23.6.2008 | GYMKATA

gymkata

Hinn góði herramaður Árni Kristjánsson benti mér nýverið á eina mest absúrd snilld sem ég hef á ævi minni fengið veður af. Snilldin sú, er kvikmyndin Gymkata.

Gymkata gengur apparently út á það að ungur maður þarf að beita snilligáfum sínum í Karate annarsvegar, og fimleikum hinsvegar, til þess að koma því í kring að heit ósk hans um að koma upp ratsjárstöð í smáríkinu Parmistan rætist. Hasar og hættur fylgja í kjölfarið og ekki er allur maðkur í mysunni sem sýnist.

Klárlega er þetta ótæpileg snilld og vil ég benda fólki á að fylgjast með síðunni hans Árna í von um umsögn, en hann ætlaði að leggja í að horfa á og meta þessa kvikmynd í þessum skrifuðu orðum.


5 comments
(Svanur)




5 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sindri at 23.6.2008

Sindri

Djöfulsins snilld er þetta!

...en helvíti var það heppilegt fyrir okkar ágæta mann að hafa fimleikahest þarna á miðju bardagasvæðinu þar sem hann gat sveiflað sér fram og til baka.

[ Reply ]

Sindri at 23.6.2008

Sindri

Hvað er eiginlega málið með þetta? Ég get ekki hætt að horfa á þessa senu. Ég ligg í hláturskasti.

Að öllu gamni slepptu þá verðum við náttúrlega að gera okkur grein fyrir því að þessi mynd er frá árinu 1985. Kalda stríðið var þá í fullum gangi. Þetta hefur líklegast verið einhver aumkunarverð tilraun til að auka áhuga bandarískrar æsku á fimleikum í von um að byggja upp framtíðarlandslið sem gæti barið á Sovétmönnum með gullverðlaunum á næstu Ólympíuleikum.

[ Reply ]

gummi at 24.6.2008

gummi

þessi trailer er gull verð að sjá þessa mynd

[ Reply ]

Sveinbjörn at 25.6.2008

Sveinbjörn

Þetta er eflaust gullið meistarastykki. IMDB ratingið eitt og sér fær mig til þess að slefa: 3.8

[ Reply ]

Svanur at 26.6.2008

Svanur

Var að sjá þessa færslu hjá þér í dag. Hef legið í hláturskasti og sem betur fer er myndin fáanleg á leigum hérna í Bandaríkjunum, allavegana í gegnum Netflix.

Við að skoða bardagasenuna þá fann ég þessa senu til hliðar og ég verð að segja að þetta er alveg jafnglæsilega hörmulegt og Gymkata senan.
http://uk.youtube.com/watch?v=uxkr4wS7XqY&feature=related
Ég held enn mest upp á anti-American senuna úr Gymkata. Ég skal skrifa meira þegar ég næ að horfa á myndina í næstu viku.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment