|
Það hefur nokkuð verið um það rætt í hversdagspressunni hversu slæm áhrif framkvæmdirnar á Skólavörðustíg virðast hafa á rekstur smá(sölu)fyrirtækja við götuna.
Vinsælast er í þessum "human interest" greinum, að finna til verslunareiganda, helst einhvern sem verslar með matvöru (sem þarf að afskrifa þegar enginn kemur að kaupa hana) og fá hann til að velta sér upp úr því hvað veltan hefur minnkað.
Nú er ég reyndar mjög sympatískur gagnvart kaupahéðnum á Skólavörðustíg. Myndi sjálfur enganveginn vilja vera þarna með rekstur við þessar aðstæður.
Eitt vekur þó ómælda forvitni mína. Í þessum greinum er undantekningalaust alltaf rætt við Eggert Ólaf Jóhannsson, betur þekktan sem Eggert feldskera. Eggert vill meina eins og kollegar hans að umsvifin hjá honum hafi dregist verulega saman undanfarið.
Hver kaupir minnkapelsa[minkapelsa] í Júlí[júlí]!!!
Það er greinilega meira af "seriously-baller-shit" liði hérna í Reykjavík en ég hélt. Og nú getur ekkert af þessu fólki feed-að óseðjandi pelsa-hungur sitt á Skólavörðustíg lengur!!! Ohhh, shit!!!
|