8.7.2008 | BS er nýja tískueiturlyfið

BS junkie

Maðurinn á myndinni til vinstri er seinasta fórnarlamb nýja tískueiturlyfsins BS.

BS er hættulegra en mörg/öll eiturlyf í heiminum, samankomin í krakkpípu frá Þriðja ríkinu. BS, hefur eyðilagt mörg líf og rústað fjölskyldum. Algengt er að notendur selji líkama sinn og sál og verði almennt ömurlegir og glataðir.

BS seytir endorfíni út í hausinn á fólki og fær það til að upplifa mikla vellíðunartilfinningu. En niðursveiflan er aldrei langt undan! Aukaverkanir eru m.a.: niðurgangur, ógleði, harðlífi, hitaköst, blæðingar úr augum og endaþarmi og hárlos/vöxtur. Niðursveiflur valda oft geðhvörfum, þunglyndi, sálfræði eða gleði. Einnig geðveiki eða ekki neinu.

Notendur gera hvað sem er til að forðast niðursveiflur. Algengt er að notendur gerist boðflennur í barnaafmæli, ráði sig í vinnu sem trúðar, eða leiðist út í vændi og innbrot, eða ekki.

Nei þýðir NEI, BS er ekki TÖFF!


3 comments
(Aðalsteinn)




3 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Halldór Eldjárn at 8.7.2008

Halldór Eldjárn

Ótrúlegt hvað paedophilia er stór hluti af mbl.is í dag.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 8.7.2008

Sveinbjörn

Hversu langt þar til bandaríska ríkið byrjar að dömpa ófrjósemislyfjum í drykkjarvatnið til þess að binda enda á uppsprettu þessa eiturlyfs?

I, for one, welcome our new drug-combating overlords.

[ Reply ]

Aðalsteinn at 10.7.2008

Aðalsteinn

The only thing I'm high on is love...love for my son and daughters. Yes, a little LSD is all I need.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment