Maðurinn á myndinni til vinstri er seinasta fórnarlamb nýja tískueiturlyfsins BS. BS er hættulegra en mörg/öll eiturlyf í heiminum, samankomin í krakkpípu frá Þriðja ríkinu. BS, hefur eyðilagt mörg líf og rústað fjölskyldum. Algengt er að notendur selji líkama sinn og sál og verði almennt ömurlegir og glataðir.
BS seytir endorfíni út í hausinn á fólki og fær það til að upplifa mikla vellíðunartilfinningu. En niðursveiflan er aldrei langt undan! Aukaverkanir eru m.a.: niðurgangur, ógleði, harðlífi, hitaköst, blæðingar úr augum og endaþarmi og hárlos/vöxtur. Niðursveiflur valda oft geðhvörfum, þunglyndi, sálfræði eða gleði. Einnig geðveiki eða ekki neinu.
Notendur gera hvað sem er til að forðast niðursveiflur. Algengt er að notendur gerist boðflennur í barnaafmæli, ráði sig í vinnu sem trúðar, eða leiðist út í vændi og innbrot, eða ekki.
Nei þýðir NEI, BS er ekki TÖFF!
|