Ég verð að segja að mál austurríska geðsjúklingsins, sem feðraði barnafjöld með fangni dóttur sinni, og hefur verið mikið á döfinni undanfarið, hefur vakið hjá mér mikinn óhug, eins og sennilega hjá flestum. Almennt verð ég að segja að fréttir af þessu tagi komi nú ekki sérstaklega mikið við mig, en þetta mál hefur vissulega gert það, og eiginlega ekki síður hvað fjölmiðlar hafa kosið að gera sér mikinn mat úr þessum skelfilegu atburðum.
Nóg um það.
Það sem mér finnst hinsvegar athyglisvert á þessu stigi málsins er að hugsa til þess hvaða lögfræðingur á eftir að vilja taka að sér málið og reyna að veita manninum sanngjarna málsmeðferð. Ekki er það hlutskipti sem ég gæti mögulega ímyndað mér. Ennfremur verður merkilegt að sjá hverskonar dómur verður upp kveðinn í málinu, þar sem það er klárlega svo mjög úr samhengi við allt sem getur talist eðlilegt eða skiljanlegt.
Þetta er almennt mjög bjánaleg pæling, að það sé eitthvað athugavert við það að taka að sér að verja einhvern sem gerði eitthvað extra slæmt. Afskaplega banalt og þreytt eitthvað að vera að velta sér upp úr því að lögfræðingurinn sem það gerir hljóti nú að vera eitthvað skrítinn.
Þú fyrirgefur hvað ég er miskunnarlaus eitthvað en svona er þetta bara...
Ég veit ekki, mér finnst þetta nú alveg valid point. (Enda skellti ég þessu nú hérna inn.) Nú vil ég líka taka það fram að ég er ekki að halla á einhvern potential lögfræðing sem kann að taka að sér málið, enda neyðist væntanlega einhver til þess. Þar fyrir utan gæti ég vel ímyndað mér að það væri slegist um að verja þennan gaur til að fá hann á CV-ið.
Allavega, það sem ég er helst að velta fyrir mér er það, að þegar málið er orðið svona absúrt og grotesque, þannig að það er ekki nokkrum manni mögulegt að relate-a við atburðina, þá spyr ég mig: hvernig ætlarðu að byggja upp sanngjarna vörn fyrir umbjóðandann?
Ég færi bara að hlæja í réttarsalnum held ég.
The password to post a comment is:
(Arnaldur)