Eins og alger bjáni, er ég búinn að vera að glápa á sjónvarpsauglýsingar af fúsum og frjálsum vilja á netinu. Fann þó tvær sem mér fannst frekar áhugaverðar.
Ford Orcherstra Ford lét hanna hljóðfæri úr bílapörtum fyrir þessa Ford focus auglýsingu. Mér finnst þetta frekar snazzy, og stílhreint. Einhvernveginn verð ég þó að efast um að þetta sé ekki dubbað. Eða að þessi hljóðfæri actually hljómi eins og eitthvað vitrænt.
Adi Dassler History Þetta er svo smá sögustund með Adi Dassler, stofnanda adidas. Ég hef mjög lengi verið sökker fyrir alvöru hand unnu stop-motion og sömuleiðis adidas-skóm. Þessi auglýsing kemur skemmtilega fagmannlega inn á bæði svið.
The password to post a comment is: