Árni Kristjánsson benti mér nýlega á einu gall-súrustu heimildarmynd seinni tíma.
My Fake Baby fjallar um nokkrar konur (af mörgum) í Bretlandi sem stunda það að kaupa sér rándýrar dúkkur sem líta út fyrir að vera raunveruleg börn. Svo eyða þær ennþá meiri pening í að klæða "börnin" og afskaplega miklum tíma í að fara út með þau í gönguferðir, baða þau, greiða þeim og monta sig af þeim eins og um alvöru börn væri að ræða.
Myndin kannar svo alls kyns alternate motíf sem að hinar og þessar konur hafa fyrir þessu blætiseðli.
Mæli með að fólk investi 45 mínútum í að tékka á þessu...
Fucked up.
Í þessu samhengi get ég líka mælt með myndinni Guys and Dolls (er á Google Video), en það fjallar um einhleypa gaura sem tileinka líf sitt fullsize brúðum. Alveg fáránlegt dæmi.
RealDoll junkies? It's old news. Þessir sveittu dúkkuríðandi nördar hafa verið með síður tileinkaðar dúkkunum sínum síðan a.m.k. 1996.
The password to post a comment is:
(Sveinbjörn)