Apocalypse Now, verður framlag kvikmyndasögunnar til bókstafsins A. Myndin kom fyrst út árið 1979 og var hvort tveggja í senn draumsýn og martröð kvikmyndagerðarmannsins Francis Ford Coppola. Enda er útkomunni sennilega ágætlega lýst þannig - sem martraðakenndri draumsýn á Víetnamstríðið.
Myndin er unnin eftir skáldsögu Joseph Conrad, Heart of Darkness en er þó einungis lauslega byggð á henni. John Milius vinnur handritið á snilldarlegan hátt og fléttar inn í það áhrif frá ýmsum verkum s.s. The Golden Bough eftir James Frazer (sem má sjá glitta í hjá Col. Kurtz). Einnig hafa einhverjir viljað draga línu milli Ódysseifskviðu og Apocalypse Now. Ef til vill er það ekki vitlaus samlíking, enda er það í grófum dráttum umfjöllunarefni myndarinnar; langferð um hrylling stríðs með öllum þeim siðferðilegu og heimspekilegu ranghölum sem slík ferð kann að leiða menn niður eftir.
Rétt er að taka fram að á vissan hátt er hér verið að fjalla um tvær kvikmyndir. Árið 2001 endurútgaf Coppola verkið í nýrri mynd sem hann kallaði Apocalypse Now: Redux. Nú er það svo að í flestum tilfellum er greinarhöfundi afar illa við það þegar menn taka sig til á gamals aldri og fara að fikta í gömlum verkum sínum (sbr. náinn starfsbróðir Coppola, George Lucas). Aftur á móti er útkoman hér aðdáunarverð. Persónulega get ég ekki gert upp á milli myndanna tveggja. Þær standa tvær uppi, skýrt aðgreindar sem sjálfstæð verk í mínum huga eins og tvær leiðir að sama endapunkti. Því hvet ég alla til að skoða bæði verkin.
Fyrir áhugasama eru það næstum skylduáhorf að vinna sig í gegnum heimildamyndina Hearts of Darkness (1991), sem er m.a. unnin af konu Coppola, Eleanor, um tilurð kvikmyndarinnar, sem var vægast sagt erfið fæðing.
The Horror.....the Horror.... Ein besta mynd sem gerð hefur verið -- elska Apocalypse Now.
The password to post a comment is:
(Arnaldur)