Er þetta mögulega glataðasta framtak sem nokkur maður hefur tekið sér fyrir hendur?
Samtök áhugafólks um að opna Starbucks á Íslandi... eða eitthvað.
Og ég hélt að ÉG væri neysluhóra.
Það er nóg af fínum kaffihúsum í Reykjavík án þess að þessi ógeðslega keðja fari að opna útibú í bænum. Þetta er komið á hvert einasta götuhorn í Oxford -- gamli bærinn er nú alþakinn neongrænum Starbucks skiltum. Heimur versnandi fer...
Starbucks er ágætis kaffihúsakeðja og hægt að fá alveg prýðilegt kaffi þar. En það að safna undirskriftum til að fá einhverja erlenda keðju hingað til lands er gróft hórerí. Þvílíkt rugl. Afvherju eru Íslendingar alltaf svona veikir fyrir amerískum keðjum? Er Starbucks svona kúl?
Svo gæti forsætisráðherra mætt og drukkið fyrsta bollann, sbr. Davíð á McDonalds. Enginn kjánahrollur þar á ferð..
Í frh. af CERN-póstinum þínum um daginn var ég að rekast á þetta:
http://www.youtube.com/watch?v=T3iryBLZCOQ
Ég er nú eiginlega hrifnari af þessu framtaki en Starbucks, Senseo-kaffihús!
http://visir.is/article/20080817/LIFID01/516161310
The password to post a comment is:
(Aðalsteinn)