16.10.2007 | Kaffi Kósý og Keltik

Nýlega fékk ég óskiljanlega synjun á kortið mitt sem mér fannst furðulegt. Ég ákvað því að athuga málið nánar í heimabankanum með tilheyrandi 6 kr. aulaskatti fyrir auðkennislyklavanþóknun.

Þar komst ég að því að vissulega átti ég þannig séð nóg af peningum og að synjunin væri úr lausu lofti gripin en það sem mér þótti öllu merkilegra var að renna yfir færslurnar á kortinu mínu. Þar eru þau ljúgvitni á mig borin að ég hafi stundað viðskipti á Celtic Cross annars vegar og Kaffi Cosý hinsvegar.

Ég minnist þess ekki að hafa verslað við Celtic Cross í á að verða hálft ár. Aukinheldur tel ég mig geta fullyrt að ég hafi aldrei nokkurn tíman stigið fæti inn fyrir dyrnar á Kaffi Cosý.

kafficosy

Þetta ásamt nokkrum tvöföldum færslum veldur mér þó nokkru hugarangri. Bankarnir skyldu þó ekki vera að reyna að véla mann?

Annars hefur þetta áður gerst með tvöfaldar færslur en alltaf leiðrétt sig. Þetta með draugafærslurnar er annað og verra mál.


3 comments
(Sveinbjörn)




3 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Steinn at 16.10.2007

Steinn

"Mr. Blackout, bring me a dream, dam, dam de, dam"

[ Reply ]

Árni at 16.10.2007

Árni

LOL@Steinn!

[ Reply ]

Sveinbjörn at 16.10.2007

Sveinbjörn

Já, það fyrsta sem ég hugsaði með mér var: hvaða bráðáfenga sull var hann Naldó að láta ofan í sig?


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment