Nýlega horfði ég á "heimildarmyndina" Zeitgeist. Ég hafði heyrt af þessari mynd frá nokkrum aðilum sem þótti hún taka ítarlega á ýmsum málefnum og útskýra stóra sannleikann á bak við hitt og þetta.
Myndin er að einhverju leyti skemmtileg er ég tilbúinn að viðurkenna. En þá helst sem einhverskonar skáldskapur. Málið er bara að ég get ekki tekið svona yfirdrifið samsæriskenninga rugl alvarlega. Myndin skiptist í þrjá hluta. Fyrst er verið að debunk-a mýtuna um Jesú, svo er langur 9/11 kafli og svo mjög svo vafasamur kafli um eitthvað global banking-cartel sem að hefur það að markmiði að gera fólk að þrælum. Í endinn er þessu svo öllu þvingað saman til að mynda geðbilaða heild.
Ég hafði gaman af kaflanum um Jesús, þar eru nokkrar áhugaverðar kenningar um hvernig sagan um hann spannst. Ég er hinsvegar orðinn þreyttur á 9/11 samsæriskenningum og síðasti hlutinn var bara rugl.
Ég vil samt gefa þessari mynd eitt sem er það að hún er ágætur conversational subject, eins og svo margar lélegar myndir.
Ég horfði einmitt á þessa mynd um daginn. Þetta er eitt versta áróðursmyndband sem ég hef séð lengi en það var samt gaman að horfa á þetta. Jesúkaflinn var skástur en hitt ruglið, og allar þessar tilvitnanir í einhverja kalla sem segja hitt og þetta án þess að það komi nokkurs staðar fram hvenær og við hvaða tækifæri þeir eru að tala, er náttúrlega bara bull. Það er hægt að taka hluti úr samhengi og troða þeim inn í það sem maður vill. Crap!
Verst er hvað marga skortir gagnrýna hugsun sem horfa á svona vitleysu. Það er þannig fólk sem lætur heilaþvo sig og kokgleypir við svona þvælu.
Æi, ég er löngu hættur að nenna að horfa á þessar "heimilda"-myndir um hvernig lítil mafía af bönkurum stjórna heiminum....skil ekki hvernig þið nennið því.
The password to post a comment is:
(Jesú)