3.10.2007 | Þriðjudags-partíbær

Mér er nú ekki tamt að minnast sérstaklega á vinnuna mína hérna, en ég get varla orða bundist um það sem gerðist hér rétt áðan.

Um 2 leytið ljóðaði hér á dyrnar maður sem var greinilega mjög drukkinn. Ég opnaði dyrnar til að spyrja hann hvert erindið væri, en þó meira til að fá hann til að hætta að berja að dyrum. Maðurinn vildi þá ryðjast inn og sveiflaði lúnu debet-korti, eins og til að sýna mér að hér ætti hann loksins heima. Ég stöðvaði framgang mannsins og bægði honum frá með nokkrum styrk, horfði hvössum augum á hann og spurði hvort ég gæti aðstoðað hann eitthvað. Maðurinn horfði á mig með fyrirlitningarsvip, eins og hann væri að velta fyrir sér hvort hann ætti að rjúka í mig. Eftir nokkra mæðu hætti hann að streitast á móti mér og sagði: "Nei. Nei, ekki. Ég. Nei, ekki í kvöld."

Já, það eru aldeilis skemmtileg þriðjudagskvöldin hjá sumum.

foslidur1promo

Annars er það að frétta að nýr, skemmtilegur, ferskur og jafnframt fastur liður er væntanlegur hjá okkur Árna. Þetta verður skemmtiefni til að létta fólki lund fyrir helgarnar, og mun framvegis vera hér fastur liður á föstudögum.

Já núna getur fólk virkilega farið að hlakka til að taka þátt í smekkvísri gleði þeirri sem skín af okkur Árna.

Mun þetta framtak jafnframt vonandi líka ýta við manni í að uppfæra síðuna betur. Ég hef miklar og nokkuð fullmótaðar hugmyndir um hvað mig langar til að gera með þetta pleis. Í gær parkaði ég domain-inu mínu næstu tvö árin. Núna eru Sveinbjörn's awesome css-powers, það eina sem manni vantar.




0 comments


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment