18.8.2008 | Leiðarendi

G42001

Á laugardaginn hætti skjárinn á tölvunni minni að birta nokkurn skapaðan hlut. Kom þetta í kjölfar þess að ég braut aðra festinguna á skjánum pínkulítið.

Tölvan virkar samt fínt. Ég þakka bara fyrir að hafa sett inn Quicksilver og Synergy á sínum tíma, því þrátt fyrir að ég sjái ekkert hvað ég er að gera, get ég með aðstoð þessara app-a gert minor basic hluti. Mér líður eins og algerri hetju að nota tölvu með engan virkan skjá og óvirkt track-pad.

Í raun er ég að hugsa um að gera rokk-óperu um þetta, með sjálfan mig í aðalhlutverki. Í grófum dráttum mun hún fjalla um ungan mann sem að notar tölvuna sína án þess að sjá á skjáinn og notast við lyktarskynið til þess að vita hvað hann er að gera. M.ö.o. Tommy með G4 tölvu í stað kúluspils.

Annars er gamla vélin búin að þjóna mér vel í gegnum tíðina og standa sig eins og herforingi undanfarin 6 ár.

Tími MacBook Pro er loksins kominn.


3 comments
(Nanna)




3 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 18.8.2008

Sveinbjörn

Aye, and 'tis I, Sveinbjörn, who shall be the great provider of said MacBook Pro!

[ Reply ]

sigurgeir þór at 19.8.2008

sigurgeir þór

bíddu fram á haustið, svaka dót á leiðinni frá apple...

ég held t.d. að trackpaddinn verði líka skjár (snertiskjár eins og iphone)

og fleira kúl...

[ Reply ]

Nanna at 19.8.2008

Nanna

Jæja gott að vita að tölvuvesenið á Sveinbirni hafi gert eitthvað gott...


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment