Í gær borðaði ég pizzu. Eftir að hafa velt því fyrir mér alveg óheyrilega, ótrúlega lengi, hvað ég ætti að fá mér á pizzuna, endaði ég á því að fá mér mjög klassíska (og borderline boring) Pepp&Svepp. Reyndar fékk ég mér rjómaost og svartan pipar í ofanálag. (Eða kannski ofanálegg.)
Nú, aftur á móti, vaknar hjá mér spurningin: Hvað er ultimate topping-combó á pizzu?
Ég held að það sé kominn tími til að útkljá þetta mál í eitt skipti fyrir öll.
Ansjósur, pepperóní, grænar ólífur, og rjómaostur. Eldbakað.
Svo skiptir máli að hafa mikið af hvítlauk í annars guðdómlegri pizzasósu (sem er svo goddamn essential partur af det hele!).
Pepperóní, tómatar, rjómaostur, ferskur hvítlaukur og kannski ólífur. Toppar það síðan með svörtum pipar eða chilli...eða bæði
Mér er alveg sama hvað er á minni. Svo lengi sem hún er MMMJJJÖÖÖGGG heit.
Ég held að grundvallarhráefnin í góða pizzu séu pepperoni - eða einhvers konar kryddpylsa, ólívur (helst grænar) og rjómaostur. Það virðist vera nokkur samstaða um þetta.
Hvítlaukur kemur einnig sterkur inn, og ég hef alltaf verið hrifinn af 50/50 blöndu cheddar og mozzarella. Mikinn ost.
Að sama skapi finnst mér jalapeno-pipar gefa pizzunni skemmtilegt yfirbragð, sem og ferskur chilli.
No-no's á pizzuna eru gráðostur (skil ekki vinsældir þess drasls) og ananas.
Ananasinn skapar vandræði. Annað hvort elska menn hann eða hata. Fyrir þá sem elska hann er hann hins vegar ómissandi. Ég er einn af þeim.
Pepperoni, ananas og rjómaostur fær mitt atkvæði. Jalapeno má vera með en ekki nauðsyn. Það er líka skilyrði að pepperóníið bragðist eins og kjöt en ekki sölt fita. Ekkert Kjarnafæðikjaftæði.
Ég segi að pepperoni sé það mikilvægasta.
Síðan myndi ég fá mér rjómaost, ananas, ólívur, sveppi og síðan finnst mér virkilega gott þegar osturinn verður þurr og stökur á köntunum. Semi brendur.
Annars tek ég undir með bæði Stígi og Þórði, alvöru kjöt er mikilvægt og gráðostur er ofmetinn.
The password to post a comment is:
(Steini)