30.6.2008 | For your consideration and conCERN

CERN CMS 140X84

Undanfarið hafa vísindamenn allstaðar að úr heiminum verið að vinna að blelluðustu, dýrustu og mest "baller" eðlisfræði tilraun sem hefur verið dreymd upp af nokkrum manni. Saman eru þeir komnir í Cern í Sviss og eru búnir að grafa sér hringlaga moldvörpugöng undir fótum grunlausra belja og sauða (ekki svartra sauða þó).

Af hverju, spyr maður sig, eru allir þessir gáfuðu menn búnir að hafa fyrir því að grafa öll þessi göng og fylla þau með brjáluðum myndavélum og járnrusli sem maður sér bara í ótrúlega framsýnum framtíðar-bíómyndum?

Svarið er mjög einfalt. Þessir vísindamenn ætla að reyna að endurskapa upphaf alheimsins (nokkurnvegin) ofan í göngunum og sjá hvað gerist. Allt þetta ferli felur í sér fullt af geislum, "guðs-frumeindum", svartholum og allskonar brjáluðu nörda-dóti.

Bíddu... Var einhver að taka eftir því sem ég segi!?!

ÞEIR ÆTLA AÐ ENDURSKAPA UPPHAF ALHEIMSINS OFAN Í NEÐANJARÐARLESTARGÖNGUM Í SVISS!!!

Ohhh Shit!!!

Ég verð að segja að mér finnst þetta svalara en brauðristavél, internetið og plakat af Albert Einstein samanlagt.

Eflaust væru margir hræddir við það að einhverjir menn séu að fikta með geisla og svarthol ofan í jörðinni í Sviss. Þegar allt kemur til alls eru sennilega fáir sem að vilja enda líf sitt á því að sogast inn í nýja vídd og bráðna og verða að hesti eða rækju. Ég segi hinsvegar að áhættan við að sogast út úr heiminum (sem er óneitanlega frekar röffaður dauðdagi) sé klárlega þess virði þegar það kemur að því að eiga fáránlega töff og svala græju sem tekur meira pláss en megnið af neðanjarðalestarkerfi Lundúna og heitir ógeðslega töff nafni (Large Hadron Collider) og býr til Alheima.

Þar fyrir utan treysti ég þessum gaur. Hann virðist vita hvað hann er að tala um.

Sjá brjálaðar myndir af græjunni hér


Atlas.article

ATLAS detector. Hluti af LHC-inum (Large Hadron Collider) í Cern, Sviss.

CERN EX 0703032 36CD077 7306

Skynjari sem kallast Alice (A Large Ion Collider Experiment) – einn af fjórum risavöxnum blell-skynjurum sem eru staðsettir með ákveðnum millibilum um hin hringlaga gangakerfi LHC.

CERN EX 0706038 36CD220 4902

Atlas (A Toroidal LHC ApparatuS) er brjáluð digital myndavél sem á að taka myndir af þeim 600 milljón samstuðum milli prótona sem LHC (Large Hadron Collider, ekki spurja mig hvað það þýðir) getur sent henni á hverri einustu sekúndu.


5 comments
(Gímur)




5 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Steinn at 30.6.2008

Steinn

Shit hvað þetta er blell svönsuð pæling!

[ Reply ]

Sveinbjörn at 1.7.2008

Sveinbjörn

Mig langar þokkalega að nota þessa græju til að kveikja mér í sígarettu.

[ Reply ]

Arnaldur at 1.7.2008

Arnaldur

Ég veit maður. Það kemur instantly upp hjá manni að vilja nota svona megatron græjur í eitthvað ótrúlega mundane og boring. Ens og að eiga Transformer róbot og nota hann sem símsvara eða eitthvað álíka leiðinlegt. Why, you may ask? Because I can!

[ Reply ]

Gímur at 2.7.2008

Unknown User

Mér þykir mjög fyndið að trekk í trekk, m.a.s. í allvirtum ritmiðlum, hefur nafn græjunnar verið skrifað Large Hardon Collider.

Ef þetta klikkar - guðeindin lætur á sér standa eða eitthvað - þá getur CERN alltént mögileikann á að fara út í klámmyndaframleiðslu...

[ Reply ]

Gímur at 2.7.2008

Unknown User

...og rassgat, hvað ég hata þegar ég ákveð að umorða eitthvað í svona kommentum sem ég get ekki breytt og gleymi að umorða restina af setningunni til samræmis!


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment