Results for 2008-02

25.2.2008 | Til hamingju Ísland...

champagnee1

Arrakis er kominn í lag!!!

Í tilefni af því hef ég hugsað mér að gera smá cosmetic breytingar á síðunni á næstunni.

(Ef til vill taka sumir eftir vísuninni í hana Sylvíu hér að ofan, en hún hefur ekkert með svikráðin sem viðhöfð voru hér um daginn þegar Dr. Spock var rændur sigrinum.)


2 comments
(steini)



25.2.2008 | Engar fréttir - góðar fréttir

Færslan hér að neðan var skrifuð fyrir nokkrum dögum, en mér tókst ekki að pósta henni fyrr en nú. Tímdi samt ekki að henda henni, hér er margt merkilegt og sniðugt...

Ég hef farið offari í fréttafíkn minni undanfarið og neyðist hreinlega til að deila með fólki.

Það er gaman að sjá hvað vísir hefur ákveðið að taka bókstaflega afstöðu í þessu máli.

Hér er sama fréttin frá Guardian.

Annars verð ég að viðurkenna að ein athyglisverðasta fréttin í vikunni hlýtur að vera frá Bresku-Kólumbíu, Canada. Ég veit satt best að segja ekki hvort er betra, fréttin eða spjallþráðurinn.

Annars er þetta náttúrlega óhugnanlegasta og geðbilaðasta fréttin. Ég verð að segja að mér finnst málflutningur mannsins vafasamur hið minnsta, hvort sem hann er sekur um morðið eða ekki.


1 comments
(Hildur)



19.2.2008 | Splassss!

Var að ljúka við að lesa eina þá strembnustu og bjánalegu umræðu sem ég hef augum litið hérna. Það er þó rétt að taka það fram að ómálefnalegheitin og málfarið er með ólíkindum bjánalegt og svo lélegt af sumra hálfu að merkilegt hlýtur að teljast.

Eina mesta athygli mína vakti þó hlekkur á þetta partývídjó. Þvílíkur klassi. Maður spyr sig bara hvað maður var að gera þetta kvöld, fyrst maður skellti sér ekki í splass-partí.

Vert að minnast á Gunna Hrafn, sem leiddi mig að þessum skrifum.




11.2.2008 | Aulisíngar

Eins og alger bjáni, er ég búinn að vera að glápa á sjónvarpsauglýsingar af fúsum og frjálsum vilja á netinu. Fann þó tvær sem mér fannst frekar áhugaverðar.

Ford Orcherstra Ford lét hanna hljóðfæri úr bílapörtum fyrir þessa Ford focus auglýsingu. Mér finnst þetta frekar snazzy, og stílhreint. Einhvernveginn verð ég þó að efast um að þetta sé ekki dubbað. Eða að þessi hljóðfæri actually hljómi eins og eitthvað vitrænt.

Adi Dassler History Þetta er svo smá sögustund með Adi Dassler, stofnanda adidas. Ég hef mjög lengi verið sökker fyrir alvöru hand unnu stop-motion og sömuleiðis adidas-skóm. Þessi auglýsing kemur skemmtilega fagmannlega inn á bæði svið.




5.2.2008 | Man Cold

Það hlaut eitthvað að vera.

Þetta er klárlega málið...


1 comments
(fridrik st.)



5.2.2008 | The Sleeper Must Awaken

Sökum þess að arakkis er í tómu hakki nenni ég ekki að pósta neinu hérna fyrr en hann er kominn í lag.

Það litla sem ég set inn verða berstrípaðar, myndlausar, basic textafærslur.

Þessi klippa með standup grínistanum Louis CK finnst mér vera voða fyndin.

Ég var að komast að því aftur núna að Nirvana er frekar skemmtileg hljómsveit. Það var ánægjulegt eftir að hafa ekki hlustað á þá í nokkur ár. MTV Unplugged er náttúlega bara tær snilld.

Annars er bara almennt kominn tími á að fara að vanda sig við hlutina, og hætta að bulla.