|
Ég hef um nokkurt skeið viljað skrifa um kertafleytinguna sem fór fram um daginn niður við Tjörn, til þess að minnast kjarnorkuárásanna á Hiroshima og Nagasaki.
Nú er þetta svosem árlegur viðburður og kannski ekki í frásögur færandi, en eitt þótti mér ákaflega undarlegt.
Kolbrún nokkur Halldórsdóttir hélt langt og mikið ávarp við setningu athafnarinnar sem mér þótti stinga nokkuð í stúf. Að vísu minnist hún í tvígang á Hiroshima, en að öðru leyti er þetta 3bls frásögn af opinberri heimsókn og pólitískur áróður gegn kjarnorkuverum.
???
Er ég einn um að finnast kjarnorku-SLYSIÐ í Tsjernóbyl á engann hátt líkt kjarnorku-ÁRÁSUM á Hiroshima og Nagasaki?
Nú kann fólk að hafa allskyns skoðanir á kjarnorku sem orkugjafa og hverskyns framkvæmdum í tengslum við það. Mér finnst samt óábyrgt og hreinlega móðgandi að líkja þessum tveimur gjörólíku hlutum saman.
Hér er ávarpið í heild sinni.
Aldrei aftur Kolbrún! Aldrei aftur Hiroshima! Friður fylgi ykkur.
|