Header
03.12.2008 | Modern Art's Faithful New Lackey
1930felixthecat

Hmmm...

Er Mark Leckey eitthvað...? Æi. Ég veit ekki.

Krem-kallinn er þó allavega stundum soldið blellaður.




Ég sver það. Nú þarf að fara að ræsa Le Dada Nouveaux.

02.12.2008 | The Ghost of John Maynard Keynes

Ladies and gentlemen...

...Mr. Keynes is in da house!!!

Víðtæk áætlun til að bjarga atvinnulífinu. Stefnt að mannaflsfrekum framkvæmdum.

02.12.2008 | Heimurinn er undir útrás

Ég pikkaði þetta nú upp af síðunni hans Egils Helgasonar, en þar er dælt inn svo miklu efni frá degi til dags að erfitt er að henda reiður á þessa hluti hjá honum. (Er Egill einn af þessum óreiðumönnum sem maður heyrir svo mikið um?)

Þess vegna ákvað ég bara að pósta þessu hérna.

Um er að ræða yndislega glærusýningu eftir Svöfu Grönfeldt frá því fyrir um ári. Þar kemur greinilega fram að "okkar tími er kominn" og að Íslendingar séu svo frábærir af því að þeir séu svo duglegir að vinna. Hún bara gleymir að minnast á hvað við vorum dugleg að taka lán.

Gjörið svo vel: Heimurinn er undir útrás!

Ég elska líka hvað þetta er hip og kúl og höfðar til mín sem ungs fólks. Vúúúúú!

02.12.2008 | The Gayest Story Ever Told
gaybible

Hommalingar í Nýju-Mexíkó hafa tekið sig til og útbúið nýja samkynhneigða útgáfu af Biblíunni.

Fordómaþjakaðir og kreddufullir "sannkristnir" menn þar í landi hafa tekið uppátækið óstinnt upp (pun intended) og finnst það glatað.

Persónulega er það nú mín skoðun að Biblían er eiginlega nú þegar með samkynhneigðari bókum sem að fyrirfinnast og þarf því eiginlega ekkert frekari overt samkynhneigðunar með.

Sömuleiðis þykir mér fróðlegt að vita hvernig maður "gay-ar upp" Biblíuna, sem er í grófum dráttum (pun intended) endalaus bók um fólk sem dælir út afkvæmum á industrial-level-i, milli þess sem það finnur út úr siðferðislegum vandamálum á sýrutrippi. Það samræmist kanski ekki svo vel "the gay lifestyle" samkvæmt mínum skilningi, en hey; Biblían er líka full af kraftaverkum.

Ég verð þó að segja að ég hafði gaman að "úber-sexy-Lesbo-action" peppinu sem var vísað til í greininni.

Ég vil þó leiðrétta einn misskilning í greininni. Þar er staðhæft að til séu 116 biblíuútgáfur, en ég hef góða ástæðu til að telja að ekki hafi verið tekin með í þann reikning miklivægusta og blellaðasta útgáfan til þessa. Útgáfan okkar Árna...


Hin ALVÖRU Biblía 21. aldarinnar.

Being Christian has never been this gay!

01.12.2008 | Til hamingju Ísland!

Þá eru komin 90 ár frá fullveldi. Nú er tíminn til að vera góður við sjálfan sig og náungann.

skjaldarmerki

Annars er það mikil synd hvað 1. des hefur misst gildi sitt á liðnum áratug(um). Ég man þá tíð að 1. des var ekki bara fullveldisdagur, heldur líka fullgildur frídagur.

Sama hvað má nú segja um partíljónið hann Óla Grís, þá verð ég að vera sammála honum þegar hann segist vilja hefja 1. des aftur til fyrri vegsemdar og virðingar.

Til að halda upp á daginn hef ég hugsað mér að trítla niður í háskóla eftir hádegi og hlusta á nokkur vel valin erindi og umfjallanir og taka þátt í hátíðarhöldunum á þessum eina stað sem ennþá virðir þennan merka dag viðlits.

Til hamingju með daginn.

28.11.2008 | Street Diplomacy

Steinn Linnet kom eitt sinn með blellaða hugmynd um Ultimate Fighting Championship mót þar sem þjóðhöfðingjar landa myndu mætast í búri og útkljá utanríkismál. Tillagan kom í kjölfarið á umræðu um það hvað Vladimir Pútín er hardcore gæji.

Undanfarið hefur verið þó nokkur tittlingur á sviði alþjóðapólitíkur. Íslendingar töldu sig jafnvel lenta í milliríkjadeilu við Breta, allir voru leiðinlegir við Íran og Norður-Kóreu, og leiðtogar hika ekki við að senda öðrum tóninn í núverandi kreppu árferði.

Því vil ég meina að fyrrnefnt mót sé löngu orðið tímabært. Eða í það minnsta tölvuleikur þess efnis.

Því tók ég mig til í dag og setti saman hugmyndir um það hvernig slíkur tölvleikur gæti litið út. Ég var reyndar full lengi að þessu þar sem ég var að dunda mér við ýmislegt annað, og varð fyrir sífelldum truflunum. Þannig vil ég nú afsaka hvað þetta er hroðvirknislega gert, en ég held að þið náið hugmyndinni.


streetfighter2
Medvedev og Merkel mætast á rússneskri herstöð

streetfighter3
Putín er ber að ofan á safari þegar hann rekst skyndilega á Gordo

streetfighter4
Geir freistar þess að berja lán út úr "rússneska birninum"

Persónulega myndi ég spila þennan leik þangað til það blæddi úr augunum á mér. Svo er þetta líka bara heilnæm skemmtun fyrir ungviðið þar sem það lærir eitt og annað um alþjóðapólitík og diplómasíu.

Nú vil ég freista þess að fá tillögur frá fólki um hvað leikurinn ætti að heita.

Einnig væri gaman ef fólk kæmi með tillögur að t.d.

  • Hvaða leiðtogar væru ómissandi í þessum leik.
  • Hvaða backdrop væri töff að bardagarnir ættu sér stað við. (T.d. Rauða Torgið)
  • Hvaða sérstöku "power-move" og hvaða "fighter nick-name" þeir væru með.

Einnig væri töff að fá tillögur um hvernig pólarísering væri í leiknum. Þ.e.a.s. í svona leikjum eru yfirleitt tvær fylkingar, góð og vond (þó þeir reyndar hiki ekki við að berja hvorn annan). T.d. Þróuð ríki vs. Þriðji heimurinn eða Einræðisríki vs. Lýðræði

Ræðið.

27.11.2008 | You have been nominated for a Bachelor's Degree!

Í innhólfinu mínu í morgun var tölvubréf sem bauð mér góðan daginn með því að staðhæfa: "You have been nominated for a Bachelor's Degree!"

Ég spurði mig hversvegna ég hefði eytt þremur árum í háskóla í að vinna mér inn þessa gráðu, þegar menn virðast vera tilnefndir upp úr þurru.


Að öðru leyti hef ég tekið eftir því að ég á það til að gera fraudulent samninga við sjálfan mig á morgnanna sem ég svík svo meðvitað aðeins nokkru síðar. Yfirleitt ganga þessir samningar út á það að ef ég, Arnaldur Grétarsson, sé tilbúinn að drullast á lappir og koma mér í boðlegt ásigkomulag, þá sé ég, Arnaldur Grétarsson, tilbúinn að bjóða mér stuttan lúr fram að brottför til vinnu. Alltaf skal þessi samningur svikinn, enda er maður kannski ekki mikið fyrir það að detta í einhvern lúr þegar maður er loksins kominn í gang. Það er bara erfiðara fyrir alla.

lursaming1
Svona lítur svika-samningurinn út
26.11.2008 | Stuðmenn
raiden

Það hefur verið töluvert mikið í umræðunni undanfarið hvort það sé fýsilegt að vopna lögreglumenn með rafbyssum.

Persónulega hef ég ekki haft neitt sérlega sterkar skoðanir á þessu, vegna þess að ég get bæði séð kosti þess og galla. Almennt séð er ég nú fremur mótfallin því að vopna stétt manna, sérstaklega í ljósi þess að hér er vopnuð sérsveit sem ætti að vera fær um að sinna alvarlegum útköllum. Þó verð ég að segja að mér hafa þótt þessar árásir á lögreglumenn undanfarið óásættanlegar og uggvænlegar.

Í alvöru talað. Þetta er liðið sem á að vera að gæta okkar. Ekki lemja þau!


Mjög svipuð umræða hefur verið uppi á teningnum í Bretlandi undanfarin misseri, en eins og margir vita þá ganga almennir lögregluþjónar þar í landi um óvopnaðir líkt og hér.

Röksemdin þar á bæ hefur verið í þá áttina, að menn vilji koma í veg fyrir vopnvæðingarkapphlaup, og þess utan séu vopnaðar sérsveitir til reiðu, sem séu vel í stakk búnar til þess að taka á vopnuðum glæpum.

Engu að síður hafa breskar lögreglusveitir verið að gera tilraunir með rafbyssur og stendur nú til að dreifa 10.000 slíkum milli breskra löggæslumanna.

Í þessari grein, er hinsvegar nokkuð áleitinn spurning reifuð sem mér þykir koma málinu við. Í stuttu máli fjallar greinin, (sem er afskaplega leiðinlega skrifuð en vel þess virði að renna yfir,) um það hversu fúsir lögreglumenn virðast hafa verið til að beita byssunum, sumstaðar við mjög óheppileg tækifæri. Sennilegast þar sem það er mjög ólíklegt að þær deyði fórnarlambið. Ennfremur, að strangara og nákvæmara regluverk þurfi ef til vill um notkun slíkra vopna.

Endanleg niðurstaða úr tilraunaverkefninu, eins og fyrr segir, var sú að yfirvöld ákváðu að skella rafbyssum á lögguna. Merkilegt er þó, skv. greininni, að menn innan lögreglunnar virðast skeptískir á þróun mála og hafa hugsað sér að fara varlega í slíka upptöku, til að tefla ekki trausti almennings í tvísýnu.


Ókunnugur ungur maður vatt sér að mér fyrir allnokkru og sagði mér frá því þegar hann hafði orðið fyrir stuði úr rafbyssu, og lýsti hann því sem einu því allra óþægilegasta sem hann hefði matt þola. Þar að auki hefði stuðið verið svo öflugt að hann missti stjórn á líkamanum og pissaði á sig.

Ég held að menn mættu fara ákaflega varlega í upptöku rafbyssa hér á landi, því eins leiðinlegt og mér þykir að segja það, á ég ekki erfitt með að sjá lögregluþjóna hér rafmagna menn niður við ómerkileg og ónauðsynleg tækifæri. Nóg er nú um dólgslætin í sumum án þess að bærinn fyllist af pissublautum fúlmennum.

26.11.2008 | Orðspjöll
laganemi
Laganemi?
25.11.2008 | Killjoy!

Killjoy!

Alltaf virðist þessi umræða skjóta upp kollinum nokkuð reglulega, og einmitt oftast á þessum tíma ársins einhverra hluta vegna.

Persónulega á ég erfitt með að taka undir þetta. Fyrir þau okkar sem muna hvernig þetta var fram til '99 þá held ég að ég geti alveg staðhæft að það var brjáluð riot-sena í gangi niðri í bæ um hverja helgi frá kl. 03:30.

Ennfremur get ég ekki sagt að ég hafi tekið eftir mörgum börum eða klúbbum í Þingholtunum. Trúið mér. Ég væri ótrúlega ánægður með þá þróun mála.

Ef ég skil Stefán rétt, þá minnist lögreglan 10. áratugarins með söknuði, og vildi óska að hún gæti tekist á við full-blown riot í eina klst. milli kl. 03:30 og 04:30, í stað þess að þurfa að eiga við einn og einn vitleysing hér og þar á tímabilinu 03:00-07:00. Mér finnst það ömurleg pæling, sem ef til vill lýsir frekar fjársvelti og lélegum móral frekar en einhverju öðru.

Þess utan, sé ég ekki að það sé í verkahring lögreglunnar að fara með löggjafarvaldið, eða standa að því að búa til svona regluverk fyrir okkur.

Mín skoðun er sú að það mætti alveg auka fjárveitingar til lögreglunnar og borga þessu ágæta fólki sómasamlega fyrir að passa upp á okkur um helgar og fjölga í þeirra röðum svo þau séu betur í stakk búin til að takast á við starfið sem bíður þeirra. Aftur á móti neita ég að hverfa aftur til 10. áratugarins með tilheyrandi vitleysu, þó að það sé kreppa.

Að öðru leyti er ég reyndar alveg sammála að það mætti gera einhverjar tilraunir með að dreifa skemmtanalífinu. Reyndar ekki með því að fækka stöðum, heldur mynda litla kjarna annarsstaðar. Það er fátt skemmtilegra í útlöndum en að geta valið sér skemmtileg hverfi eftir því hvernig maður er stemmdur. Það er bara töff.


P.S. Að lokum væri ég mikið til í að sjá einhverjar sönnur á því að ofbeldisverkum hefði fjölgað til muna á þessu tímabili. Allar tölur og vitnisburðir sem ég hef annars heyrt virðast benda til hins öfuga.

24.11.2008 | Upphróp!

"Það er ekki hægt! Það er ekki hægt að biðja manninn afsökunar. Merril-Lynch er farinn á hausinn!"


...dó maðurinn með Merril-Lynch?

24.11.2008 | Útvarp Reykjavík, klukkan er orðin gamalt
old radio

Þeir sátu þrír saman félagarnir, heima hjá skáldinu í kjallaraíbúð við Njálsgötu. Kjallaraíbúðin var lág til lofts og til þess að undirstrika það var bréfalúgan í augnhæð þegar staðið var upprétt við útidyrahurðina.

Nú sátu þeir þrír saman, reyktu tóbak, sötruðu molasopa úr ílátum sem voru að öllum líkindum sykurkör, og hlustuðu á ellihruman mann lesa upp endurminningar í útvarpinu.

Þeir sátu undir mónótónískum niði upplestrar mannsins og ræddu atburði vikunnar, og gildi þess að klæða Jón Sigurðsson í kjól þegar skyndilega fór að bera á undarlegri þróun mála í útvarpsviðtækinu. Heyra mátti örla á taktfastri raftónlist undir upplestri mannsins sem ágerðist hægt og rólega.

„Hvað er þetta?“ spurði einn. „Hmmmm?“ sagði annar. „Er ekki einhver að spila teknópopp í nálægum glugga?“ gat sá þriðji sér til um. „Nei, hehehe, er ekki bara RÚV að reyna að poppa aðeins upp dagskrárgerðina hjá sér? Þú veist... til að ná í unga fólkið!“

En sú var ekki reyndin. Viðtækið barðist við að útvarpa tveimur bylgjum á sama tíma, eins og persónuleikaraskaður sjúklingur. Úr varð stórkostlega brengluð kakófónía, sem hefur ekki heyrst frá því að David Bowie og Scandinavian Lounge III börðust um eyru hlustenda á kaffihúsinu Café Wilder í Kaupmannahöfn árið 2003.

Það var gerð ámátleg tilraun til að festa undarlegheitin á band, með óljósum árangri. Svo var sest aftur að molasopa og sígarettu.

21.11.2008 | Svanasöngur Útrásarmanna

Fram, fjáðir menn í þúsund bönkum,
sem finnið skortsölunnar tök!
Nú bárur helsis skella á blönkum,
boða velsæld ragnarök.
Brostnar Stoðir, burtu vér þjótum!
Bræður! Flýjum land í dag -
Vér bárumst á en brátt nú hljótum
að byggja örbirgt þjóðfélag.

þó að framtíð sé fallin,
gerir Geira blá hönd,
ásamt I-M-F að binda þau
í eilíf vistarbönd.

20.11.2008 | Æ EMM EFF!
imfucks

Tekur einhver annar eftir því en ég hvað ráðamenn landsins þrátönnlast á "Æ-EMM-EFF"?

Afhverju ekki bara "I-EMM-EFF"? Ætli þetta sé eitt af skilyrðum sjóðsins; að leggja niður íslenska tungu?

Mörður Árnason hlýtur að gnísta tönnum yfir þessu öllu saman.

19.11.2008 | Riddarar krónunnar

Ég var eitthvað að velta mér upp úr þessu IMF-láni áðan þegar ég rakst á þessa frábæru mynd sem einhver snillingur hefur soðið saman. Varð bara að birta hana hérna.

dageir
Sir David, knight of the round krona and Master Geir, his squire

Ég reyni nú almennt að leggja mig fram við að vera ekki svona svakalega blatant í að birta hérna efni eftir aðra, en ég vona að þetta fái að fljóta fyrst ég source-a þetta.

18.11.2008 | Arnaldur's Soliloquy

To beard or not to beard, that is the question;
Whether 'tis nobler on the chin to suffer
The hairy grievance of outrageous beard-growth,
Or to take arms against a sea of stubble,
And by opposing, end them?

18.11.2008 | Hugsanastuldur?

Ég ætlaði að skrifa nákvæmlega þennan pistil um ræðu Davíðs í morgun, en Árni Snævarr var á undan mér að koma þessu í orð. Svekkelsi.

16.11.2008 | Afsakið mig, meðan ég mótmÆLI

Ég sá þessa frétt um daginn og ætlaði alltaf að minnast eitthvað á þetta. Einhverntíma í byrjun mánaðarins mættu nokkrir félagsmenn úr VR fyrir utan skrifstofur félagsins til að mótmæla setu Gunnars Páls Pálssonar sem formanns. Enda er það mjög skiljanlegt, þar sem maðurinn er siðlaus dóni.

Sem þessir félagsmenn stóðu þarna og mótmæltu, var annar einstaklingur líka mættur á svæðið og stóð fyrir eigin mótmælum. Þessi einstaklingur var með ákaflega háleitt baráttumál á heilanum og tók sér stöðu með heimatilbúinn bréfmiða til að undirstrika reiðina innra með sér.

Hvaða misrétti var svo drengurinn að mótmæla? Jú, hann var að mótmæla LÉLEGUM MÓTMÆLUM.

WTF!?!?

Well fuck you too, buddy!

Ef til vill hefur drengurinn ekki fattað risastóra kaldhæðnis-drullupollinn sem hann steig sjálfviljugur í. Án vafa verður að teljast að þótt mótmæli VR manna hafi ekki látið mikið yfir sér, þá voru þau allvega rekin áfram á einhverri hugsjón og skiluðu einhverjum árangri. Hinn hugmyndafræðilega gjaldþrota drengur hinsvegar, sat þarna bara eins og kúkur með bréfmiða, og mótmælti í raun eigin veru á svæðinu, þar sem hann var klárlega að reka mjög léleg mótmæli.

omurlegurgaur
Ömurlega lélegur mótmælandi mótmælir eigin, lélegu tilvist

En þetta hefur svosem verið viðkvæðið á Íslandi um árabil. Ef menn leyfa sér að stíga fram fyrir skjöldu og benda á þessa endalausu spillingu, þetta sifaspells riðaða pólitíska landslag eða almennt misrétti, þá eru þeir bara lélegir.

Ég held nú samt innilega að þegar fer að kreppa að þessum litla dreng muni hann átta sig á því hvað hann var mikill bjáni. Eða hvað veit ég svosem.

Almennt virðist nú vera að eiga sér stað einhver vitundarvakning í þjóðfélaginu. Um 6-7 þús. manns mættu á mótmæli á Austurvelli í gær, og það var gaman að sjá þar samankomið fólk af öllum stigum þjóðfélagsins.

Ég ætla nú ekkert að hafa of mörg orð um þennan ágæta mótmælafund, þótt ég hafi ýmsar skoðanir á því sem þar fór fram. Persónulega er mér nú nokkuð sama um þetta eggjakast þótt að mér þætti vænna um það ef menn tækju sig til og grýttu frekar Seðló, eða viðskiptabankana. Eða kannski helst Stjórnarráðið, því að það er aftur orðið fangelsi, nema í þetta skipti heldur það þjóðinni sem stendur fyrir utan í gíslingu.

Annars finnst mér þetta mótmælaskilti sem Sigurgeir benti á, summa upp öllum mínum hugmyndum um ástandið. Mig langar í svona skilti.

16.11.2008 | Sjö Samúræjabréf

Er það bara ég, eða er þetta mjög, ákaflega undarleg frétt. Gunni Hrafn, ef þú lest þetta máttu endilega útskýra.

Erfiðleikar vegna samúræjabréfa

15.11.2008 | Um HTML

Mér finnst innilega að það ættu að vera common values fyrir "center" og "centre".

Jafnvel líka "colour" og "color".

In ze end... ze Americains don't know ou to listen!!!

15.11.2008 | Dedicate! - Masta Ace...

Some dudes just need to be acknowledged.

mastaace

Hér er líka fáránlega ggott laaaggg.

Ég heyrði fyrst meðvitað í Masta Ace fyrir um 5 til 6 árum. (It gets fuzzy.) en fyrir mér er þessi gaur klárlega "up there" með hetjunum.

Acknowledge!

14.11.2008 | Traustur grunnur - Nýir tímar!

Ég rakst á þessa frábæru skopmynd á síðunni hans Sveinbjarnar. Mig langaði til að finna þessa mynd og jafnvel einhverjar svipaðar myndir svo ég leit inn á vef Sjálfstæðisflokksins til að reyna að grúska og sjá hvort ég gæti ekki grafið upp einhverjar gleymdar áróðursmyndir.

576small

Eh hó! Hvað blasti við mér. Á vef Sjálfstæðisflokksins er allt bara ennþá í bullandi góðæri! Kannski er þessi kreppa öll bara eitthvað bull soðin saman af fjölmiðlum eftir alltsaman.

Hér má sjá að "traustur grunnur hefur verið lagður og að efnahagslífið hefur aldrei verið öflugra."

Hér má sjá að "mikill og góður árangur hefur náðst í efnahagsmálum undanfarin ár. Efnahagslíf þjóðarinnar hefur aldrei hvílt á jafn mörgum stoðum og nú, kaupmáttur almennings hefur vaxið meira en nokkru sinni og innviðir samfélagsins hafa styrkst til mikilla muna."

Best er þó þetta outrageous kynningarmyndband sem er á síðunni. (Mér finnst sérstaklega gaman hvernig það kickar inn eftir u.þ.b. eina mínútu.)

Svo er líka bara eitthvað grátbroslega huggulegt við það hvað Geir og Þorgerður eru samrýmd fyrir framan þennan foss.

Nei, þeir mættu alveg uppfæra síðuna sína við tækifæri.

Vonandi sér maður þarna næst, í risastórum stöfum:

Like the Icelandic economy, this site and the party it stands for is under RE-construction!

13.11.2008 | Sjálfstæðisflokkurinn hvítþveginn
hvitthvottur
Menn að störfum við að hvítþvo Sjálfstæðisflokkinn
12.11.2008 | I meant Luxembourg - shit!
Councils Invested £1BN in Tiny Volcano Surrounded by Fish
12.11.2008 | Skoski rakarinn

Eitt sinn komst ég í kynni við við skoskan mann í tengslum við fyrri atvinnu mína. Sá var víst milljarðamæringur, eða svo sagði hann og hef ég enga ástæðu til að rengja frásögur hans.

Maðurinn var reyndar afskaplega drukkinn þegar samskipti okkar fóru fram, en þau voru fyrirfram dæmd til að mistakast, þar sem þau hefðu aldrei átt að eiga sér stað og voru þvinguð.

Hann var íklæddur skotapilsi, eins og Skota er gjarnan von og vísa við hátíðleg tækifæri. Hann hafði meðferðis gelgjulega, miðaldra konu sem var ósmekklega, jafnvel glyðrulega, klædd. Auk þess var hann í slagtogi með öðrum skoskum manni, sem hafði sömuleiðis með sér konu, en sú hafði þó öllu smekklegri nærveru.

beardyho2

Eftir að nokkuð tregðug samskipti okkar höfðu gengið fyrir sig í þó nokkra stund, veitti maðurinn því skyndilega athygli að ég var með geypi-myndarlegt eldrautt skegg framan í mér þar sem ég stóð og stumraði yfir honum. Hann rak upp harmakvein og tók til við að útskýra fyrir mér hvað ég væri nú fallegur drengur og að ég ætti ekki að vera með svona skegg í andlitinu. Það gerði ásýnd mína ellilegri og slíkt leist honum ekki á.

Eftir nokkuð þref um ágæti skeggvaxtar míns endaði með því að maðurinn bað mig, og grátbað mig um að leyfa sér að raka af mér skeggið. Hann sagðist vera vel til þess fær, og ekki þyrfti verkið að taka neitt sérlega langan tíma. En skeggið yrði að víkja.

Ég afþakkaði pent og skömmu síðar var samskiptum okkar lokið. Ég sá manninn aldrei aftur, þó að eitthvað segi mér að skeggræður hans líðu hvorki mér né honum úr minni á næstunni.

Satt best að segja er þetta ef til vill ekki merkileg saga, og í raun hef ég ekki haft miklar ástæður til að draga hana fram, fyrr en nú.

Þegar ég las vefútgáfu Morgunblaðsins í morgun kom ég auga á ljósmynd af manni. Þetta var að vísu ekki skeggáhugamaðurinn, en allt í einu þekkti ég manninn á myndinni sem hinn þybbna og hljóðláta vin rakarans sem hafði setið hjá og fylgst með okkur rökræða um skeggið mitt.

Það var óneitanlega athyglisvert að geta loks sett saman einhverskonar kort af þessum undarlegu mönnum sem stóðu í hárinu á mér. Hitt er svo annað að það var heldur leiðara að sjá að afrakstur erfiðis þeirra virtist loks hafa borið ávöxt, en það var "að rýja Íslendinginn inn að skinni".

11.11.2008 | Smokin' Joe Frazier

Ég varð bara að minnast á þetta frábæra viðtal við Joe Frazier. Frazier talar þarna m.a. um Ali einvígin, The Thrilla in Manila bardagann, hvað Ali var mikill fáviti og Rocky.

Klárlega eitt mest interesting viðtal sem ég hef lesið lengi. Mæli eindregið með því, ef fólk hefur minnsta áhuga á hnefaleikum.

---Smá viðbót---

Ég vildi bara bæta því við að einhvernveginn hef ég alltaf fundið mig knúinn til að taka afstöðu með mótherjum Ali. George Foreman var miklu sympatetískari karakter í mínum huga en Ali nokkurntíman, án þess að lítið sé gert úr ofurhetjulegheitum Ali.

Hvern hefði þó grunað að hann hefði verið svona mikið dusilmenni, þótt vitað væri að hann hefði verið illa haldinn af gorgeir?

05.11.2008 | Icesave
250px Icesave


I save,
You save,
We all save...
for Britain?

04.11.2008 | Bensíntré? WTF!?!

"Heyrðu! Vertu ekki að bruðla þetta með bensínið, drengur! Bensín vex sko ekki á trjám. Svo mikið get ég sagt þér!"

"Eða... jú. Apparently gerir það það...

---UPDEIT---

Anally-retentive demografían í lesendahóp mínum hefur réttilega bent mér á að hér færi mun betur á að tala um díseltré og dísel almennt. Ég skil hvernig hugtaka ruglingur af minni hálfu og tilhneyging til að tala almennt um jarðeldsneyti sem bensín gæti ruglað marga og biðst asfökunar á því.

DÍSE(L)S!!!

(P.S. Ég er núna að ímynda mér að ég hefði kallað pistilinn Vin Dísels, eða eitthvað svoleiðis... glatað, shit!)

04.11.2008 | Automobilespotting

Ég veit ekki hvort mig er að misminna eða dreyma það, en mig minnir að ég hafi einhverntíman tekið þátt í lélegasta road-trip "leik" í heimi.

Sem barn minnir mig að ég hafi einhverntíman leikið þennan "leik". "Leikurinn" fór þannig fram að ég og félagi minn í aftursætinu fengum tvö spjöld, ekki ólík bingóspjöldum. Á spjöldunum voru gluggar og í stað talna voru vörumerki hinna ýmsu bifreiðaframleiðenda í gluggunum.

"Leikurinn" gekk svo út á það að þegar maður sá bíl af tiltekinni tegund mátti maður loka glugganum. Sá sem var fyrstur til að loka öllum gluggum vann "leikinn".

Mjög augljóst, mjög glatað element í þessum "leik" er að barn sem hefur óbilandi áhuga á bílum (eins og þessi vinur minn) hefur umtalsverða yfirburði, og auli eins og ég, sem hafði, og hef eiginlega ekki, neinn áhuga á bílum, stendur mjög höllum fæti.

Það er óþarft að taka það fram að ég vann aldrei í þessum "leik", en ég vil reyndar kenna því um að ég sat yfirleitt hægramegin í aftursætinu og hafði því ekki jafn góða yfirsýn yfir bílana úr mótstæðri átt. (Kannski var þessi vinur minn búinn að átta sig á því að vinstra baksætið hafði töluverða yfirburði. Annaðhvort það eða þá að foreldrar hans voru að fixa "leikinn" með því að skipa mér í sæti hægramegin).

Man einhver annar eftir þessum glataða "leik"/auglýsingu?

04.11.2008 | Top of the Pops

Nýr vinsældarlisti þjóðríkja kom út á föstudaginn. Bretar féllu um 20 sæti, en hástökkvari vikunnar er Noregur.

Seriously samt. Er þetta ekki frekar mikið rúnk? Hvernig voru spurningarnar sem að leiddu að þessari útkomu? Er átt við stjórnvöld í landinu eða þjóðina sjálfa? Hvaða breytur eru teknar inn í þetta?

Eða var þetta kannski bara "Hérna... hvernig ertu að fíla Breta?"

04.11.2008 | Smá borgaraleg saga...

Þeir voru þrír, mennirnir í Hljómskálagarðinum þetta kvöldið. Þrír frumeindaðir menn í þessum stóra geimi sem ber eiginlega varla nafn með rentu og enginn þeirra hafði hugmynd um tilvist hins.

Einn þeirra lá samanhnipraður við fætur Jónasar og hraut eins og sögunarverksmiðja í Brazilíu. Hann hafði hafst við í Alþingisgarðinum undanfarið, enda er þar mun betra að vera og minni umgangur. Eitthvað hafði þó verið stuggað við honum síðan hinir háu herrar höfðu mætt aftur til vinnu. Á þessari stundu lá hann, sennilega í einhverju áfengismóki undir Jónasi sem vakti yfir honum með lítið blóm í hendinni.

Einn þeirra hljóp sem eldibrandur umhverfis tjörnina, en þó aldrei nærri Skothúsvegi. Af og til hætti hann að hlaupa og kýldi og sparkaði út í loftið og barði niður ósýnilega óvini af hinni mestu lipurð og færni. Hann hlustaði á ægilega, ofsakennda tónlist í vasadiskói um leið og hann gaf Skuggaböldrum á baukinn.

Það var ekki ljóst afhverju hann hafði byrjað að leggja stund á austurlenskar bardagakúnstir. Sumir héldu að það væri útaf vanmætti sem hann finndi enn til eftir leiðindatímabil í barnaskóla. Aðrir hölluðust að því að þetta hefði allt byrjað þegar hann tók sig á og ákvað að gera eitthvað í aukakílóunum. Eitt var víst, að hann tók hlutverk sitt alvarlega og sinnti því af alúð.

Þriðji maðurinn gekk um og söng hástöfum út í bláinn. Hann var að hlusta á dægurlagaslagara í vasadiskói meðan hann gekk um garðinn. Einu skiptin sem hann leyfði sér að syngja með vasadiskóinu var þegar hann gekk um garðinn, enda aldrei neinn á ferli þar til að hlusta með gagnrýnum eyrum á raust hans.

Þeir voru allir sameinaðir í þeirri trú að þeir væru einir og athöfnuðu sig því í samræmi við það, óhræddir við að verða dæmdir af smáborgaralegum viðmiðum vegfarenda sem engir voru.

En svo gerðist svolítið. Stóri geimurinn sem Hljómskálagarðurinn er, varð of lítill fyrir þessa þrjá menn. Þeir urðu allir varir við tilvist hvors annars á sama tíma, á óþægilegann hátt. Söngvarinn kom fyrir hornið um leið og viðlagið náði hápunkti sínum. Hann gekk fram á drykkjuraftinn og bardagamanninn, sem voru mun nær hvor öðrum en þeir hefðu viljað. Drykkjurafturinn rumskaði við þessi óhljóð og gaf frá sér baul í hálfum hljóðum. Bardagamaðurinn varð á sama tíma var við þá báða.

Þeir stöðvuðust allir í eina sekúndu. Söngvarinn hélt áfram að syngja, en aðeins rétt svo að það heyrðist. Bardagamaðurinn hélt áfram að sparka, en löturhægt. Drykkjurafturinn starði ringlaður í kringum sig og svo upp til Jónasar.

Að lokum tóku þeir sameiginlega ákvörðun um að viðurkenna ekki tilvist hvor annarra og héldu áfram athæfi sínu eins og ekkert hefði í skorist.

Hljómskálagarðurinn varð aftur athvarf þessa undarlegu manna sem aðeins koma út á kvöldin.

03.11.2008 | Til Hamingju

Datt í smá Tvíhöfða áðan. Ég er algerlega búinn að sjá það út að ef við eigum að komast upp úr þessu efnahagslega inspíraða þunglyndi, þá þurfum við Tvíhöfðann okkar.

Mér fannst þetta mjög viðeigandi:

Spilling!

Alþingismenn eru lygarar!

03.11.2008 | Endurmat á aðfaranótt sunnudags

Ég held að ég gæti mögulega verið fífl. Eða kannski bara bjáni.

Við bíðum spennt eftir niðurstöðu frá skilanefnd um málið.

Vonandi mun verða gerð ítarleg grein fyrir atburðum, réttmætir aðilar dregnir til ábyrgðar og þeim gert að sæta viðeigandi refsingu.

03.11.2008 | Tónlistaráhlustun á mánudags eftirmiðdegi

Er þetta lag svona frábært af því að það er fullkomnlega lýsandi fyrir það hvernig mér líður akkúrat núna. Eða líður mér svona útaf laginu?

29.10.2008 | Þurfum við þá nýjan Gúttóslag?

Innlent - miðvikudagur, 29. október

Niðurskurður hjá Velferðarráði Reykjavíkur; fátæka fólkið verður verst úti í kreppunni

Lárus
"Þurfum við þá annan Gúttóslag?"

Sigga
"Kannski borgin ætti að hættaað borga Gisla Marteini laun þannig væri hægt að spara skil ekki hvernig þetta getur viðgengst að vera áskrifandi að launum hjá borginni.Frú borgarstjóri Reykjavíkur þú mátt skammast þín"

Ari
"bidu biddu ...en hvað með gisla ...er gisli martinn ekki á launum...bara láta hann taka lán í stað þess að fá laun..hann er auli..bara auli og ekkert betra..."

ÞA
"Það er eins og allir pólitíkusar séu algerlega úr tengslum við veruleikann þessa dagana. Hvernær ef ekki núna þarf þessi hópur mest á hjálp að halda? Hafið þið ENGA reynslu eða þekkingu á málefninu?"

Skattgreiðandi
"400.000 kr. hans Gísla væri rosalega vel varið til þeirra sem á þurfa að halda. Vonandi að kjósendur muni þetta næst þegar hann mætir glaðbeittur."

Hallur
"Jæja Gísli Martein það er farið að sverfa að fólki sem minst meiga sín. Ég skora á þig að axla ábyrgð og taka námslán eins og annað námsfólk."

BG
"Hvernig væri að byrja á yfirstjórn borgarinnar, lækka laun fyrir nefndastörf og enginn fái laun nema að hann mæti á fund..."

Ari
"GÍSLI ...HEYRIR ÞÚ Í MIG ...GISLI ÉG SKORA Á ÞÍG AÐ TAKA NÁMSLÁN... GISLI GISLI ..LÁTU EKKI SVONA ...SEGÐU AF SÉR OG VERTU MAÐUR SEM AXLA ÁBYRGÐ OG TAKTÚ NÁMSLÁN"



...hrópa þau örvingluð út í frostkalda nóttina. Það er byrjað að kreppa að.

29.10.2008 | Klígju-mellu-búð
1011

Áðan fór ég í 10-11 í Lágmúla með það að markmiði að fá mér eitthvað að borða og kaupa uppþvottaefni. Þegar ég kom inn í búðina blasti við mér heitir kjúklingaréttir. Ég gat hvergi fundið nokkuð verð á kjúllanum og ákvað því að fá mér frekar eitthvað verðmerkt. Ég tékkaði því á samlokunum sem voru í boði. Þar voru heldur engin verð, nema þeir lofuðu 30% afslætti af samlokunni ef ég væri með "kortið" frá Kaupþingi. Ennfremur buðu þeir samlokuna á 799 krónur ef ég keypti kók og blandaðar hnetur með.

Ekkert verð samt fyrir fólk eins og mig sem vildi bara samloku og átti ekki "kortið" frá Kaupþingi.

Ég ákvað því á endanum, af prinsipp ástæðum að versla ekki mat þarna inni, enda hefði ég mögulega getað þurft að reiða fram hundruðir og þúsundir króna ef ég hefði fallið í freistni. Við bara vitum það ekki. Það er engin leið að ímynda sér hvað hlutirnir hefðu kostað.

Ég ákvað samt á endanum að reyna að fá helvítis þvottaefnið, enda langt í næstu búð. Þegar það kemur að þvottaefni býður 10-11 upp á pakka með 20 þvottaefniskubbum á 900, og svo pakka með 30 þvottaefniskubbum á 1.500. Einhvernvegin virkar þetta órökrétt á mig. Bulk-innkaup eru sumsé dýrari (per einingu) í 10-11 en smá-innkaup.

Það má ímynda sér að 10-11 sé einskonar undraland kjörverslana, þar sem markaðslögmál og neytendalög hverfa út í buskann og maður stendur ringlaður eftir í undrun og almennum leiðindum.

Að endingu fór ég að kassanum til að greiða fyrir (minni pakkann) af þvottaefni og þar tók við mér kassadrengur sem leit meira út eins og heróin-fíkill, í þann mund að ræna búðina, frekar en afgreiðslumaður. Það var ekki á honum að sjá að hann ynni þarna, íklæddur bol sem stóð á "FUCK THE SYSTEM!" með allskonar drasl í andlitinu og munninum. Eftir að kassadrengurinn hafði urrað á mig "Eikkva flera?" fór ég út og ákvað að hádegismaturinn minn skyldi samanstanda af sígarettu, fersku lofti og göngutúr um hið annars dauðyflislega umhverfi Lágmúlans.

Ég var hvort sem er ekkert það svangur. Allavega ekki nógu svangur til að kaupa mat af þessari klígjukenndu verslun.

Hver getur annars tekið verslun alvarlega, með jafn undarlega skrýtið og bjánalegt tilboð og þetta að neðan?

dumboffer
Smokkar, djús og fótbolti.
Er hægt að biðja um fleira í lífinu?
29.10.2008 | $2.800.000.000.000 Party

Fyndið, ég sá þessa frétt í mogganum og aftur á guardian:

Krassið búið að kosta 2.800.000.000.000 dollara!

(sem er basically búið að eyða í ekki neitt)

Það fyrsta sem ég hugsaði, var í hvað ég myndi eyða svona peningum. Ég komst að því að ég myndi kaupa mér ný jakkaföt, gullstöng (1 stk) og svo myndi ég bjóða öllum heiminum í partý. (Alveg nokkrir bjórar á mann, maður.)

Svo sá ég að einhver annar var í svipuðum hugleiðingum, þ.e.a.s. "Hvað myndi maður gera við þenan pening?"

Þægilegt reyndar að sá gaur kemur með nokkur verðdæmi og setur hlutina í smá perspektív. Bara leiðinlegt hvað þessir einu 2 gaurar sem nenntu að kommenta voru svakalega unimaginatve.

- - -

Smá updeit. Ég ætlaði eiginlega að falast eftir því hvernig annað fólk myndi ráðstafa svona fjármunum.

27.10.2008 | Melamín/Melanín
melamine

Ég hef verið að fylgjast aðeins með þessum melamín skandal í Kína undanfarið. Af og til (ekki oft) detta inn svona fyrirsagnir, þar sem blaðamaður talar um melanín en ekki melamín, sem verður að teljast mjög óheppileg villa.

Er einusinni hægt að fá melanín eitrun?

Ef svo er, þá er ég hræddur um að appelsínugula brúnku-fólkið þurfi að fara að passa sig.

Melaníneitrunar leitað víðar - courtesy of mbl.is.

24.10.2008 | The Earth is Fat
flat earth1

Ég hafði heyrt útundan mér orðróm um að það væri til lítið samfélag af hnetukökum sem að trúði því heitt og innilega að jörðin væri flöt. Ég hélt að þetta væru bara einhverjar stílfærðar ýkjur um ofsatrúarfólk sem heldur að jörðin sé 6.000 ára gömul og hafnar risaeðlum og almennri gagnrýnni hugsun. Annaðhvort það eða einhver bjó til ömurlega mundane anekdótu til að segja í partíi (sem er ekki kúl).

Svo rakst ég á þessa grein.

Smá leit á netinu staðfesti að þetta fólk er víst til. Hérna, til dæmis er forum þar sem fólk sannfærir hvort annað um hversu rétt það hafi fyrir sér í þessu og svo er önnur aðeins sjoppulegri síða hérna.

Það sem þetta fólk virðist nokkuð sammála um, er að það sé einhverskonar samsæri í gangi um að telja almenningi trú um að jörðin sé kúlulaga, en ekki flöt eins og hún er skv. þessu fólki. Það er ýjað að því að illgjarnir menn hafi villt um fyrir fólki með eitthvert vafasamt agenda.

Ókei, ég skal alveg reyna að skoða, á sanngjarnan og open-minded hátt, hugmyndir fólks um allskonar samsæri ef það getur sýnt fram á einhverskonar mögulegan ávinning sem "samsærisfólkið" hefur af samsærinu. Ég á neflinlega svakalega erfitt með að samþykkja að nokkur leggist út í blellað mególómanískar og kostnaðasamar aðgerðir til að slá ryki í augu fólks og hylma yfir stóra sannleika nema að það liggi einhver góð ástæða á bak við það.

Hvaða alterior motive getur mögulega legið að baki því að ljúga að fólki að jörðin sé hnöttótt?

Afhverju ætti NASA að falsa ljósmyndir utan úr geimnum til að ljúga að fólki? Hvað græða þeir á því að fela sannleikann fyrir okkur?

Svo er annað mjög unnerving við þetta lið, og það er að það virðist meira og minna allt saman vera einhverjir Euro-centristar. Í bókstaflegum skilningi.

Hérna er allavega einn lúði sem skrifaði bók um þetta (sorry, ég bara varð að skjóta þessu inn).


En svona on a lighter note, þá er hérna smá föstudags skemtilegheit. Ladies and gentlemen, I give you Chairman Nene.

22.10.2008 | Iceland is gonna sink...

Hmmm... Thomas Friedman kemur mað svakalega greinagóða lýsingu á atburðunum á Íslandi síðustu daga. (c.a. 5 mín inn í segmentið)

Ég geri mér grein fyrir því að maðurinn hefur mjög takamarkaðan tíma til að útskýra málið, en þetta virkar hálf sjoppulegt hjá honum:

"Basically what happened was that Iceland had internet banks. When those went under, all these British police stations and colleges lost their money."

Mjög góð greining. Gefum manninum enn einn Pulitzer.

21.10.2008 | Plantasian
plantlife

Japönsk planta bloggar um tilfinningar sínar. Er þetta mögulega ádeila á bloggara heimsins?

Þetta er allvega töluvert áhugarverðara en megnið af moggablogginu með sínar mjög svo sambærilegu bloggfærslur um hitastig og loftþrýsing. Líka mun betra en restin af draslinu.

Það gerir líka gæfu muninn að geta fylgst með líðan plöntunnar út frá myndum af kvikindinu. Persónulega hafði ég mjög gaman af því að sjá hvað birtuskilyrðin breyttust dramatískt mikið milli 19. og 20. október.

Spennandi tilvera...

21.10.2008 | Optar-mus-Prime

Úff, ég bara varð að linka á þetta skúbb á síðunni hjá Sveinbirni. Þessi OPTAR-pæling er mögulega mest useless hugmynd sem ég hef heyrt og það er yndislegt að lesa hvernig gaurinn reynir að réttlæta gagnageymslu á pappír sem frábæra lausn.

Gunni á líka mjög skondið komment...

Ég er búinn að vera einn í cubicle-inu mínu að flissa eins og skólastelpa síðustu 10 mínúturnar.

20.10.2008 | Krudt-kynslóðin...
krudt2

Boooohhh!

Var ég mögulega að horfa á innihaldslausasta og ömurlegasta augnablik sjónvarpssögunnar á Íslandi? Ég þakka bara fyrir að við erum með þessa blessuðu kreppu til að tala um, því það er nokkuð augljóst að fjölmiðlafólki landsins er gersamlega um megn að standa að frumlegri og gefandi dagskrárgerð.

Núna var ég að enda við að horfa á hina mjög svo takmörkuðu Elsu Maríu Jakobsdóttur reyna af veikum mætti að stjórna gersamlega innihaldslausri umræðu um mögulegan eða ómögulegan dauða mögulegrar, óskilgreindrar "krútt-kynslóðar".

Til að takast á um þetta þarfa málefni voru mættir í myndver Goddur nokkur, sem er maður með álfahúfu og Valur Gunnarsson, sem er álfur með húfu.

Valur: "Ég held að Ísland sé í slæmum málum og að allt þetta fokk undanfarið hafi grafið undan Íslenskri menningu."

Goddur: "Nei, nei, þetta er allt í lagi."

Valur: "Nei, og það sem meira er þá er krútt-kynslóðin dauð!"

Elsa María (ákveður að reyna að vera eins og Helgi Seljan í smá stund): "Hverjir eru þessi krútt-kynslóð?"

Valur: "Þetta er bara konsept. Þetta er svona fólk sem að er bara eitthvað að dunda og raula og það er ekekrt innihald í því sem það er að gera."

Elsa María: "En hvað áttu við? Hverjir eru krútt?"

Valur: "Æi, bara. Eitthvað lið sem að er að pæla í þessu konsepti."

Elsa María: "En hvað áttu við? Hverjir eru krútt?"

Valur: "Æi, bara. Eitthvað lið sem að er að pæla í þessu konsepti. Kannski fer þetta fólk að skrifa einhverja texta og eitthvað..."

Goddur: "Nei, krúttin eru frábær. Þau eru alltaf að borða hafragraut og eru í lopapeysu og misstu af góðærinu. Þau munu erfa jörðina af því að þau eru rónar."

Valur: "Já, kannski. Kannski fara þau líka að skrifa texta..."

Goddur: "Já, ég held það..."

Valur: "Já, en síðan má líka segja..."

Elsa María: "Já, OK, Takk. Bæææ..."

Það er voðalega vinsælt núna að reyna að slá sig til riddara með því að ætla að vega hinn hugmyndafræðilega dreka sem "krútt-kynslóðin" er. En það er bara dálítið erfitt þegar enginn vill viðurkenna að hann sé krútt og enginn vill ganga svo langt að segja eð einhver sé krútt. Við vitum samt alveg nákvæmlega hver á að vera krútt.

Allir nema Elsa María. En hún á líka bágt með að átta sig á því hvað klukkan slær.

Krútt er fólk sem að syngur um brotna höfrunga í falsettu við undirspil spiladósa.

Persónulega finnst mér ekkert krúttlegt við illa rakaða, sveitta, fulla gaura og skakkklipptar stelpur sem að taka sig saman og þamba bjór í útmignum bílskúr og halda að það sé menning.

Mér finnst ekkert krúttlegt við dauðar hauskúpur, Austur-Evrópska bíla eða "skandinavískan sársauka". Jafnvel þótt að krúttin fari stundum í skítugar lopapeysur og hlusti á Gufuna, eins og Goddur bendir á.

Og núna, ætla ég að slá sjálfan mig til riddara með því að lýsa megnri vanþóknun á þeim sem að hleypti "krúttunum" inn í umræðuna. Þetta er algert drasl hugtak og er svo sannarlega ekki þess vert að menn sjónvarpi einhverjum nauða ómerkilegu spjalli um það á besta tíma.

En ég ætti nú eflaust síðast en ekki síst að lýsa yfir vanþóknun á sjálfum mér fyrir að hafa ráðstafað tíma mínum í að glápa á Kastljós.

18.10.2008 | Dude er kominn með net!

Eftir allskyns vesenis tilfærslur er Arnaldur loksins kominn með internet heim til sín!

16.10.2008 | Arnaldur tilkynnir...
biladyrbilar

Ég held að ég sé búinn að leysa þetta mál.

Hvernig væri að við seldum bara allar þessar rándýru bíldruslur sem hafa flætt inn í landið aftur til útlanda.

Brjálaðar útflutningstekjur, fullt af gjaldeyri, og engin fleiri toxic, negative-equity myntkörfu lán. Problem solved!

Ísland yrði þar með sennilega hlutfallslega stærsti bifreiðaútflytjandi í heimi.

Þessa aðgerð væri líka hægt að framkvæma í gegnum internetið og gæti þar með ýtt undir þörf á netþjónabúum hérlendis sem yrði góð innpýting í efnahaginn.

Svo væri hægt að skoða möguleikann á því að taka upp paypal sem þjóðargjaldmiðilinn og slaufa þannig ISK.

Problem solved!

Nóbel í hagfræði takk fyrir...

15.10.2008 | Skortstaða í siðferði
lemonade2

Ég var búinn að lofa sjálfum mér að vera ekki mikið að dvelja á málefnum þessarar líðandi stundar sem við erum nú að ganga í gegnum, af þeirri einföldu ástæðu að fólk þarf ekki á þessari síbylju að halda. Engu að síður finn ég sjálfan mig vera með ástandið á heilanum.

Þessa undanfarna daga hef ég setið um helstu fréttamiðla á netinu, ýtandi á refresh takkan eins og ég væri í skotleik, og horft á hverja fyrirsögnina á fætur annarri dúkka upp.

Þar sem ég er með þetta allt á heilanum, væri það því bara óhreinskilið að þykjast ekki vera með þetta á heilanum.

Ég man þegar ég varð fyrst vitni að viðskiptum sem verður best lýst sem einhverskonar útfærslu af skortstöðu. Þetta hefur verið árið '93 eða '94. Þá hafði kunningi minn selt tölvu sem hann hafði fengið að láni. Mér fannst þetta óhugnanlegur gjörningur í alla staði, þar sem þessi kunningi hafði ekkert umboð til að selja vélina. Hann fór svo á endanum, eftir að vélin hafði verið seld, og bauð réttmætum eiganda hálfvirði þess sem vélin hafði selst fyrir, án þess að minnast nokkru sinni á að hann hefði löngu selt hana. Aðspurður sagði hann að hann hefði verið viss um að hann gæti talað eigandann til og fengið lánsvélina á einhverju lægra verði en hann hafði sjálfur selt hana á. Ágóðinn var svo notaður til fatakaupa og nammibruðls.

Nokkru síðar upplifði ég svipuð skrýtin viðskipti. Félagi minn kom að máli við mig úti í sjoppu og spurði hvort hann gæti ekki fengið lánaðan 100 eða 200 kall. Ég jánkaði því og félaginn stökk beint af stað í spilakassa. Tveim mínútum síðar sneri félaginn aftur með 2000 krónur glaðreifur. Ég samgladdist honum, þrátt fyrir að mér hefði fundist þetta undarleg ráðstöfun á lánsfé. Ég spurði hann þá hvort hann byði nú ekki upp á kók og súkkulaði. Nei, það þótti kauða ekki boðlegt og reiddi fram með herkjum 200 krónurnar sem ég hafði lánað honum nokkrum mínútum fyrr.

Á þessum árum varð ég trekk í trekk vitni að einhverskonar svipuðum viðskiptaháttum þó téð viðskipti hafi alltaf haft yfir sér þetta svipaða barnslega yfirbragð.

Það sem sló mig á þeim tíma, var hversu siðlaus og óhefluð þessi viðskipti voru, og hversu illa þau samrýmdust hugmyndum mínum um heiðarlega viðskiptahætti.

Undanfarið hef ég stundum hugsað til þess hversu svipuðum hughrifum ég hef orðið fyrir þessa síðustu daga, þegar kringumstæður undangenginna hamfaranna verða skýrari og rakið er ofan af þeim svikamyllum sem hafa verið starfræktar síðustu ár.

En það er kannski ekkert skrýtið við það, því að við nánari skoðun virðist mér helst sem að sömu barnaskóla-prinsipp hafi rekið áfram braskarana sem veðsettu Ísland og keyptu sér nammi fyrir afganginn. Það, í sjálfu sér, væri nú heldur kannski ekki svo skrýtið, því að það er næstum sama fólkið situr beggja vegna borðsins í báðum tilfellum.

02.10.2008 | Bull og vitleysa
bull2
29.09.2008 | Fjárhagsleg heilsa?

Þetta hérna er líka nokkuð gott...

Ég er nokkuð viss um að Glitnir hefur ekki tekið fjárhagslega heilsuprófið á byr.is.

Súkkaddí Púkkaddí, indeed.

29.09.2008 | Party like it's 1929!!!

Ég bíð bara rólegur eftir boðsmiðanum mínum á skemmtilegustu árshátíð síðan 1929. Hver vill koma með mér?

gritnir
23.09.2008 | Vistarband, verðbólga... Viðbjóður...
gengi230908

Eins og sjá má mjög glögglega, annars vegar hér á myndskreytingunni til hliðar, og svo á heimasíðu Landsbankans, þá er íslenska krónan algert drasl, sem að allir keppast við að myrða og kúka á þessa dagana.

ISK, eða Inter Stellar Kredit-in eins og góður vinur minn kallar gjaldmiðilinn okkar (í ljósi þess hvað þetta eru miklir leikfangapeningar), er svo óhrjáleg þessa dagna að Íslendingar eru sjálfkrafa aftur orðnir fastir í vistarbandi á hnattrænum skala.

Ég get t.a.m. ómögulega hugsað mér að fara til útlanda eins og ég hafði annars ráðgert á næstunni. Og ekki hefur nokkur maður áhuga á að koma og heimsækja mann á þetta guðsvolaða sker sem samanstendur af rigningu, ótrúlega miklum vindi og almennu ógeði.

Þá er gaman að hugsa til þess að heilli kynslóð fólks sem hefur verið að reyna að koma undir sig fótunum á síðustu árum hefur verið riðið í rassgatið með erlendum lánum og situr eftir með sárt ennið.

Það er engin leið að koma vel út úr þessu. Nema auðvitað að eiga nóg af Evrum... eða fiski... eða áli til að selja úr landi.

Mín tillaga er ekki sú að skoða það endalaust án árangurs næstu árin hvort hægt er að taka einhliða upp Evru, sem við höfum alltaf vitað að er ekki hægt, með tilheyrandi kostnaði við nefndir sem flogið er út til að spyrja sömu spurningarinnar aftur og aftur til þess eins að fá sama svarið.

Mín tillaga er að hætta þessu helvítis rugli, segja skilið við bankana og fjárfestingagrúppíurnar og útrásarvíkingana sem að eru búnir að vera að grafa undanfarin ár.

TÖKUM BARA UPP VÖRUSKIPTI!!!

Það að hverfa frá verslun með ónýtum óðaverðbólgugjaldmiðlum hefur reynst frábærlega í löndum á borð við Bólivíu og Zimbabwe. Eða þykjumst við kannski vera eitthvað betri en þessi samanburðarlönd?

Sjálfur hugsa ég um vöruskipti sem rómantíska og sjarmerandi leið. Afturhvarf til hefða, þar sem verðgildi hlutanna er gagnsærra.

-Hvað kostar þetta sjónvarp?
-Eitt karton af sígarettum, vídjó og kind.
-Hvað með karton, GSM-síma og tvö svín?
-Jæja þá... allt í lagi.

Svo gætu þeir sem verða blankir náttúrlega alltaf leitað að hamingjunni í skauti sér...

22.09.2008 | Pingu-zilla
arnipingu2
09.09.2008 | When keepin' it real goes WRONG!!!
rappersdelight4

Amazingly, ridiculously wrong...

Allt við þessa klippu er svo fáránlega gott.














Með þakklætisvirðingum til Hr. Friðriks

08.09.2008 | Ég er hræddur

Of gott...

05.09.2008 | Arimæli 2008
mari23

Í dag, föstudaginn 5. september á heiðursmaðurinn Ari Eldjárn afmæli. Við vottum Ara virðingu okkar og óskum honum heilla á komandi elliskeiði.

Hér til hliðar má sjá Ara og gestgjafa á góðri stundu, einu sinni sem oftar.

02.09.2008 | Hjartaslög, hundar og tígrisdýr

Ég vissi ekki að maður gæti dáið úr hjartaslögum...
Arthur Allen Leigh sem lést af hjartaslagi 1992 er hins vegar sá hinna grunuðu...

Þetta er mest wasteful use of resources sem ég hef lesið um lengi.

Og að lokum: Er Pútín mögulega svalasti, mest hard-core forsætisráðherra í heimi?
Also, ef að Pútín getur svæft tígrisdýr og smellt á það kossi áður en það gerir sér mat úr blaðamanni, (keep in mind að tígrisdýr eru frekar hraðskreið,) er þá ekki rétt að álykta að það væri hægt að svæfa einn helvítis svangan ísbjörn?

Kannski er það bara af því að Pútín er svo fokk góður í Sambo og Judo. Kannski notaði hann ekki deyfi-pílu heldur tók dýrið hálstaki.

Allavega krefst ég þess að Pútín verði hluti af viðbragðsáætlun um ísbjarnarkomur til Íslands.

01.09.2008 | Moustachio
moustachio2

Nýlega hef ég verið að horfa ákaflega mikið á þættina um Jeeves and Wooster.

Í einum þættinum safnar Bertie sér yfirvaraskeggi í mikla óþökk Jeeves sem reynir stöðugt að sannfæra herra sinn um ágæti þess að skerða hár sitt.

Sjálfur ákvað ég að safna yfirvaraskeggi á dögunum, ekki ósvipuðu því og Bertie sést með í þáttunum.

Að sama skapi hefur móðir mín tekið að sé hlutverk Jeeves og notar hvert tækifæri til þess að reyna að fá mig til þess að raka af mér skeggið.

Ætli maður þráist ekki við í einn eða tvo þætti í viðbót áður en skeggið fer...

25.08.2008 | Landafræði???

Nýlega komst ég yfir gamla landafræðibók sem ég notaði sjálfur á sínum tíma í grunnskóla. Bókin heitir Landafræði, II. hefti og er eftir Gylfa Má Guðbergsson. Nokkuð skemmtileg lesning, hér fylgja nokkrir sérvaldir kaflar.

Flestir Afríkumenn eru negrar (svertingjar) og er álfan sunnan Sahara að mestu byggð negraþjóðum. Negrarnir skiptast í tvo aðalflokka, súdannegra, sem búa norðan til. og bantúnegra sem búa sunnan til...Í skógum Kongó og víðar búa dvergsvertingjar (um 140 cm á hæð) og í Kalahari eru Búskmenn og Hottentottar en þessar þjóðir eru allar fámennar. (bls. 46-47)

Súdan er stærsta ríki Afríku og þar búa menn af öllum helstu kynstofnum álfunnar. Norðan til eru m.a. arabískir hirðingjar og Núbíumenn sem eru negrar en mjög blandaðir hvítum mönnum sem hafa búið í nábýli við þá í margar aldir...Sunnan til í Súdan búa súdannegrar sem stunda jarðrækt, eru heiðnir og svipar þeim til þjóða Vestur-Afríku...Hvítir menn voru allfjölmennir í Suður-Afríku en nú eru þeir einkum í Suður Afríku-lýðveldinu...(bls. 61-62)

Í suðvestanverðri álfunni, frá Miðjarðarhafslöndum austur til Indlands, búa menn af hvíta kynstofninum (eranar) og einnig í Asíulöndum Sovétríkjanna fyrrverandi. Annars staðar eru Asíumenn flestir mongólítar og eru Kínverjar fjölmennastir þeirra. Svertingjar er[sic] fáir í Asíu. (bls. 69)


Ég bíð bara eftir kaflanum um aríska hauskúpulögun...

21.08.2008 | Maður er bara í rusli yfir þessu!
tonysoprano

Ég er algerlega mótfallinn einkavæðingu á sorphirðu borgarinnar. Hefur þetta fólk aldrei séð mafíu bíómyndir? Eða lesið bók? Eða bara spáð almennt í lífið og tilveruna?

Einkavæðing á sorphirðu: Lélegri þjónusta, niðurskurður á starfsfólki, meira álag á starfsfólk í kjölfarið, lítill sem enginn sparnaður í raun eða verðhækkanir.

21.08.2008 | Censeo Circum esse delendam!

Mikið getur nú fólk verið lágkúrulega dramatískt...

Er þetta virkilega þarflegt?

Var Sirkus virkilega svona svakalega merkilegur?

Þessi er nú aldeilis kát að komast aftur heim. Haaaaa...

Stundum græt ég hljóðum tárum í einrúmi og minnist Sirkuss.

21.08.2008 | Aldrei aftur Tsjernóbyl?

Ég hef um nokkurt skeið viljað skrifa um kertafleytinguna sem fór fram um daginn niður við Tjörn, til þess að minnast kjarnorkuárásanna á Hiroshima og Nagasaki.

Nú er þetta svosem árlegur viðburður og kannski ekki í frásögur færandi, en eitt þótti mér ákaflega undarlegt.

Kolbrún nokkur Halldórsdóttir hélt langt og mikið ávarp við setningu athafnarinnar sem mér þótti stinga nokkuð í stúf. Að vísu minnist hún í tvígang á Hiroshima, en að öðru leyti er þetta 3bls frásögn af opinberri heimsókn og pólitískur áróður gegn kjarnorkuverum.

???

Er ég einn um að finnast kjarnorku-SLYSIÐ í Tsjernóbyl á engann hátt líkt kjarnorku-ÁRÁSUM á Hiroshima og Nagasaki?

Nú kann fólk að hafa allskyns skoðanir á kjarnorku sem orkugjafa og hverskyns framkvæmdum í tengslum við það. Mér finnst samt óábyrgt og hreinlega móðgandi að líkja þessum tveimur gjörólíku hlutum saman.

Hér er ávarpið í heild sinni.

Aldrei aftur Kolbrún!
Aldrei aftur Hiroshima!
Friður fylgi ykkur.

21.08.2008 | Þormóður Jónsson
thormodurjonsson

Arnaldur óskar Þormóði til hamingju með glæstan árangur á Ólympíuleikunum í Peking 2008.
Vel að verki staðið!

18.08.2008 | Leiðarendi
G42001

Á laugardaginn hætti skjárinn á tölvunni minni að birta nokkurn skapaðan hlut. Kom þetta í kjölfar þess að ég braut aðra festinguna á skjánum pínkulítið.

Tölvan virkar samt fínt. Ég þakka bara fyrir að hafa sett inn Quicksilver og Synergy á sínum tíma, því þrátt fyrir að ég sjái ekkert hvað ég er að gera, get ég með aðstoð þessara app-a gert minor basic hluti. Mér líður eins og algerri hetju að nota tölvu með engan virkan skjá og óvirkt track-pad.

Í raun er ég að hugsa um að gera rokk-óperu um þetta, með sjálfan mig í aðalhlutverki. Í grófum dráttum mun hún fjalla um ungan mann sem að notar tölvuna sína án þess að sjá á skjáinn og notast við lyktarskynið til þess að vita hvað hann er að gera. M.ö.o. Tommy með G4 tölvu í stað kúluspils.

Annars er gamla vélin búin að þjóna mér vel í gegnum tíðina og standa sig eins og herforingi undanfarin 6 ár.

Tími MacBook Pro er loksins kominn.

05.08.2008 | Requiem for Calculus

Laugardaginn 2. ágúst fór fram minningarathöfn um einhleypni Steins nokkurs Linnets. Athöfnin hófst um 10 leytið og stóð fram eftir degi. Fór allt vel fram.

Var þetta mögulega einn skemmtilegasti dagur sem ég hef upplifað í langan tíma?

Nú langar mig að gifta mig...

30.07.2008 | Pathetique opus 1.

Er þetta mögulega glataðasta framtak sem nokkur maður hefur tekið sér fyrir hendur?

Samtök áhugafólks um að opna Starbucks á Íslandi... eða eitthvað.

Og ég hélt að ÉG væri neysluhóra.

18.07.2008 | Föstudags animation

Mjög smooth og original animation eftir japansk/kanadískan dude sem heitir Jeff Chiba Stearns.

Sömuleiðis mjög slick animation byggð á viðtali við John Lennon.

Check it!

18.07.2008 | NEScartNES
NEScartNES

Shit hvað mig langar í SVONA

Ég bara kann ekki, get ekki, veit ekki...

18.07.2008 | Kaffibarinn á fimmtudegi?
biatch
11.07.2008 | í fréttum er þetta helst

Ég nenni ekki að hafa mikið fleiri orð um þau skelfilega lágu markmið rafræn útgáfa morgunblaðsins hefur sett sér. Engu að síður langar mig til að deila skemmtilegustu klúðrunum í dag. Bara af því að þau voru svo mörg og áberandi í röð.

Alltaf gaman að þessu...

10.07.2008 | ONYX II

Pointið með þessari síðustu færslu var að sjálfsögðu að vekja máls á eftirfarandi spurningu:

Man einhver hvað hinir gaurarnir í Onyx, fyrir utan Sticky Fingaz, heita?
08.07.2008 | ONYX
xyno style
(This one is for Sixx)
08.07.2008 | BS er nýja tískueiturlyfið
BS junkie

Maðurinn á myndinni til vinstri er seinasta fórnarlamb nýja tískueiturlyfsins BS.

BS er hættulegra en mörg/öll eiturlyf í heiminum, samankomin í krakkpípu frá Þriðja ríkinu. BS, hefur eyðilagt mörg líf og rústað fjölskyldum. Algengt er að notendur selji líkama sinn og sál og verði almennt ömurlegir og glataðir.

BS seytir endorfíni út í hausinn á fólki og fær það til að upplifa mikla vellíðunartilfinningu. En niðursveiflan er aldrei langt undan! Aukaverkanir eru m.a.: niðurgangur, ógleði, harðlífi, hitaköst, blæðingar úr augum og endaþarmi og hárlos/vöxtur. Niðursveiflur valda oft geðhvörfum, þunglyndi, sálfræði eða gleði. Einnig geðveiki eða ekki neinu.

Notendur gera hvað sem er til að forðast niðursveiflur. Algengt er að notendur gerist boðflennur í barnaafmæli, ráði sig í vinnu sem trúðar, eða leiðist út í vændi og innbrot, eða ekki.

Nei þýðir NEI, BS er ekki TÖFF!

03.07.2008 | Dead Souls
iancurtis1

Einmana? Ekki jafn mikið og þessi þunglyndi gaur.

Jafnvel spurning um að tala um Atrocity Exhibition?

01.07.2008 | Fuck'em if they can't take a toke!
marley bob1

Nú hef ég í gegnum tíðina oft orðið var við allskyns þversagnir og misræmi í kringum mig, sem og sjálfsagt orðið sjáfur uppvís að einhverskonar tvískinnungi einhverntíman á lífsleiðinni, eins og flestir.

Sömuleiðis hef ég mínar skoðanir á reykingabönnum, og öðrum boðum og bönnum, en það væri efni í annan pistil. Hver veit? -Kannski nenni ég að festa það á blað við tækifæri.

Þá hef ég einhverjar skoðanir, sem ég nenni ekki að útlista hér, á eiturlyfjum og allskyns útúrdúrum sem tengjast þeim og því lagalega umhverfi sem er í kring um þau.

Eitt þykir mér þó hreint út sagt ótrúlegt og brjálað, og það vill svo til að það dregur saman alla þessa þætti og giftir þá í ótrúlegri kosmískri-íróníu.

Og það er eftirfarandi:

Hollendingar hafa tekið upp reykingabann á kaffihúsum, börum og skemmtistöðum. Þetta bann nær þó einvörðungu til tóbaks. Þar af leiðir að fólk getur enn setið og reykt sig mellu-freðið á hreinum skúnki, en guð forði því (og öllum í kringum það) ef það skyldi kveikja sér í sígarettu, eða jafnvel tóbaksblanda jónuna.

M.ö.o.:

Sígaretta: "Fokkaðu þér hálvitinn þinn! Þú ert að menga og eyðileggja fyrir okkur öllum! Kúkhaus!"

Spliff: "Æjæjæjæjæ. Ertu að æla útum allt af því að þú ert túristi sem getur ekki höndlað þennan pótent lort óblandaðan? Og bara svo ég gleymi ekki... takk fyrir að blása THC ofl. í andlitið... og matinn minn... eða mögulega annað sem tengist minni persónu."

Ég veit hreinlega ekki...

Það sem mér þykir samt jafnvel athyglisverðast, eru hugmyndir heilbrigðismálaráðherrans, Ab Klink:

"The health minister, Ab Klink, said the law would stay, arguing that as well as helping to improve people's health it might help to stamp out idleness. "Consumers who spend the whole day hanging out in coffee shops will find other things to do," he said." [áherslur mínar]

Hmmmm.... Fyrir utan að geta ekki annað gert en að sjá æpandi sjálfsblekkinguna og faulty lógíkina, verð ég að spyrja: "Hvenær í andskotanum varð það undir duttlungum stjórnmálamanna komið hvað fólk gerir í sínum frítíma!?!"


Getum við svo farið að hætta að haga okkur og löggjöfinni eins og bjánar?

30.06.2008 | For your consideration and conCERN
CERN CMS 140X84

Undanfarið hafa vísindamenn allstaðar að úr heiminum verið að vinna að blelluðustu, dýrustu og mest "baller" eðlisfræði tilraun sem hefur verið dreymd upp af nokkrum manni. Saman eru þeir komnir í Cern í Sviss og eru búnir að grafa sér hringlaga moldvörpugöng undir fótum grunlausra belja og sauða (ekki svartra sauða þó).

Af hverju, spyr maður sig, eru allir þessir gáfuðu menn búnir að hafa fyrir því að grafa öll þessi göng og fylla þau með brjáluðum myndavélum og járnrusli sem maður sér bara í ótrúlega framsýnum framtíðar-bíómyndum?

Svarið er mjög einfalt. Þessir vísindamenn ætla að reyna að endurskapa upphaf alheimsins (nokkurnvegin) ofan í göngunum og sjá hvað gerist. Allt þetta ferli felur í sér fullt af geislum, "guðs-frumeindum", svartholum og allskonar brjáluðu nörda-dóti.

Bíddu... Var einhver að taka eftir því sem ég segi!?!

ÞEIR ÆTLA AÐ ENDURSKAPA UPPHAF ALHEIMSINS OFAN Í NEÐANJARÐARLESTARGÖNGUM Í SVISS!!!

Ohhh Shit!!!

Ég verð að segja að mér finnst þetta svalara en brauðristavél, internetið og plakat af Albert Einstein samanlagt.

Eflaust væru margir hræddir við það að einhverjir menn séu að fikta með geisla og svarthol ofan í jörðinni í Sviss. Þegar allt kemur til alls eru sennilega fáir sem að vilja enda líf sitt á því að sogast inn í nýja vídd og bráðna og verða að hesti eða rækju. Ég segi hinsvegar að áhættan við að sogast út úr heiminum (sem er óneitanlega frekar röffaður dauðdagi) sé klárlega þess virði þegar það kemur að því að eiga fáránlega töff og svala græju sem tekur meira pláss en megnið af neðanjarðalestarkerfi Lundúna og heitir ógeðslega töff nafni (Large Hadron Collider) og býr til Alheima.

Þar fyrir utan treysti ég þessum gaur. Hann virðist vita hvað hann er að tala um.

Sjá brjálaðar myndir af græjunni hér


Atlas.article

ATLAS detector. Hluti af LHC-inum (Large Hadron Collider) í Cern, Sviss.

CERN EX 0703032 36CD077 7306

Skynjari sem kallast Alice (A Large Ion Collider Experiment) – einn af fjórum risavöxnum blell-skynjurum sem eru staðsettir með ákveðnum millibilum um hin hringlaga gangakerfi LHC.

CERN EX 0706038 36CD220 4902

Atlas (A Toroidal LHC ApparatuS) er brjáluð digital myndavél sem á að taka myndir af þeim 600 milljón samstuðum milli prótona sem LHC (Large Hadron Collider, ekki spurja mig hvað það þýðir) getur sent henni á hverri einustu sekúndu.

26.06.2008 | I've made a huge, tiny mistake!

Ohhhh-my-friggin'-GOD!!!!

arresteddevelopentmovie
24.06.2008 | Skólavörðustígs-drami

Það hefur nokkuð verið um það rætt í hversdagspressunni hversu slæm áhrif framkvæmdirnar á Skólavörðustíg virðast hafa á rekstur smá(sölu)fyrirtækja við götuna.

Vinsælast er í þessum "human interest" greinum, að finna til verslunareiganda, helst einhvern sem verslar með matvöru (sem þarf að afskrifa þegar enginn kemur að kaupa hana) og fá hann til að velta sér upp úr því hvað veltan hefur minnkað.

Nú er ég reyndar mjög sympatískur gagnvart kaupahéðnum á Skólavörðustíg. Myndi sjálfur enganveginn vilja vera þarna með rekstur við þessar aðstæður.

Eitt vekur þó ómælda forvitni mína. Í þessum greinum er undantekningalaust alltaf rætt við Eggert Ólaf Jóhannsson, betur þekktan sem Eggert feldskera. Eggert vill meina eins og kollegar hans að umsvifin hjá honum hafi dregist verulega saman undanfarið.

Hver kaupir minnkapelsa[minkapelsa] í Júlí[júlí]!!!

Það er greinilega meira af "seriously-baller-shit" liði hérna í Reykjavík en ég hélt. Og nú getur ekkert af þessu fólki feed-að óseðjandi pelsa-hungur sitt á Skólavörðustíg lengur!!! Ohhh, shit!!!

24.06.2008 | Tilvistarkreppa

Vá, en ótrúlega sorry og vænisjúkt myndband. Meira af því sama hér.

Af hverju eru Ameríkanar svona obsessed með það að Evrópa hati þá?

Og á sama tíma svo hræddir við Evrópusambandið?

24.06.2008 | GymTASTIC
antiamerican2

Smá must see follow-up clip úr Gymkata. Standup comedy don't come this good!!!

Just a little anti-american sentiment...

23.06.2008 | GYMKATA
gymkata

Hinn góði herramaður Árni Kristjánsson benti mér nýverið á eina mest absúrd snilld sem ég hef á ævi minni fengið veður af. Snilldin sú, er kvikmyndin Gymkata.

Gymkata gengur apparently út á það að ungur maður þarf að beita snilligáfum sínum í Karate annarsvegar, og fimleikum hinsvegar, til þess að koma því í kring að heit ósk hans um að koma upp ratsjárstöð í smáríkinu Parmistan rætist. Hasar og hættur fylgja í kjölfarið og ekki er allur maðkur í mysunni sem sýnist.

Klárlega er þetta ótæpileg snilld og vil ég benda fólki á að fylgjast með síðunni hans Árna í von um umsögn, en hann ætlaði að leggja í að horfa á og meta þessa kvikmynd í þessum skrifuðu orðum.

20.06.2008 | mlb.isp

Mbl.is slær í gegn enn eina ferðina.

Seriously, nú skil ég vel að ein og ein innsláttarvilla geti slysast inn þegar menn eru að flýta sér að vera fyrstir með fréttirnar, en heilu óskiljanlegu, þversagnakenndu málsgreinarnar á fætur annarri?

Eru menn almennt hættir að hafa nokkurn áhuga á ritstjórn í íslenskum fjölmiðlum?


Úr einni og sömu fréttinni á mbl.is í dag:

"Hann getur varla opnað lófana þar sem móðir hans hélt þeim á sjóðandi heitum eldavélarhellum og með brotna tönn með óvarða taug.
...
Ásaka borgaryfirvöld félagsmálayfirvöld um vanrækslu þar sem ekki var grennslast fyrir um hagi drengsins fyrr en upplýsingar höfðu borist um slæma meðferð móðurinnar fyrir einhverju síðan.
...
„Ég hef aldrei á ævi minni sé[sic] nokkurn með áverka sem þessa á lífi,"
...
Símtalið sem barst neyðarlínunni þann 4. júní var ekki það fyrsta sem barst vegna drengsins og er nú unnið að rannsókn á því hvers vegna ekki var brugðist við fyrr en fyrra símtalið kom í nóvember 2005, eða fyrir 2,5 ári."

Hér kýs ég að líta fram hjá misræmi í kapítalíseríngu á orðinu Neyðarlínan og undarlegri þrálátri hneigð að því að skrifa tvö og hálft ár sem 2,5 ár.

(Auðvitað geri ég mér grein fyrir því að fyrr en í þessu samhengi á að vera sundurslitið og lesast fyrr, en... Það bara virkar engan vegin þannig þegar maður les textann.)


Hér er svo úr annarri skemmtilegri frétt:

Barnið var síðan afhent foreldrum sínum sem tóku efir[sic] lífsmarki hjá því er þau fóru með það til greftrunar. Talið er að rekja megi atvikið til þess að barnið hafi verið undir áhrifum sterkra lyfja, sem móður þess var gefið til að reyn[sic] að koma í veg fyrir ótímabæra fæðingu þess, er það fæddist.

13.06.2008 | Arnaldur think review funny
hulk12

Hahahahahha...

Er þetta mögulega besta kvikmyndagagnrýni sem hefur verið skrifuð?

28.05.2008 | BJAMM-BJAMM, muthafucka!!!
bjamm1

Einhverra hluta vegna finnst ákaflega mörgu fólki sem ég ræði við, orðið "DJAMM" ekki vera að virka. Reynar finnst þessu fólki orðið "DJAMM" vera óhóflega glatað. Máli mínu til stuðnings vísa ég í ótal samræður við fólk svo og skriflega heimild hér.

Til að byrja með var ég mjög sammála þessu fólki og keypti "and-djamm" orðræðuna nokkurnvegin wholesale. En þá fóru að renna á mig tvær grímur. Hvað hefur "DJAMM" nokkurntíma gert mér? Er "DJAMM" ekki bara nokkuð gott orð?

Ég á góðar minningar um "DJAMM". Gullnar setningar eins og "Hann DJAMMAR MEÐ fólkinu" hafa gætt lífi mínu miklum hlátri.*

*(Haft eftir einhverjum mjög freðnum manni um einhvern skíta Ibiza-plötusnúð og framkomu hans gagnvart áheyrendum; lesist með fötu-þrykkingar-rödd.)

Í raun er það eina neikvæða, eða hlutlausa sem ég get sagt um djamm, að það minnir pínkulítið á þunglynt bílskúrsband sem fer að rífast yfir textasmíð, sultu eða jafnvel það að það má lesa "DJAMMA" sem DJ-Amma. Sem er ekki kúl.

Við skulum samt gera okkur grein fyrir því að "DJAMM" hlýtur alltaf að vera mun öflugara orð heldur en:
  • "Tjútta" (sem hljómar annars vegar eins og "tútta" og hinsvegar eins og eitthvað glatað sem gömul manneskja myndi segja.)
  • "Skralla" (sem hljómar eins og eitthvað sem mjög villuráfandi manneskja myndi gera og er of líkt því að "tralla" sem er glatað.)
  • "Kíkjút", "Farúd", "tjekkút" (öll léleg og ambigous og hjóma eins og bæir í Kúrdistan.)

Í ljósi þess þó að almenn ósætti virðist ríkja meðal fólks um hvað kalla megi almenna skemmtun í landinu, ákvað ég því að reyna að finna eitthvað þjóðlegt en þjált og töff orð.

BJAMM!!!

Upphaflega varð mér hugsað til Íslendingasagnanna, en þar tóku menn oft ærlega á því. Kom þá að sjálfsögðu upp Bjarmalandsför Egils Skallagrímssonar. Mér datt í hug að stytta það í bjarm en það er að sjálfsögðu frekar lame, þar sem það hljómar eins og bjarmi eða jarm.

"BJAMM" aftur á móti er skothelt og því tilkynni ég stolltur að nýja orðið yfir að skemmta sér er, að "BJAMMA".
  • "BJAMM", tengist Bjarmalandsför órjúfanlegum böndum.
  • "BJAMM", hljómar sjúklega mikið eins og BAMM, sem er klárlega mjög svakalegt hljóð, sem kemur meðal annars þegar Batman lumbrar á illmennum.
  • "BJAMM"felur í sér bj- líkt og í bjór
  • "BJAMM"felur í sér skammstöfunina BJ, sem er mjögt crazy og kynferðislegt (þó að amma fylgi reyndar með, sem er frekar sóðalegt.)
  • "BJAMM"hljómar mjög svipað og "djamm", sem ætti að gera það mjög notendavænt fyrir venjulegt fólk, sem hefur þannig séð ekkert á móti orðinu “djamm”.

BJÖMMUM saman fólk! BJÖMMUM inn í eilífðina!

28.05.2008 | Grinderman
grindermancover1

Mig langar til að benda fólki á að platan Grinderman, með samnefndri hljómsveit er awesome to the max, og sérstaklega næstsíðasta lagið, Rise, sem ég er búinn að vera með á heilanum í 4 daga núna.

Grinderman er ekki plata sem maður fílar strax. Hún er hrá og óvægin, en svo byrjar maður að heyra hvað hún er ótrúlega mögnuð og töff og eggloss-hvetjandi. Svoleiðis plötur eru bestar. Eins og matur sem maður hefur eldað sjálfur. Það er nokkuð fyrir því haft, en ofboðslega gott, með öllu sem manni finnst best, þegar maður sest loksins niður og gæðir sér á honum.

22.05.2008 | Million Dollars (AUD)

Þetta er of fyndið. Vinsamlegast tékkið á commentunum neðst í greininni.

21.05.2008 | 氷の 国 - アイスランド

Ísland

Hefur fólk actually einhverntíman spáð í hvað þetta er mikið AD&D-bull-nafn á landi?

19.05.2008 | Meeeee-ga blell!

Eru uk-crime síðurnar á guardian eftil vill skemmtilegasta lesning í heimi?

Þessi frétt er allavega meee-ga frábær.

09.05.2008 | The Wedding Photographer

Ég er farinn til Sydney, Ástralíu, að vinna fyrir mér sem ljósmyndari í brúðkaupum...

07.05.2008 | In Pizza We Crust
trustedpizza

Í gær borðaði ég pizzu. Eftir að hafa velt því fyrir mér alveg óheyrilega, ótrúlega lengi, hvað ég ætti að fá mér á pizzuna, endaði ég á því að fá mér mjög klassíska (og borderline boring) Pepp&Svepp. Reyndar fékk ég mér rjómaost og svartan pipar í ofanálag. (Eða kannski ofanálegg.)

Nú, aftur á móti, vaknar hjá mér spurningin: Hvað er ultimate topping-combó á pizzu?

Ég held að það sé kominn tími til að útkljá þetta mál í eitt skipti fyrir öll.

Hjálpið mér og ykkur sjálfum! Finnum saman pizzu guðanna!

05.05.2008 | CANTAT-3 dettur út þegar Chuck Norris tengist internetinu

Tíhíhí, þetta finnst mér gaman.

Íslenskir Chuck Norris brandarar...

05.05.2008 | The Devil's Advocate II

Takk, takk, takk...

(Tileinkað A)

29.04.2008 | Veröld/Fólk - Showbiz101

Arnaldur er Draumaprins Freyju

Arnaldur Grétarsson, sem fólk man ef til vill eftir úr auglýsingaherferðum Glitnis, lét hafa eftir sér inni á kaffhúsi að honum þæti lakkrís-súkkulaðið Draumur frá sælgætisgerðinni Freyju, vera ómótstæðilegt.

"Ég borða svo mikið af Draumi að ég ber ábyggliga ábyrgð á svona 2 prósent af heildar sölu hans," sagði Arnaldur, sem hefur ítrekað sést lauma í sig Draumi.

"Það er bara eitthvað sem er ferlega gott við þessa blödnu," bætti Arnaldur við að lokum.

29.04.2008 | Meistaramatur

Sniðug undirsíða...

29.04.2008 | The Devil's Advocate

Ég verð að segja að mál austurríska geðsjúklingsins, sem feðraði barnafjöld með fangni dóttur sinni, og hefur verið mikið á döfinni undanfarið, hefur vakið hjá mér mikinn óhug, eins og sennilega hjá flestum. Almennt verð ég að segja að fréttir af þessu tagi komi nú ekki sérstaklega mikið við mig, en þetta mál hefur vissulega gert það, og eiginlega ekki síður hvað fjölmiðlar hafa kosið að gera sér mikinn mat úr þessum skelfilegu atburðum.

Nóg um það.

Það sem mér finnst hinsvegar athyglisvert á þessu stigi málsins er að hugsa til þess hvaða lögfræðingur á eftir að vilja taka að sér málið og reyna að veita manninum sanngjarna málsmeðferð. Ekki er það hlutskipti sem ég gæti mögulega ímyndað mér. Ennfremur verður merkilegt að sjá hverskonar dómur verður upp kveðinn í málinu, þar sem það er klárlega svo mjög úr samhengi við allt sem getur talist eðlilegt eða skiljanlegt.

28.04.2008 | Niceland-punktur-is

Athyglisvert þykir mér að skoða hvernig lénið iceland raðast niður á netinu.

Ef við skoðum iceland.is, má sjá að það er gátt á vegum Utanríkisráðurneytisins, og jafnvel einhverskonar systursíða, eða undirsíða iceland.org

sem er frekar skrýtið, en fair enough...

En hvað þá með iceland.net? Jú, það redirectar manni til ISNIC einhverra hluta vegna, sem er vægast sagt mjög undarlegt.

Skoðum nú iceland.com (sem að vísu vísar til commercial website). Þar virðist vera eitthvað (skrítið?) sjálfstætt framtak með landkynningu að sjónarmiði og maður verður strax sjálfkrafa mjög skeptískur.

Hefði ekki verið eðlilegra, fyrst menn eru að vesenast með að reyna að tileinka sér iceland-lén að kaupa þau bara öll (eða þau algengustu) og vísa þeim öllum á einhverja upplýsingagátt á vegum hins opinbera sem gæti svo leitt mann inn á undirsíður, eða aðrar skyldar síður? Sjálfum finnst mér allavega ekkert sjálfgefið að iceland.org sé upplýsingasíða um diplómata mission-ir Íslands til útlanda, nú eða að iceland.isgateway fyrir Utanríkisráðurneytið. Og persónulega finnst mér þetta með iceland.net bara skrýtið.

Það sem ég myndi allavega giska á að væri á öllum þessum iceland-lénum væri upplýsingagátt á vegum ríkisins.

En bíðum nú við... einhver virðist hafa fengið þessa hugmynd líka. Ef við lítum á island.is, (sem gæti allt eins verið fyrir plötuútgáfufyrirtæki, ferðaskrifstofu, eða bara eitthvað) má sjá að þar er svona upplýsingagátt til þjónustu reiðubúin fyrir hinn almenna borgara.

En hvað ef ég stimpla inn ísland.is (með sér-íslensku -Í), eins og mér finnst rökrétt, þar sem að þessi upplýsinga gátt er auglýst verandi þar, og það meikar líka bara sense, þar sem ísland er meira specific og réttara, fyrst ISNIC var að leyfa sér-íslenska stafi á annað borð. Þá sprettur fram þessi skemmtilega stopp síða sem er yndislegur putti í fésið á ríkisstjórninni og ISNIC, fyrir að vera svona óskipulögð og frek.

Allt í allt er þetta hið bjánalegasta mál, og ég nenni ekki að skrifa um það meira (sérstaklega í ljósi þess hvað það er confusing að linka á svona mörg keimlík lén í einu).

28.04.2008 | Tempelhoff

Mér finnst fráleitt að það skuli eiga að loka Tempelhoff-flugvelli. Tempelhoff-flugvöllur er eitt af fáum mannvirkjum sem eftir standa í Berlín sem byggingarsögulegt dæmi um nýklassískan byggingarstíl fasista, og ennfremur sennilega eina mannvirkið sem eftir stendur, sem Albert Speer kom nálægt hönnuninni á.

Þar fyrir utan finnst mér ekki hægt að líta framhjá sögulegu gildi vallarins þegar litið er til þess stórkostlega hlutverks sem hann hafði í loftbrúnni til Berlínar á árunum 1948-1949.

...og það á 60 ára afmæli loftbrúnnar. Svei!

22.04.2008 | Tulip rage!!!
tulips

Er þetta mögulega fyndnasta og jafnframt ítarlegasta og smámunasamasta glæpa-frétt sem hefur verið birt?

Flower power-trip!

17.04.2008 | An economic canary-in-the-mineshaft

Mjög skemmtilega skrifuð grein um efnahagsástandið hérna.

17.04.2008 | Moldvarpan

Apparently hefur maður sem gengur undir nafninu "moldvarpan" verið dæmdur til að greiða skaðabætur út af jarðgöngum sem hann gróf á 40 ára tímabili undir húsinu sínu. Þetta má lesa um hér.

Hverskonar ofur-Batman leikur er í gangi? Ég verð reyndar að segja að ég væri geðveikt til í að hanna og eiga flottar katakombur undir húsinu mínu, og vera með fellihurðir og mínótára í leyniherbergjum.

17.04.2008 | Skortstöðubarónar

Nýlegar fréttir benda til þess að framkvæmdastjórar vogunarsjóða hafi slegið tekjumet í ár.

Úr þessari frétt á mbl.is:

Einn vogunarsjóðsstjórinn, maður að nafni John Paulson hjá vogunarsjóðnum Paulson & Co., fékk greitt hvorki meira né minna en 3,7 milljarða dollara í laun á árinu 2007, samkvæmt frétt á fréttavef bandaríska dagblaðsins New York Times. Það svarar til um 275 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi. Það er liðlega 20% af vergri landsframleiðslu hér á landi á síðasta ári.

Það sem ég velti fyrir mér í tengslum við þetta er þá hvort menn séu að greiða tekjuskatt af þessum upphæðum? Er átt við launagreiðslur, eða fjármagnstekjur? Ég skil þessa frétt ekki.

Allavega get ég staðhæft hér að ef ég hefði árstekjur upp á 275 milljarða, í eitt ár, þá myndi ég halda blellaðasta partý allra tíma.

Nokkur stikkorð:

  • Bleikir kóalabirnir
  • Hjúkkulaðigosbrunnar
  • Svifbrettin úr Back to the Future
  • Og að sjálfsögðu brjálaðir náungar (í fótjárnum) að skenkja mjög brjálaða náunga.

Mjög basic.

(Ég vona að John Paulson haldi svona partý. Annars er hann glataður.)

15.04.2008 | Íslenskt, já takk!

Þetta er nú aldeilis skemmtileg nýjung fyrir landann.

Ég vil kalla hana Kötu frumkvöðul í vöruþróun innan upplýsingatæknigeirans á Íslandi.

Er hér e.t.v. komin lausnin á landsbyggðarflóttanum?

VIÐBÓTARUPPFÆRSLA

Ég var bara að átta mig á því hvað það er mikil og óþægileg sjálfsblekking falin í því að self-apply-a titilinn prinsessa þegar maður er að fróa sér fyrir framan vefmyndavél.

Þetta minnir mig á tvennt:

  • Indversku prinsessuna Leoncie
  • Setningu úr einni af minni eftirlætis kvikmyndum, Pusher:
    "Jeg er ikk' en luder... Jeg er en champagne-pige!"
07.04.2008 | Domo Arri-Gateux
britstormtrooper

Þetta finnst mér nú dálítið snúið mál.

Ég er nú samt einhvernvegin á því að þessi hönnuður eigi að fá að pimpa sinni hönnun óáreittur. Mér þætti það geðveikt glatað ef að ég hefði búið til einn af íkónum 20. aldarinnar með svita, blóði og tárum og yrði svo lögsóttur fyrir að reyna að selja sköpunarverk mitt.

Reyndar er nú pínku augljóst að gæinn er að tengja sig óþægilega mikið við myndina, þannig að maður skilur Lucas. En samt. Kommon...