18.10.2007 | Byssubankinn

byssubanki

Ég er undanfarið búinn að vera að fara í gegnum þann aragrúa af myndum sem ég hef tekið undanfarin ár. Er búinn að rekast á ýmsar mjög skemmtilegar og athyglisverðar myndir sem ég var annars búinn að gleyma.

chillibeer

Hér er ég til dæmis fyrir utan tékkneskan banka. Þar er greinilega merkt á hurðinni að bannað sé að fara með alvæpni inn í bankann. Það er eins gott að hafa svona hluti á hreinu á framandi menningarslóðum.

Fyrir neðan er svo mynd af einum þeim mesta viðbjóði sem ég hef innbyrt í lífinu. Það myndi vera hinn japanski Chilli Beer. Eins og sjá má e.t.v. er lítill chilli pipar í sjálfri flöskunni þannig að ekki er um nein vörusvik að ræða. Aftur á móti verður maður að spyrja sig, "Hver vill hafa chilli í bjórnum sínum?" Ekki ég, allavega. Ég er þeirrar gamaldags skoðunnar að bjór eigi fyrst og fremst að slökkva þorsta. Ekki kveikja hann.

Annars er rétt að minnast á að þessi nýfundna ljósmyndagrúskhugmynd kemur til með að skila sér í stórum og fallegum myndaalbúmum sem fólk ætti að vilja bítast um að fá að skoða. Ennfremur hefur þetta vonandi þá aukaverkun að maður fari að post-a aftur myndum hérna á síðuna.


3 comments
(Sveinbjörn)




3 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Steinn at 18.10.2007

Steinn

Vá. banki sem hefur bannað vopnaburð í sínu lokali er frábær banki.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 18.10.2007

Sveinbjörn

Ah, bella Praha!

[ Reply ]

Sveinbjörn at 19.10.2007

Sveinbjörn

OK, byssur eru bannaðar. En hvað með rifla? Hvað með AK-47 hríðskotavopn? Hvað með "two handed mace"?


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment