Einhverra hluta vegna finnst ákaflega mörgu fólki sem ég ræði við, orðið "DJAMM" ekki vera að virka. Reynar finnst þessu fólki orðið "DJAMM" vera óhóflega glatað. Máli mínu til stuðnings vísa ég í ótal samræður við fólk svo og skriflega heimild hér.
Til að byrja með var ég mjög sammála þessu fólki og keypti "and-djamm" orðræðuna nokkurnvegin wholesale. En þá fóru að renna á mig tvær grímur. Hvað hefur "DJAMM" nokkurntíma gert mér? Er "DJAMM" ekki bara nokkuð gott orð?
Ég á góðar minningar um "DJAMM". Gullnar setningar eins og "Hann DJAMMAR MEÐ fólkinu" hafa gætt lífi mínu miklum hlátri.*
*(Haft eftir einhverjum mjög freðnum manni um einhvern skíta Ibiza-plötusnúð og framkomu hans gagnvart áheyrendum; lesist með fötu-þrykkingar-rödd.)
Í raun er það eina neikvæða, eða hlutlausa sem ég get sagt um djamm, að það minnir pínkulítið á þunglynt bílskúrsband sem fer að rífast yfir textasmíð, sultu eða jafnvel það að það má lesa "DJAMMA" sem DJ-Amma. Sem er ekki kúl.
Við skulum samt gera okkur grein fyrir því að "DJAMM" hlýtur alltaf að vera mun öflugara orð heldur en:Upphaflega varð mér hugsað til Íslendingasagnanna, en þar tóku menn oft ærlega á því. Kom þá að sjálfsögðu upp Bjarmalandsför Egils Skallagrímssonar. Mér datt í hug að stytta það í bjarm en það er að sjálfsögðu frekar lame, þar sem það hljómar eins og bjarmi eða jarm.
"BJAMM" aftur á móti er skothelt og því tilkynni ég stolltur að nýja orðið yfir að skemmta sér er, að "BJAMMA".BJÖMMUM saman fólk! BJÖMMUM inn í eilífðina!
Arnaldur, þú ert einstakur snillingur.
Af hverju setja þeir ekki þig í allar þessar nefndir sem smíða nýyrði og verja íslenskt mál?
Hér eftir mun ég ei djamma -- ég mun BJAMMA!
Guð? Er þetta þú? Ég hef verið að reyna að ná í þig undanfarið, án árangurs. Langaði til að minna þig á dílinn sem við gerðum
The password to post a comment is:
(Gunni)