12.12.2007 | Bull hornið

mrtbullhorn1

Einhverra hluta vegna minntist ég allt í einu þess að ég átti sem barn gjallarhorn sem var merkt "The A-Team" (og reyndar líka risastórt "The A-Team" AM-útvarp fyrir BMX-hjólið mitt sem virkaði aldrei ).

Hornið var samskonar því sem sjá má á myndinni að neðan og í kom í samskonar pakningu og sjá má hér til hliðar. Samhliða þessari minningu kom upp viss fortíðarljómi í mér og mig langaði til að nálgast hornið, en man svosem ekkert hvað um það hefur orðið.

mrtbullhorn2

"The A-Team" þættirnir voru aldrei sýndir hér á landi svo ég muni. Því gat ég aldrei gert mér fyllilega grein fyrir því hvaða merkingu þessi gripur átti að hafa, fyrir utan það að ég kannaðist óljóst við Herra T. sem var sýndur á áberandi hátt á hliðinni. Þó man ég reyndar glögglega að ég var fullviss um að Herra T. væri einhverskonar indíáni, frekar en hvað annað.

Nú spyr ég: Hefur einhver, einhverntíman séð "The A-Team" þátt, og er eitthvað varið í þá?

Hér er linkur á geðveikt fólk sem safnar Mr. T dóti og tattóverar ímynd hans á líkama sína.


16 comments
(Sindri)




16 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 12.12.2007

Sveinbjörn

Ég hef séð A-Team þátt -- það var í Berlín, og hann var döbbaður á þýska. Gaurinn sem döbbaði Mr. T var með ótrúlega asnalega rödd -- á einhverju stigi æpti hann "Im wasser!" og fleygðu e-m gaur út í stöðuvatn. Meira man ég ekki, ég var þunnur...

[ Reply ]

Arnaldur at 13.12.2007

Arnaldur

Þetta er mögulega ein mest feeble lýsing á nokkru sem ég ég hef heyrt. Var fólkið með tennur? augu? hár?

[ Reply ]

Sveinbjörn at 15.12.2007

Sveinbjörn

Dude, ég var skelþunnur eftir "a bender, the likes of which even the GODS have never seen!"

[ Reply ]

María at 12.12.2007

Unknown User

Ég man eftir þáttunum. Þeir voru sýndir á stöð tvö i den. Seinnipart morguns. Þá voru nebblega unglingateiknimyndirnar sýndar. Minnir að þetta hafi verið fimleikakrakkar eða eitthvað svoleiðis og herra T með þeim. Doldið perró kannski.

[ Reply ]

Arnaldur at 13.12.2007

Arnaldur

Þetta er skarplega athugað hjá þér María og sjálfur rámar mig í þessar teiknimyndir frá þeim tíma þegar maður var staddur á heimilum sem höfðu upp á Stöð 2 að bjóða. Þó þetta ekki allskostar rétt. Þættirnir sem þú átt við eru Mr. T þættirnir:

http://en.wikipedia.org/wiki/Mister_T_%28TV_series%29">http://en.wikipedia.org/wiki/Mister_T_%28TV_series%29

Auðvelt samt að rugla þessu þar sem Mr. T er mjög áberandi í báðum þáttum og þar sem að The A-Team voru aldrei sýndir hérna.

[ Reply ]

Steinn at 12.12.2007

Steinn

Ég held að þú hafir verið að horfa á "A-Team: The Gay Version". Ég horfði e-ð á A-Team úti í Danmörku á sínum tíma og minnist ekki að hafa séð það sem þú lýsir. Ég man aðallega eftir Mr.T og gamla kallinum og sendiferðabílnum sem þeir ferðuðust á, sem og geðveikt mikið af hlutum að springa og Mr. T að lemja fólk í spað. Mjög tetesterón hlaðnir þættir sem höfðuðu til mín sem barn, ásamt Mission:Impossible.

[ Reply ]

Arnaldur at 13.12.2007

Arnaldur

Mission: Impossible þættirnir voru óhugnanlega magnaðir þótti mér. Þeir vöktu oft með mér ugg sem barn en samt gat ég ekki slitið mig frá þeim þar sem þeir voru fullir af latex-grímuklæddu fólki og sprengjum... og self-destructing messages.

[ Reply ]

Sigurgeir Þór at 12.12.2007

Unknown User

Mig minnir að ég hafi séð þátt í fríi í USA, en mér fannst Knight rider þættirnir mun svalari.

[ Reply ]

Arnaldur at 13.12.2007

Arnaldur

Ég sá tvo knight rider þætti sem barn. Þeir eru mér greyptir í minni sem mest ultra-sonic sjitt sem ég hef séð. (Útfrá sjónarmiði barns.) Ég meina... talandi bíll!!! Þetta er bara Herbie með badass attitude.

[ Reply ]

anna rut at 13.12.2007

Unknown User

ég sá heila knight rider seríu f. nokkrum árum. þeir þættir eldast bara nokkuð vel, þá sérstaklega the hoff. guðdómlegi leikarinn sem hann er! hann náði sér alltaf í nýja gellu í hverjum þætti... hinsvegar get ég ekki sagt að miami vice hafi elst jafnvel, þeir sökka. held að don johnson hafi bara engan sjarma...

[ Reply ]

Arnaldur at 13.12.2007

Arnaldur

Miami Vice er alger lortur. Ég man að mér fundust þessir þættir alltaf mjög undarlegir sem barn og ekki hafa þeir skánað. Maður á að treysta barnsminninu í sér.

[ Reply ]

Hildur at 13.12.2007

Hildur

ég sá A-Team þættina nokkrum sinnum þegar ég var á Spáni, döbbaða á spænsku. Þetta eru unglingaþættir og mér fannst þeir ekkert spes! en það var þó gaman að sjá Mr. T, þar sem hann lítur alveg fáránlega út:)

[ Reply ]

Arnaldur at 13.12.2007

Arnaldur

Unglingaþættir? Ertu að tala um Mr. T teiknimyndirnar eins og María? En já, Mr. T er ekki bara undarlegur í útliti, hann virðist vera stórkostlega margbrotinn og athyglisverður karakter.

[ Reply ]

Hildur at 13.12.2007

Hildur

nei, ég er að tala um sjónvarpsþættina. Ég er ekki að segja að það séu unglingar í þættinum, en þeir höfða kannski frekar til unglinga... En ég mæli samt með því að þú kíkir á þættina á spænsku, það var mjög fyndið að heyra Mr. T tala spænsku!

[ Reply ]

Sindri at 15.12.2007

Sindri

Ég horfði á þessa A-team þætti í Svíþjóð, þegar ég var krakki. Ömurlegir þættir. Ég þoldi þá ekki því það drapst aldrei neinn í þeim.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment