17.4.2008 | Skortstöðubarónar

Nýlegar fréttir benda til þess að framkvæmdastjórar vogunarsjóða hafi slegið tekjumet í ár.

Úr þessari frétt á mbl.is:

Einn vogunarsjóðsstjórinn, maður að nafni John Paulson hjá vogunarsjóðnum Paulson & Co., fékk greitt hvorki meira né minna en 3,7 milljarða dollara í laun á árinu 2007, samkvæmt frétt á fréttavef bandaríska dagblaðsins New York Times. Það svarar til um 275 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi. Það er liðlega 20% af vergri landsframleiðslu hér á landi á síðasta ári.

Það sem ég velti fyrir mér í tengslum við þetta er þá hvort menn séu að greiða tekjuskatt af þessum upphæðum? Er átt við launagreiðslur, eða fjármagnstekjur? Ég skil þessa frétt ekki.

Allavega get ég staðhæft hér að ef ég hefði árstekjur upp á 275 milljarða, í eitt ár, þá myndi ég halda blellaðasta partý allra tíma.

Nokkur stikkorð:

  • Bleikir kóalabirnir
  • Hjúkkulaðigosbrunnar
  • Svifbrettin úr Back to the Future
  • Og að sjálfsögðu brjálaðir náungar (í fótjárnum) að skenkja mjög brjálaða náunga.

Mjög basic.

(Ég vona að John Paulson haldi svona partý. Annars er hann glataður.)


3 comments
(Siggi)




3 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Árni at 17.4.2008

Árni

Loving them Hjúkkulaðigosbrunnar! Ég stefni á að gera allt í mínu valdi til að gera þetta partí að raunveruleika.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 17.4.2008

Sveinbjörn

Sjitt. 275 milljarðar eru í grófum dráttum fjárlög íslenska ríkisins. Þessi gaur gæti rekið fokking íslenska ríkið á árstekjum sínum. Það er absúrd.

[ Reply ]

Siggi at 21.4.2008

Siggi

ég reyndi að panta Brjálaðan Náunga á Hótel KEA núna um helgina, en var svo blellaður að ég nennti ekki að útskýra hann.

fail.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment