Results for 2007-10

31.10.2007 | Bjórpulsa

salamismall1

Ég vil taka það fram að ég á sennilega um 250-300g í þessum 1,7 tonnum sem að tollararnir hafa rænt af kjötelskandi Íslendingum.


1 comments
(Steinn)



31.10.2007 | Diego

Í dag keypti ég litla gúmmíplöntu, sem ég hef nefnt Diego. Diego kemur til með að verða framlag mitt til framtíðar kolefnisjöfnunar fyrir hönd íbúa San Diego og meira og minna allrar Kaliforníu.

Gúmmíplöntur eru harðgerar skepnur sem að spúa frá sér ósóni og súrefni og allskyns góðgæti. Svo þurfa þeir líka lágmarks athygli.

Seriously fólk, nú þarf aldeilis að fara að kolefnisjafna fyrir öll þessi tré sem brunnu þarna í Cali. Hvað ætlar þú að gera?


1 comments
(Sveinbjörn)



30.10.2007 | Undraheimar Internetsins

Ég ætlaði að skrifa fullt hérna í nótt, en ýmis aðkallandi verkefni og internetið í bland gerðu þessi áform mín að engu.

Fullt af spennandi og athygliverðum greinum í vændum.


1 comments
(Sveinbjörn)



26.10.2007 | Góðkunningi tískulögreglunnar #3

Árni er búinn að leggja inn nýtt rap-sheet.


3 comments
(Sveinbjörn)



24.10.2007 | Reykjavíkurnætur

drunkhug1

Um nokkurt skeið hef ég safnað myndum af ógæfunni í Reykjavík um helgar og á orðið veglegt safn. Það hljóp þó aldeilis á snærið um daginn hjá mér þegar ég náði þessu greyi sem að stóð og svaf utan í staur á Hverfisgötu.

Ég ætlaði reyndar að vera búinn að skella þessari athyglisverðu mynd upp fyrir nokkru.

Það merkilega er að hann stóð þarna dauður í um 45 mínútur, svo ég viti til. Kannski lengur.

Ef grannt er skoðað má sjá að hann skemmti vel vegfarendum Hverfisgötunnar með athæfi sínu sem bentu og híuðu á hann í gríð og erg.

Þetta finnst útlendingunum merkilega skemmtilegt.


5 comments
(Arnaldur)



19.10.2007 | Góðkunningi tískulögreglunnar #2

godvinurag2

2 comments
(Steinn)



18.10.2007 | Byssubankinn

byssubanki

Ég er undanfarið búinn að vera að fara í gegnum þann aragrúa af myndum sem ég hef tekið undanfarin ár. Er búinn að rekast á ýmsar mjög skemmtilegar og athyglisverðar myndir sem ég var annars búinn að gleyma.

chillibeer

Hér er ég til dæmis fyrir utan tékkneskan banka. Þar er greinilega merkt á hurðinni að bannað sé að fara með alvæpni inn í bankann. Það er eins gott að hafa svona hluti á hreinu á framandi menningarslóðum.

Fyrir neðan er svo mynd af einum þeim mesta viðbjóði sem ég hef innbyrt í lífinu. Það myndi vera hinn japanski Chilli Beer. Eins og sjá má e.t.v. er lítill chilli pipar í sjálfri flöskunni þannig að ekki er um nein vörusvik að ræða. Aftur á móti verður maður að spyrja sig, "Hver vill hafa chilli í bjórnum sínum?" Ekki ég, allavega. Ég er þeirrar gamaldags skoðunnar að bjór eigi fyrst og fremst að slökkva þorsta. Ekki kveikja hann.

Annars er rétt að minnast á að þessi nýfundna ljósmyndagrúskhugmynd kemur til með að skila sér í stórum og fallegum myndaalbúmum sem fólk ætti að vilja bítast um að fá að skoða. Ennfremur hefur þetta vonandi þá aukaverkun að maður fari að post-a aftur myndum hérna á síðuna.


3 comments
(Sveinbjörn)



18.10.2007 | Wake up (or the call of the zombie)

Ég hef mikið verið að velta fyrir mér, í þau örfáu skipti sem ég þarf að vekja Íslendinga hér, hvaða sambærilegt orðalag maður gæti notað og fyrir "This is your wake up call". Mér dettur bara ekkert í hug nema ef vera skyldi: "Þetta er uppvaknings hringingin þín"...

...sem er ekki nógu gott.

Einhverjar tillögur?


1 comments
(Sveinbjörn)



16.10.2007 | Æ, æ, æ, æiii.

Er þetta mögulega mest aulahrolls-inducing sjitt sem maður hefur séð?


2 comments
(Stígur)



16.10.2007 | Kaffi Kósý og Keltik

Nýlega fékk ég óskiljanlega synjun á kortið mitt sem mér fannst furðulegt. Ég ákvað því að athuga málið nánar í heimabankanum með tilheyrandi 6 kr. aulaskatti fyrir auðkennislyklavanþóknun.

Þar komst ég að því að vissulega átti ég þannig séð nóg af peningum og að synjunin væri úr lausu lofti gripin en það sem mér þótti öllu merkilegra var að renna yfir færslurnar á kortinu mínu. Þar eru þau ljúgvitni á mig borin að ég hafi stundað viðskipti á Celtic Cross annars vegar og Kaffi Cosý hinsvegar.

Ég minnist þess ekki að hafa verslað við Celtic Cross í á að verða hálft ár. Aukinheldur tel ég mig geta fullyrt að ég hafi aldrei nokkurn tíman stigið fæti inn fyrir dyrnar á Kaffi Cosý.

kafficosy

Þetta ásamt nokkrum tvöföldum færslum veldur mér þó nokkru hugarangri. Bankarnir skyldu þó ekki vera að reyna að véla mann?

Annars hefur þetta áður gerst með tvöfaldar færslur en alltaf leiðrétt sig. Þetta með draugafærslurnar er annað og verra mál.


3 comments
(Sveinbjörn)



15.10.2007 | Skýr skyrréttindi

skyrrettindi

Já, ég er mjög sammála því að það ættu að vera skýrari reglur um að skyr séu réttindi ófæddra barna.

Það eina sem ég er ekki alveg með á hreinu er hvernig er best að standa vörð um þessi skyrréttindi. Eigum við að neyða barnshafandi konur til að borða svakalega mikið skyr, eða leyfa börnunum að taka skyrið út í óhóflegri neyslu þess eftir fæðingu?


1 comments
(Sveinbjörn)



11.10.2007 | Japanorama I

Ég er búinn að vera að renna í gegnum Special Reports section-in á Guardian og datt inn á Japan. Þar kennir ýmissa grasa og ég verð að komast að þeirri niðurstöðu að Japan hljóti að vera í annarri vídd eða eitthvað.

Athyglisverðasta fréttin þótti mér samt sú sem ég kýs að kalla "MySpace or your's?


1 comments
(Sindri)



10.10.2007 | Animalia

Djövulli er ég ánægður með þennan gaur...

FraserLewry's animal alphabet.


1 comments
(Steinn)



8.10.2007 | Hlutlægni

Úr grein um Lollywood á Wikipediu:

"Copying things is easy but the person(s) indulging in copying stop using their own brains and the net result is a downfall in quality."

Frekar vafasamur málflutningur finnst manni...

P.S. Getur einhver endanlega skorið úr því hvorum megin gæsalappirnar lenda við punktinn? Mér finnst ég alltaf vera að sjá þær bæði fyrir framan og aftan punkt.

P.P.S. Það er frekar fyndið og ruglandi að innlyksa bókstafinn -u í underline tögg í html-i.


6 comments
(Þórdís)



7.10.2007 | Blackwater-gate

Mér finnst þetta alveg hreint með ólíkindum. Hér er úttekt á Blackwater-affair-inu á Guardian. Setningin sem mér finnst mögnuðust er:"The official suggested $250,000, but the department's diplomatic security service said this was too much and could cause Iraqis to "try to get killed".


3 comments
(Arnaldur)



5.10.2007 | Góðkunningi tískulögreglunnar #1

godvinurag1

Góðkunninginn er nýr sameiginlegur vikulegur viðburður á síðunum okkar Árna. Fylgist spennt með nýrri íslenskri dagskrárgerð á hverjum föstudegi.




5.10.2007 | Ran Fiennes Lost in Showbiz

Það er eitthvað við svona sögur sem mér finnst ótrúlega heillandi. Sömuleiðis er það eitthvað svo ótrúlega magnað að heyra af fólki sem að limlestir sjálft sig viljandi (að ég tali nú ekki um svona grafískar lýsingar eins og eru í þessari grein).

Svo verð ég að segja að þessi grein um skoðanir Rambós á ástandinu í Myanmar/Burma er líka alveg heillandi.


3 comments
(Arnaldur)



4.10.2007 | Somegreybloke

somegreybloke1

Nú er það almennt svo að ég er sjaldnast sá fyrsti með skemmtilegt internet fyndið. Aftur á móti rakst ég á þessa síðu hjá manni sem kallar sig somegreybloke. Þessi maður gerir merkilega skemmtilegar flash-myndir um internetfíkil sem er að velta ýmsu fyrir sér. Hér má t.d. sjá eina slíka sem fékk mig til að hlæja þó nokkuð.

Flest eru þessi vídjó frekar fyndin. Mæli með þessu.


1 comments
(Steinn)



4.10.2007 | Tågemund feat. Papa Pughæg

Almennt er ég mjög mótfallinn því að fólk sé að embedda flash-vídjó í síðurnar sína en í þetta eina sinn vil ég meina að þetta sé ein mesta snilld sem ég hef setið í gegnum.


1 comments
(Árni Bragi)



3.10.2007 | Guitarman

guitarman3

Ég er búinn að vera þó nokkuð duglegur að skoða gítara undanfarið á vefnum.

Það verður að segjast að Gibson búa til nokkuð flotta gítara. Hér til hliðar hef ég útbúið smá collage með nokkrum sem mér finnast frekar skemmtilegir úr signature artist seríunni þeirra.

Frá vinstri til hægri: Robert Johnson L-1, Woody Guthrie Southern Jumbo, Elvis Presley Dove (sem mér finnst flottastur).

Röffaðast af þessu öllu saman er þó án efa áletrunin á Woody Guthrie gítarnum: "This Machine Kills Fascists."




3.10.2007 | Þriðjudags-partíbær

Mér er nú ekki tamt að minnast sérstaklega á vinnuna mína hérna, en ég get varla orða bundist um það sem gerðist hér rétt áðan.

Um 2 leytið ljóðaði hér á dyrnar maður sem var greinilega mjög drukkinn. Ég opnaði dyrnar til að spyrja hann hvert erindið væri, en þó meira til að fá hann til að hætta að berja að dyrum. Maðurinn vildi þá ryðjast inn og sveiflaði lúnu debet-korti, eins og til að sýna mér að hér ætti hann loksins heima. Ég stöðvaði framgang mannsins og bægði honum frá með nokkrum styrk, horfði hvössum augum á hann og spurði hvort ég gæti aðstoðað hann eitthvað. Maðurinn horfði á mig með fyrirlitningarsvip, eins og hann væri að velta fyrir sér hvort hann ætti að rjúka í mig. Eftir nokkra mæðu hætti hann að streitast á móti mér og sagði: "Nei. Nei, ekki. Ég. Nei, ekki í kvöld."

Já, það eru aldeilis skemmtileg þriðjudagskvöldin hjá sumum.

foslidur1promo

Annars er það að frétta að nýr, skemmtilegur, ferskur og jafnframt fastur liður er væntanlegur hjá okkur Árna. Þetta verður skemmtiefni til að létta fólki lund fyrir helgarnar, og mun framvegis vera hér fastur liður á föstudögum.

Já núna getur fólk virkilega farið að hlakka til að taka þátt í smekkvísri gleði þeirri sem skín af okkur Árna.

Mun þetta framtak jafnframt vonandi líka ýta við manni í að uppfæra síðuna betur. Ég hef miklar og nokkuð fullmótaðar hugmyndir um hvað mig langar til að gera með þetta pleis. Í gær parkaði ég domain-inu mínu næstu tvö árin. Núna eru Sveinbjörn's awesome css-powers, það eina sem manni vantar.