Djövulli er ég sáttur við Pelosi núna. Það verður að gera eitthvað í þessu Tíbet máli. Sem leiðir okkur klárlega að þessum áhugaverða pistli eftir blaðamanninn Tariq Ali, um hvernig mótþrói og aktívismi hefur æxlast undanfarna áratugi
En svona á léttari nótunum, þá villtist ég óvart inn á AtomFilms áðan sem ég stundaði frekar grimmt hér á árum áður en hef ekki heimsótt lengi (einhverntíman var ég nú skráður notandi). Þar fann ég þessa skemmtilegu Aardman stuttmynd sem er alveg þess virði að kíkja á í páskadepurðinni.
(Allavega tékka á atomfilms ef maður er að fíla stuttmyndir, sérstaklega anímeraðar stuttmyndir.)
The password to post a comment is: