Eins og sjá má mjög glögglega, annars vegar hér á myndskreytingunni til hliðar, og svo á heimasíðu Landsbankans, þá er íslenska krónan algert drasl, sem að allir keppast við að myrða og kúka á þessa dagana.
ISK, eða Inter Stellar Kredit-in eins og góður vinur minn kallar gjaldmiðilinn okkar (í ljósi þess hvað þetta eru miklir leikfangapeningar), er svo óhrjáleg þessa dagna að Íslendingar eru sjálfkrafa aftur orðnir fastir í vistarbandi á hnattrænum skala.
Ég get t.a.m. ómögulega hugsað mér að fara til útlanda eins og ég hafði annars ráðgert á næstunni. Og ekki hefur nokkur maður áhuga á að koma og heimsækja mann á þetta guðsvolaða sker sem samanstendur af rigningu, ótrúlega miklum vindi og almennu ógeði.
Þá er gaman að hugsa til þess að heilli kynslóð fólks sem hefur verið að reyna að koma undir sig fótunum á síðustu árum hefur verið riðið í rassgatið með erlendum lánum og situr eftir með sárt ennið.
Það er engin leið að koma vel út úr þessu. Nema auðvitað að eiga nóg af Evrum... eða fiski... eða áli til að selja úr landi.
Mín tillaga er ekki sú að skoða það endalaust án árangurs næstu árin hvort hægt er að taka einhliða upp Evru, sem við höfum alltaf vitað að er ekki hægt, með tilheyrandi kostnaði við nefndir sem flogið er út til að spyrja sömu spurningarinnar aftur og aftur til þess eins að fá sama svarið.
Mín tillaga er að hætta þessu helvítis rugli, segja skilið við bankana og fjárfestingagrúppíurnar og útrásarvíkingana sem að eru búnir að vera að grafa undanfarin ár.
TÖKUM BARA UPP VÖRUSKIPTI!!!
Það að hverfa frá verslun með ónýtum óðaverðbólgugjaldmiðlum hefur reynst frábærlega í löndum á borð við Bólivíu og Zimbabwe. Eða þykjumst við kannski vera eitthvað betri en þessi samanburðarlönd?Sjálfur hugsa ég um vöruskipti sem rómantíska og sjarmerandi leið. Afturhvarf til hefða, þar sem verðgildi hlutanna er gagnsærra.
-Hvað kostar þetta sjónvarp?
-Eitt karton af sígarettum, vídjó og kind.
-Hvað með karton, GSM-síma og tvö svín?
-Jæja þá... allt í lagi.
Svo gætu þeir sem verða blankir náttúrlega alltaf leitað að hamingjunni í skauti sér...
(Doddi)