Um nokkurt skeið hef ég safnað myndum af ógæfunni í Reykjavík um helgar og á orðið veglegt safn. Það hljóp þó aldeilis á snærið um daginn hjá mér þegar ég náði þessu greyi sem að stóð og svaf utan í staur á Hverfisgötu.
Ég ætlaði reyndar að vera búinn að skella þessari athyglisverðu mynd upp fyrir nokkru.
Það merkilega er að hann stóð þarna dauður í um 45 mínútur, svo ég viti til. Kannski lengur.
Ef grannt er skoðað má sjá að hann skemmti vel vegfarendum Hverfisgötunnar með athæfi sínu sem bentu og híuðu á hann í gríð og erg.
Þetta finnst útlendingunum merkilega skemmtilegt.
Hahaha! Þér ættuð að gefa út ljósmyndabók með myndum sem þessum.
Hvað myndi hún heita?
The Unfortunate Ones: A Dark Journey Through the Night Life of the City that Never Sleeps ...?
Eða kannski:
Naldo: A Vomit-Voyeur's Tale
?
The password to post a comment is:
(Arnaldur)