Results for 2008-04

29.4.2008 | Veröld/Fólk - Showbiz101

Arnaldur er Draumaprins Freyju

Arnaldur Grétarsson, sem fólk man ef til vill eftir úr auglýsingaherferðum Glitnis, lét hafa eftir sér inni á kaffhúsi að honum þæti lakkrís-súkkulaðið Draumur frá sælgætisgerðinni Freyju, vera ómótstæðilegt.

"Ég borða svo mikið af Draumi að ég ber ábyggliga ábyrgð á svona 2 prósent af heildar sölu hans," sagði Arnaldur, sem hefur ítrekað sést lauma í sig Draumi.

"Það er bara eitthvað sem er ferlega gott við þessa blödnu," bætti Arnaldur við að lokum.


2 comments
(Doddi)



29.4.2008 | Meistaramatur




29.4.2008 | The Devil's Advocate

Ég verð að segja að mál austurríska geðsjúklingsins, sem feðraði barnafjöld með fangni dóttur sinni, og hefur verið mikið á döfinni undanfarið, hefur vakið hjá mér mikinn óhug, eins og sennilega hjá flestum. Almennt verð ég að segja að fréttir af þessu tagi komi nú ekki sérstaklega mikið við mig, en þetta mál hefur vissulega gert það, og eiginlega ekki síður hvað fjölmiðlar hafa kosið að gera sér mikinn mat úr þessum skelfilegu atburðum.

Nóg um það.

Það sem mér finnst hinsvegar athyglisvert á þessu stigi málsins er að hugsa til þess hvaða lögfræðingur á eftir að vilja taka að sér málið og reyna að veita manninum sanngjarna málsmeðferð. Ekki er það hlutskipti sem ég gæti mögulega ímyndað mér. Ennfremur verður merkilegt að sjá hverskonar dómur verður upp kveðinn í málinu, þar sem það er klárlega svo mjög úr samhengi við allt sem getur talist eðlilegt eða skiljanlegt.


3 comments
(Arnaldur)



28.4.2008 | Niceland-punktur-is

Athyglisvert þykir mér að skoða hvernig lénið iceland raðast niður á netinu.

Ef við skoðum iceland.is, má sjá að það er gátt á vegum Utanríkisráðurneytisins, og jafnvel einhverskonar systursíða, eða undirsíða iceland.org

sem er frekar skrýtið, en fair enough...

En hvað þá með iceland.net? Jú, það redirectar manni til ISNIC einhverra hluta vegna, sem er vægast sagt mjög undarlegt.

Skoðum nú iceland.com (sem að vísu vísar til commercial website). Þar virðist vera eitthvað (skrítið?) sjálfstætt framtak með landkynningu að sjónarmiði og maður verður strax sjálfkrafa mjög skeptískur.

Hefði ekki verið eðlilegra, fyrst menn eru að vesenast með að reyna að tileinka sér iceland-lén að kaupa þau bara öll (eða þau algengustu) og vísa þeim öllum á einhverja upplýsingagátt á vegum hins opinbera sem gæti svo leitt mann inn á undirsíður, eða aðrar skyldar síður? Sjálfum finnst mér allavega ekkert sjálfgefið að iceland.org sé upplýsingasíða um diplómata mission-ir Íslands til útlanda, nú eða að iceland.isgateway fyrir Utanríkisráðurneytið. Og persónulega finnst mér þetta með iceland.net bara skrýtið.

Það sem ég myndi allavega giska á að væri á öllum þessum iceland-lénum væri upplýsingagátt á vegum ríkisins.

En bíðum nú við... einhver virðist hafa fengið þessa hugmynd líka. Ef við lítum á island.is, (sem gæti allt eins verið fyrir plötuútgáfufyrirtæki, ferðaskrifstofu, eða bara eitthvað) má sjá að þar er svona upplýsingagátt til þjónustu reiðubúin fyrir hinn almenna borgara.

En hvað ef ég stimpla inn ísland.is (með sér-íslensku -Í), eins og mér finnst rökrétt, þar sem að þessi upplýsinga gátt er auglýst verandi þar, og það meikar líka bara sense, þar sem ísland er meira specific og réttara, fyrst ISNIC var að leyfa sér-íslenska stafi á annað borð. Þá sprettur fram þessi skemmtilega stopp síða sem er yndislegur putti í fésið á ríkisstjórninni og ISNIC, fyrir að vera svona óskipulögð og frek.

Allt í allt er þetta hið bjánalegasta mál, og ég nenni ekki að skrifa um það meira (sérstaklega í ljósi þess hvað það er confusing að linka á svona mörg keimlík lén í einu).




28.4.2008 | Tempelhoff

Mér finnst fráleitt að það skuli eiga að loka Tempelhoff-flugvelli. Tempelhoff-flugvöllur er eitt af fáum mannvirkjum sem eftir standa í Berlín sem byggingarsögulegt dæmi um nýklassískan byggingarstíl fasista, og ennfremur sennilega eina mannvirkið sem eftir stendur, sem Albert Speer kom nálægt hönnuninni á.

Þar fyrir utan finnst mér ekki hægt að líta framhjá sögulegu gildi vallarins þegar litið er til þess stórkostlega hlutverks sem hann hafði í loftbrúnni til Berlínar á árunum 1948-1949.

...og það á 60 ára afmæli loftbrúnnar. Svei!


1 comments
(Sveinbjörn)



22.4.2008 | Tulip rage!!!

tulips

Er þetta mögulega fyndnasta og jafnframt ítarlegasta og smámunasamasta glæpa-frétt sem hefur verið birt?

Flower power-trip!


1 comments
(Steinn)



17.4.2008 | An economic canary-in-the-mineshaft


10 comments
(Sveinbjörn)



17.4.2008 | Moldvarpan

Apparently hefur maður sem gengur undir nafninu "moldvarpan" verið dæmdur til að greiða skaðabætur út af jarðgöngum sem hann gróf á 40 ára tímabili undir húsinu sínu. Þetta má lesa um hér.

Hverskonar ofur-Batman leikur er í gangi? Ég verð reyndar að segja að ég væri geðveikt til í að hanna og eiga flottar katakombur undir húsinu mínu, og vera með fellihurðir og mínótára í leyniherbergjum.


4 comments
(Arnaldur)



17.4.2008 | Skortstöðubarónar

Nýlegar fréttir benda til þess að framkvæmdastjórar vogunarsjóða hafi slegið tekjumet í ár.

Úr þessari frétt á mbl.is:

Einn vogunarsjóðsstjórinn, maður að nafni John Paulson hjá vogunarsjóðnum Paulson & Co., fékk greitt hvorki meira né minna en 3,7 milljarða dollara í laun á árinu 2007, samkvæmt frétt á fréttavef bandaríska dagblaðsins New York Times. Það svarar til um 275 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi. Það er liðlega 20% af vergri landsframleiðslu hér á landi á síðasta ári.

Það sem ég velti fyrir mér í tengslum við þetta er þá hvort menn séu að greiða tekjuskatt af þessum upphæðum? Er átt við launagreiðslur, eða fjármagnstekjur? Ég skil þessa frétt ekki.

Allavega get ég staðhæft hér að ef ég hefði árstekjur upp á 275 milljarða, í eitt ár, þá myndi ég halda blellaðasta partý allra tíma.

Nokkur stikkorð:

  • Bleikir kóalabirnir
  • Hjúkkulaðigosbrunnar
  • Svifbrettin úr Back to the Future
  • Og að sjálfsögðu brjálaðir náungar (í fótjárnum) að skenkja mjög brjálaða náunga.

Mjög basic.

(Ég vona að John Paulson haldi svona partý. Annars er hann glataður.)


3 comments
(Siggi)



15.4.2008 | Íslenskt, já takk!

Þetta er nú aldeilis skemmtileg nýjung fyrir landann.

Ég vil kalla hana Kötu frumkvöðul í vöruþróun innan upplýsingatæknigeirans á Íslandi.

Er hér e.t.v. komin lausnin á landsbyggðarflóttanum?

VIÐBÓTARUPPFÆRSLA

Ég var bara að átta mig á því hvað það er mikil og óþægileg sjálfsblekking falin í því að self-apply-a titilinn prinsessa þegar maður er að fróa sér fyrir framan vefmyndavél.

Þetta minnir mig á tvennt:

  • Indversku prinsessuna Leoncie
  • Setningu úr einni af minni eftirlætis kvikmyndum, Pusher:
    "Jeg er ikk' en luder... Jeg er en champagne-pige!"

2 comments
(Sveinbjörn)



7.4.2008 | Domo Arri-Gateux

britstormtrooper

Þetta finnst mér nú dálítið snúið mál.

Ég er nú samt einhvernvegin á því að þessi hönnuður eigi að fá að pimpa sinni hönnun óáreittur. Mér þætti það geðveikt glatað ef að ég hefði búið til einn af íkónum 20. aldarinnar með svita, blóði og tárum og yrði svo lögsóttur fyrir að reyna að selja sköpunarverk mitt.

Reyndar er nú pínku augljóst að gæinn er að tengja sig óþægilega mikið við myndina, þannig að maður skilur Lucas. En samt. Kommon...


1 comments
(Steinn)



3.4.2008 | Zeitgeist - the movie???

zeitgeistcrapmovie

Nýlega horfði ég á "heimildarmyndina" Zeitgeist. Ég hafði heyrt af þessari mynd frá nokkrum aðilum sem þótti hún taka ítarlega á ýmsum málefnum og útskýra stóra sannleikann á bak við hitt og þetta.

Myndin er að einhverju leyti skemmtileg er ég tilbúinn að viðurkenna. En þá helst sem einhverskonar skáldskapur. Málið er bara að ég get ekki tekið svona yfirdrifið samsæriskenninga rugl alvarlega. Myndin skiptist í þrjá hluta. Fyrst er verið að debunk-a mýtuna um Jesú, svo er langur 9/11 kafli og svo mjög svo vafasamur kafli um eitthvað global banking-cartel sem að hefur það að markmiði að gera fólk að þrælum. Í endinn er þessu svo öllu þvingað saman til að mynda geðbilaða heild.

Ég hafði gaman af kaflanum um Jesús, þar eru nokkrar áhugaverðar kenningar um hvernig sagan um hann spannst. Ég er hinsvegar orðinn þreyttur á 9/11 samsæriskenningum og síðasti hlutinn var bara rugl.

Ég vil samt gefa þessari mynd eitt sem er það að hún er ágætur conversational subject, eins og svo margar lélegar myndir.


5 comments
(Jesú)



2.4.2008 | Ótímabær fögnuður

Mér finnst alltaf eitthvað hálf vafasamt við það að fagna áður en úrslitin eru ljós. Það væri sérstaklega fatalt í þessu tilviki, hafandi í huga hversu yfirmáta hallærisleg keppni þetta er.