8.10.2007 | Hlutlægni

Úr grein um Lollywood á Wikipediu:

"Copying things is easy but the person(s) indulging in copying stop using their own brains and the net result is a downfall in quality."

Frekar vafasamur málflutningur finnst manni...

P.S. Getur einhver endanlega skorið úr því hvorum megin gæsalappirnar lenda við punktinn? Mér finnst ég alltaf vera að sjá þær bæði fyrir framan og aftan punkt.

P.P.S. Það er frekar fyndið og ruglandi að innlyksa bókstafinn -u í underline tögg í html-i.


6 comments
(Þórdís)




6 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Þórdís at 8.10.2007

Þórdís

Fyrir aftan punktinn.

Og það er ekkert ú í punktur. Og það heitir hvorum megin - með emmi.

[ Reply ]

Arnaldur at 8.10.2007

Arnaldur

Ég skil ekki...
...íslensku. Þetta hvorum megin dót fór alveg með mig. Gagnsæi hvað?

[ Reply ]

Þórdís at 8.10.2007

Þórdís

Þetta er fornafnið HVOR, sem sett er í þágufall, eins og í 'þeim megin´.

Reyndar er það yfirleitt notað með eignarfalli: 'mín megin'. Ég kann ekki skil á reglunni.

Og þetta með punktinn var rangt hjá mér. Rétta reglan er þessi:

Punktar, kommur, spurningarmerki og upphrópunarmerki eru sett á undan seinni
gæsalöppum ef gæsalappirnar auðkenna heila málsgrein eða tilsvarandi.

Þetta svarar annars flestum spurningum:
http://ismal.hi.is/Ritreglur-070306.pdf">http://ismal.hi.is/Ritreglur-070306.pdf

[ Reply ]

Arnaldur at 8.10.2007

Arnaldur

Ég reyndar vissi af þessu með ú-ið í púnktinum. Mér hefur bara alltaf fundist þessi komma eiga að vera þarna. Að öðru leyti er ég nokkuð sáttur við -ng, -nk regluna. Púnkturinn hefði samt átt að fylgja með kóngnum.

[ Reply ]

Steinn at 8.10.2007

Steinn

Ég held að hin almenna regla sé sú að setja . fyrir aftan ". Annars má líka setja . fyrir framan " eins og ." . Mig minnir að reglan sé helst sú að vera samkvæmur sjálfum sér í notkun.

[ Reply ]

Steinn at 8.10.2007

Steinn

Ég skil hvað greinarhöfundur á Wiki er að reyna að segja, en hann kemur því svo illa frá. Annars er ég ekki sammála því sem hann er að segja, nema upp að vissu leiti.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment