1.7.2008 | Fuck'em if they can't take a toke!

marley bob1

Nú hef ég í gegnum tíðina oft orðið var við allskyns þversagnir og misræmi í kringum mig, sem og sjálfsagt orðið sjáfur uppvís að einhverskonar tvískinnungi einhverntíman á lífsleiðinni, eins og flestir.

Sömuleiðis hef ég mínar skoðanir á reykingabönnum, og öðrum boðum og bönnum, en það væri efni í annan pistil. Hver veit? -Kannski nenni ég að festa það á blað við tækifæri.

Þá hef ég einhverjar skoðanir, sem ég nenni ekki að útlista hér, á eiturlyfjum og allskyns útúrdúrum sem tengjast þeim og því lagalega umhverfi sem er í kring um þau.

Eitt þykir mér þó hreint út sagt ótrúlegt og brjálað, og það vill svo til að það dregur saman alla þessa þætti og giftir þá í ótrúlegri kosmískri-íróníu.

Og það er eftirfarandi:

Hollendingar hafa tekið upp reykingabann á kaffihúsum, börum og skemmtistöðum. Þetta bann nær þó einvörðungu til tóbaks. Þar af leiðir að fólk getur enn setið og reykt sig mellu-freðið á hreinum skúnki, en guð forði því (og öllum í kringum það) ef það skyldi kveikja sér í sígarettu, eða jafnvel tóbaksblanda jónuna.

M.ö.o.:

Sígaretta: "Fokkaðu þér hálvitinn þinn! Þú ert að menga og eyðileggja fyrir okkur öllum! Kúkhaus!"

Spliff: "Æjæjæjæjæ. Ertu að æla útum allt af því að þú ert túristi sem getur ekki höndlað þennan pótent lort óblandaðan? Og bara svo ég gleymi ekki... takk fyrir að blása THC ofl. í andlitið... og matinn minn... eða mögulega annað sem tengist minni persónu."

Ég veit hreinlega ekki...

Það sem mér þykir samt jafnvel athyglisverðast, eru hugmyndir heilbrigðismálaráðherrans, Ab Klink:

"The health minister, Ab Klink, said the law would stay, arguing that as well as helping to improve people's health it might help to stamp out idleness. "Consumers who spend the whole day hanging out in coffee shops will find other things to do," he said." [áherslur mínar]

Hmmmm.... Fyrir utan að geta ekki annað gert en að sjá æpandi sjálfsblekkinguna og faulty lógíkina, verð ég að spyrja: "Hvenær í andskotanum varð það undir duttlungum stjórnmálamanna komið hvað fólk gerir í sínum frítíma!?!"


Getum við svo farið að hætta að haga okkur og löggjöfinni eins og bjánar?


3 comments
(Sveinbjörn)




3 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Steinn at 1.7.2008

Steinn

Mér finnst skemmtileagasta við þetta að Hollendingar eru að þjálfa 200 eftirlitsmenn sem eiga að geta komist að því hvort jónana þín sé tóbaksblönduð.

[ Reply ]

Sindri at 2.7.2008

Sindri

Ég las þessa frétt um daginn, þvílíkt rugl. Ég hélt að það væri allt leyfilegt í Hollandi.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 4.7.2008

Sveinbjörn

Mér finnst þetta ótrúlega skynsamlegt og sniðugt.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment