25.8.2008 | Landafræði???

Nýlega komst ég yfir gamla landafræðibók sem ég notaði sjálfur á sínum tíma í grunnskóla. Bókin heitir Landafræði, II. hefti og er eftir Gylfa Má Guðbergsson. Nokkuð skemmtileg lesning, hér fylgja nokkrir sérvaldir kaflar.

Flestir Afríkumenn eru negrar (svertingjar) og er álfan sunnan Sahara að mestu byggð negraþjóðum. Negrarnir skiptast í tvo aðalflokka, súdannegra, sem búa norðan til. og bantúnegra sem búa sunnan til...Í skógum Kongó og víðar búa dvergsvertingjar (um 140 cm á hæð) og í Kalahari eru Búskmenn og Hottentottar en þessar þjóðir eru allar fámennar. (bls. 46-47)

Súdan er stærsta ríki Afríku og þar búa menn af öllum helstu kynstofnum álfunnar. Norðan til eru m.a. arabískir hirðingjar og Núbíumenn sem eru negrar en mjög blandaðir hvítum mönnum sem hafa búið í nábýli við þá í margar aldir...Sunnan til í Súdan búa súdannegrar sem stunda jarðrækt, eru heiðnir og svipar þeim til þjóða Vestur-Afríku...Hvítir menn voru allfjölmennir í Suður-Afríku en nú eru þeir einkum í Suður Afríku-lýðveldinu...(bls. 61-62)

Í suðvestanverðri álfunni, frá Miðjarðarhafslöndum austur til Indlands, búa menn af hvíta kynstofninum (eranar) og einnig í Asíulöndum Sovétríkjanna fyrrverandi. Annars staðar eru Asíumenn flestir mongólítar og eru Kínverjar fjölmennastir þeirra. Svertingjar er[sic] fáir í Asíu. (bls. 69)


Ég bíð bara eftir kaflanum um aríska hauskúpulögun...


3 comments
(Sveinbjörn)




3 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Árni at 26.8.2008

Árni

Vantaði bara eitthvað um "blámenn" til að fullkomna þetta.

[ Reply ]

Steinn at 26.8.2008

Steinn

Já eða surti og sviðakjamma. Þannig hefði útgáfa Stebba pillu á PH verið.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 26.8.2008

Sveinbjörn

Þetta er alveg frábært. Bókin Blámenn og villidýr er líka frábær.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment