Header
25.08.2008 | Landafræði???

Nýlega komst ég yfir gamla landafræðibók sem ég notaði sjálfur á sínum tíma í grunnskóla. Bókin heitir Landafræði, II. hefti og er eftir Gylfa Má Guðbergsson. Nokkuð skemmtileg lesning, hér fylgja nokkrir sérvaldir kaflar.

Flestir Afríkumenn eru negrar (svertingjar) og er álfan sunnan Sahara að mestu byggð negraþjóðum. Negrarnir skiptast í tvo aðalflokka, súdannegra, sem búa norðan til. og bantúnegra sem búa sunnan til...Í skógum Kongó og víðar búa dvergsvertingjar (um 140 cm á hæð) og í Kalahari eru Búskmenn og Hottentottar en þessar þjóðir eru allar fámennar. (bls. 46-47)

Súdan er stærsta ríki Afríku og þar búa menn af öllum helstu kynstofnum álfunnar. Norðan til eru m.a. arabískir hirðingjar og Núbíumenn sem eru negrar en mjög blandaðir hvítum mönnum sem hafa búið í nábýli við þá í margar aldir...Sunnan til í Súdan búa súdannegrar sem stunda jarðrækt, eru heiðnir og svipar þeim til þjóða Vestur-Afríku...Hvítir menn voru allfjölmennir í Suður-Afríku en nú eru þeir einkum í Suður Afríku-lýðveldinu...(bls. 61-62)

Í suðvestanverðri álfunni, frá Miðjarðarhafslöndum austur til Indlands, búa menn af hvíta kynstofninum (eranar) og einnig í Asíulöndum Sovétríkjanna fyrrverandi. Annars staðar eru Asíumenn flestir mongólítar og eru Kínverjar fjölmennastir þeirra. Svertingjar er[sic] fáir í Asíu. (bls. 69)


Ég bíð bara eftir kaflanum um aríska hauskúpulögun...

21.08.2008 | Maður er bara í rusli yfir þessu!
tonysoprano

Ég er algerlega mótfallinn einkavæðingu á sorphirðu borgarinnar. Hefur þetta fólk aldrei séð mafíu bíómyndir? Eða lesið bók? Eða bara spáð almennt í lífið og tilveruna?

Einkavæðing á sorphirðu: Lélegri þjónusta, niðurskurður á starfsfólki, meira álag á starfsfólk í kjölfarið, lítill sem enginn sparnaður í raun eða verðhækkanir.

21.08.2008 | Censeo Circum esse delendam!

Mikið getur nú fólk verið lágkúrulega dramatískt...

Er þetta virkilega þarflegt?

Var Sirkus virkilega svona svakalega merkilegur?

Þessi er nú aldeilis kát að komast aftur heim. Haaaaa...

Stundum græt ég hljóðum tárum í einrúmi og minnist Sirkuss.

21.08.2008 | Aldrei aftur Tsjernóbyl?

Ég hef um nokkurt skeið viljað skrifa um kertafleytinguna sem fór fram um daginn niður við Tjörn, til þess að minnast kjarnorkuárásanna á Hiroshima og Nagasaki.

Nú er þetta svosem árlegur viðburður og kannski ekki í frásögur færandi, en eitt þótti mér ákaflega undarlegt.

Kolbrún nokkur Halldórsdóttir hélt langt og mikið ávarp við setningu athafnarinnar sem mér þótti stinga nokkuð í stúf. Að vísu minnist hún í tvígang á Hiroshima, en að öðru leyti er þetta 3bls frásögn af opinberri heimsókn og pólitískur áróður gegn kjarnorkuverum.

???

Er ég einn um að finnast kjarnorku-SLYSIÐ í Tsjernóbyl á engann hátt líkt kjarnorku-ÁRÁSUM á Hiroshima og Nagasaki?

Nú kann fólk að hafa allskyns skoðanir á kjarnorku sem orkugjafa og hverskyns framkvæmdum í tengslum við það. Mér finnst samt óábyrgt og hreinlega móðgandi að líkja þessum tveimur gjörólíku hlutum saman.

Hér er ávarpið í heild sinni.

Aldrei aftur Kolbrún!
Aldrei aftur Hiroshima!
Friður fylgi ykkur.

21.08.2008 | Þormóður Jónsson
thormodurjonsson

Arnaldur óskar Þormóði til hamingju með glæstan árangur á Ólympíuleikunum í Peking 2008.
Vel að verki staðið!

18.08.2008 | Leiðarendi
G42001

Á laugardaginn hætti skjárinn á tölvunni minni að birta nokkurn skapaðan hlut. Kom þetta í kjölfar þess að ég braut aðra festinguna á skjánum pínkulítið.

Tölvan virkar samt fínt. Ég þakka bara fyrir að hafa sett inn Quicksilver og Synergy á sínum tíma, því þrátt fyrir að ég sjái ekkert hvað ég er að gera, get ég með aðstoð þessara app-a gert minor basic hluti. Mér líður eins og algerri hetju að nota tölvu með engan virkan skjá og óvirkt track-pad.

Í raun er ég að hugsa um að gera rokk-óperu um þetta, með sjálfan mig í aðalhlutverki. Í grófum dráttum mun hún fjalla um ungan mann sem að notar tölvuna sína án þess að sjá á skjáinn og notast við lyktarskynið til þess að vita hvað hann er að gera. M.ö.o. Tommy með G4 tölvu í stað kúluspils.

Annars er gamla vélin búin að þjóna mér vel í gegnum tíðina og standa sig eins og herforingi undanfarin 6 ár.

Tími MacBook Pro er loksins kominn.

05.08.2008 | Requiem for Calculus

Laugardaginn 2. ágúst fór fram minningarathöfn um einhleypni Steins nokkurs Linnets. Athöfnin hófst um 10 leytið og stóð fram eftir degi. Fór allt vel fram.

Var þetta mögulega einn skemmtilegasti dagur sem ég hef upplifað í langan tíma?

Nú langar mig að gifta mig...

© 2008 Arnaldur Grétarsson