (Raging Bull, Heat); Toshiro Mifune (Sanjurno, Yojimbo); Steve MacQueen (Bullit, Papillon).

Tillögur eru velkomnar....
Hey þú gleymir Dirty Harry, maður. Hann er alvöru harðjaxl og gerir hlutina á sinn hátt.
Toshiro Mifune var sérlega flottur í Shichinin no samurai (e. Seven Samurai) en mér fannst hann samt bestur í Mifunes sidste sang.
ég veit að það er kannski soldið tæpt að flokka hann sem badass af því hann er í raun svo mikill lúði...en mig langar samt að tilnefna persónu judd nelson í breakfast club, allavega svona innan unglingamyndaflokksins!
p.s. systir mín er líka í opinberri stjórnsýslu..."áhugavert" ég veit!... en bara svona ef þú spottar eina sem er mjög mjög lík mér...
bridget fonda var nú mjög góð í the assassin var það ekki? elska amrískar endurgerðir af frönskum gæða myndum....
The password to post a comment is:
(Sveinbjörn)