Mér finnst það mjög áhugavert að sjá hversu mörgum ungum íslenskum stúlkum finnst það fullkomnlega eðlilegt að ganga um í smápilsi í miðbæ Reykjavíkur í -3 stiga gaddi og norðanátt.
Ég hélt að fólk hlyti allskyns meinsemd af þessu. Eða er íslenskt kvenfólk bara svona svakalega harðgert? Mér verður allvega kalt af því að horfa upp á þetta.
Btw. Það má smella á myndina af "djammpíunni" hérna að ofan til að sjá hræðilega hallærislegt og luralegt gráfiðringsvídjó.
Annars langaði mig að linka á þessi tvo frábæru vídjó sem ég var búinn að gleyma að væru til þangað til að óminnisþræðir internetsins leiddu mig til þeirra frá honum Sveinbirni
Hér er Hugh Laurie að flytja magnað lag sem ég vil meina að hann hljóti að hafa samið sjálfur og heitir "America". Það minnir mig á svo mörg svipuð lög...
...og hér eru þeir félagar Hugh Laurie og Stephen Fry að rappa á afskaplega elskulegan hátt early nineties white-boy style.
Takið eftir því hvað Stephen Fry líkist góðlátlegum og meinlausum V í þessu myndbandi.
Já. Þau eru mörg, fíflin sem ganga laus um helgar...
Það er ekki gaman að klessa bíla...
Vill einhver gefa mér frambretti og grill á Jeep Cherokee Laredo '89/'90?
Það er reyndar nokkuð gaman að klessa svona bíla...
Einhverra hluta vegna minntist ég allt í einu þess að ég átti sem barn gjallarhorn sem var merkt "The A-Team" (og reyndar líka risastórt "The A-Team" AM-útvarp fyrir BMX-hjólið mitt sem virkaði aldrei ).
Hornið var samskonar því sem sjá má á myndinni að neðan og í kom í samskonar pakningu og sjá má hér til hliðar. Samhliða þessari minningu kom upp viss fortíðarljómi í mér og mig langaði til að nálgast hornið, en man svosem ekkert hvað um það hefur orðið.
"The A-Team" þættirnir voru aldrei sýndir hér á landi svo ég muni. Því gat ég aldrei gert mér fyllilega grein fyrir því hvaða merkingu þessi gripur átti að hafa, fyrir utan það að ég kannaðist óljóst við Herra T. sem var sýndur á áberandi hátt á hliðinni. Þó man ég reyndar glögglega að ég var fullviss um að Herra T. væri einhverskonar indíáni, frekar en hvað annað.
Nú spyr ég: Hefur einhver, einhverntíman séð "The A-Team" þátt, og er eitthvað varið í þá?
Hér er linkur á geðveikt fólk sem safnar Mr. T dóti og tattóverar ímynd hans á líkama sína.
Ég ætlaði að skrifa langa og insightful grein um nýja arfgreiningarþjónustu DEcode.
Ég byrjaði meir að segja að skrifa hana en ég nenni þessu ekki. Mig langar heim að sofa.
Í staðinn datt mér í hug að tengja yfir á þessa athyglisverðu frétt um erfðabreytingar og kínverskan mat.
Guð blessi íslenska tungu og tvíræðni...
(Sveinbjörn)