Ég var að skoða Kastljós þáttinn góða þar sem hún Jóhanna Vilhjálmsdóttir var að deila gamanefni af netinu með þjóðinni.
Þá rak ég augun í það á RÚV-vefnum að sá hluti þáttarins sem á eftir fór var kallaður: Bóndakonur sem eru tvíburar, heimsóttar. Nú ætla ég ekki að þykjast vera allt of viss, en mér finnst eins og þetta ættu að vera bændakonur. (Endilega útdeilið skoðunum.)
Alltént minnir þetta mig á það þegar kennari í HÍ lét upp úr sér setninguna: "Þetta er bara eins og með bóndafrýr hér á Íslandi...", sem ég skildi aldrei fyrr en margt löngu síðar.
Annars finnst mér þessi gaur alveg ótrúlega mikill prakkara-lómur, og líka pínku vænisjúkur og klikkaður.
Eru þær ekki bændakonur ef þær eru konur bónda. En þar sem þær hafa báðar starfsheitið bóndar (ekki bændar???) er þetta rétt hjá kastljósi. Þær eru bóndakonur.
Hmm, nema að systurnar séu lesbískar, þá eru þær kannski bændakonur????
Ég vissi líka ekki að það væri hægt að vera með svona litla paranoju. Það er eiginlega ekki hægt að kalla þetta ofsóknaræði, ætti réttara heiti væri ekki ofsóknartjill. Þar sem þetta er svo léttvægt hjá honum. Ekkert CIA eða risa samsæri. Bara einn embættismaður...
The password to post a comment is:
(Sigurgeir Þór)