Results for 2008-03

24.3.2008 | Wat a wonderful day


2 comments
(Sindri)



23.3.2008 | Afmæli v. 2.7.0

bdaycake23

Já, þá er búið að mæla 27 stykki af kallinum. Til hamingju með afmælið elsku barnið mitt...

Látið nú heyra í ykkur. Það er svo glatað að: a) eiga afmæli á Páskadag, b) þurfa að vinna á afmælinu sínu.


11 comments
(Sindri)



22.3.2008 | Low Morale

lowmorale2

Sjitt, hvað ég finn mig í þessum frábæru flash teiknimyndum...

Low Morale er hugverk Laith Bahrani og margir hafa eflaust séð þessar myndir. (Get ekki séð betur en að þetta sé frá 2005) Allavega finnst mér þetta snilld.

Sömuleiðis er Monkeehub síðan hans, sem er nú meira einhverskonar portfolio, líka ótrúlega röffuð, ef fólk vil tékka á því.

Kannski dáldið cutesy á köflum en annars einfalt, stílhreint og vel útfærðar pælingar. Svona er alltaf gaman að sjá.




22.3.2008 | Pelosi, Lama, Ali og Pearce Systur

Djövulli er ég sáttur við Pelosi núna. Það verður að gera eitthvað í þessu Tíbet máli. Sem leiðir okkur klárlega að þessum áhugaverða pistli eftir blaðamanninn Tariq Ali, um hvernig mótþrói og aktívismi hefur æxlast undanfarna áratugi

atomfilms1

En svona á léttari nótunum, þá villtist ég óvart inn á AtomFilms áðan sem ég stundaði frekar grimmt hér á árum áður en hef ekki heimsótt lengi (einhverntíman var ég nú skráður notandi). Þar fann ég þessa skemmtilegu Aardman stuttmynd sem er alveg þess virði að kíkja á í páskadepurðinni.

(Allavega tékka á atomfilms ef maður er að fíla stuttmyndir, sérstaklega anímeraðar stuttmyndir.)




20.3.2008 | Randver í myntver?

kaupthingcleesepic1

Ætli Randver verði einn og óstuddur í næstu auglýsingaherferð Búnaðarbankans?




Cleese er orðinn dýr.


4 comments
(Sveinbjörn)



20.3.2008 | The Other

otherlanguage1

Ég held að framtíðin liggi í því að læra Other. Mikill efnahagslegur uppgangur þar.


1 comments
(Eiki)



18.3.2008 | Do you know Juno?

juno1

Hunter: All right mate! What's that yer watching?

Arnaldur: Ehhh, Juno. D'you know it?

Hunter: Juno... all right...

Arnaldur: Yeaahh...


6 comments
(Arnaldur)



15.3.2008 | Hin ALVÖRU Biblía 21. aldar

biblag2

Ég vil leiða athygli þess fólks, sem hefur ekki ennþá séð ljósið, á samstarfsverkefni okkar Árna. Það er stórkostleg ný biblíuþýðing eða...

Hin ALVÖRU Biblía 21. aldar

Ég hef ekki ennþá nennt að laga þetta að síðunni minni meðan ég er ennþá að plotta cosmetískar breytingar.



Í upphafi þýddu Árni og Arnaldur bókina góðu upp á nýtt og það var húrrandi mergjað...


1 comments
(Sveinbjörn)



9.3.2008 | Just for a LITTLE fun

Sem einhverskonar svar við mindblowing brain-crushing clippunni sem Árni póstaði langar mig til að skella þessari inn þó að margir hafi eflaust séð hana í tengslum við hina.

Wierdness


4 comments
(Hildur)



8.3.2008 | Bóndafrýr

bondakonur1

Ég var að skoða Kastljós þáttinn góða þar sem hún Jóhanna Vilhjálmsdóttir var að deila gamanefni af netinu með þjóðinni.

Þá rak ég augun í það á RÚV-vefnum að sá hluti þáttarins sem á eftir fór var kallaður: Bóndakonur sem eru tvíburar, heimsóttar. Nú ætla ég ekki að þykjast vera allt of viss, en mér finnst eins og þetta ættu að vera bændakonur. (Endilega útdeilið skoðunum.)

Alltént minnir þetta mig á það þegar kennari í HÍ lét upp úr sér setninguna: "Þetta er bara eins og með bóndafrýr hér á Íslandi...", sem ég skildi aldrei fyrr en margt löngu síðar.

Annars finnst mér þessi gaur alveg ótrúlega mikill prakkara-lómur, og líka pínku vænisjúkur og klikkaður.


4 comments
(Sigurgeir Þór)



7.3.2008 | Keeping the books

Bookkeeping er ferlega bjánalegt orð.


1 comments
(Sveinbjörn)



6.3.2008 | Af Bretum, Íslendingum og öðrum kynjakvistum

Ég fann þennan ágæta pistil í gær. Sem ég las hann áttaði ég mig á því að hann hefði alveg eins getað verið skrifaður um Ísland. Í raun er þessi pistill svo viðeigandi um ástandið hér, að ég gleymdi oft að ég var að lesa um eitthvað sem væri bundið við England.

Svona erum við nú öll eins...


1 comments
(Doddi)



5.3.2008 | Fá-Vísir

Af hverju hættir Vísir ekki að fara með endalausar villur og ljúga að mér?

Hér er svæsin frétt úr fortíðinni á vísi.is um nasista Hitler og hjátrú og vitleysu. BRRaaghhh!!! Vitiði til, hvað hann var vitlaus og skrýtinn!

Hér er sama (ítarlegri) frétt á Guardian.co.uk.

Mér finnst ég ekki bara greina stigsmun heldur eðlismun.

Annars finnst mér þetta skemmtilega, barnalega bjánalegt.

Að lokum finnst mér rétt að benda á þessa skemmtilega villandi æsi-svæsnu fyrirsögn hjá mbl.is.

Fréttavaktinni lokið í bili.


2 comments
(Steinn)



4.3.2008 | Vinnubrögð upp á Vísiska vísu

arnaldurbestur1

Það kætti nú óneitanlega litla hjartað að sjá þessa frétt á vísi. Ég er að sjálfsögðu ákaflega ánægður með þennan áfanga og segi hér og nú að þetta er aðeins upphafið að frábærum ferli. Ég vil gjarnan telja að þetta tengist ritstörfum mínum sem hægt er að finna hérna á gegni.


Ef skyggnst er inn í greinina má sjá fara fögrum orðum um ágæti mitt:

arnaldurbestur3


Annars má sjá greinina í heild sinni hérna.