2.10.2008 | Bull og vitleysa

bull2

9 comments
(Sveinbjörn)




9 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Árni at 2.10.2008

Árni

Fylgir þessu einhver útskýring? Eða er þetta almennur pirringur eða l'art?

[ Reply ]

Arnaldur at 3.10.2008

Arnaldur

Þetta er svo margt á sama tíma. Já, þetta er l'art, sem er sköpuð útfrá almennum pirring.

Annars er þetta:
a) Almenn vantraustsyfirlýsing á Wall Street og markaðs-kapítalisma (Þetta er nautið á Wall Street, tákn hins frjálsa markaðs).
b) Naut sem segir Boooooh! (Sem naut segja almennt).

-You dig?

[ Reply ]

Doddi at 7.10.2008

Doddi

Það virðist vera sem menn þurfi að blása upp bólur og sprengja þær og læra hlutina the hard way.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 7.10.2008

Sveinbjörn

Nú byrja neoliberal afsakanirnar allar...

Þetta er fyndið, alltaf þegar það er góðæri þá er það klárlega hinn frábæri frjálsi unregulated markaður að verki, en ef það er kreppa og allt að fara til fjandans þá má ávallt rekja það til ríkisafskipta og illra pólitíkusa að skipta sér af hagkerfinu.

[ Reply ]

Doddi at 8.10.2008

Doddi

Þín orð!

En hið erfiða viðfangsefni hagstjórnar verður vart gert auðveldara með því að flækja það með aukinni reglusetningu. En auðvitað er enginn einn sökudólgur - barnalegt er að reyna að pinna niður eina orsök eða sökudólg núverandi ástands.

Mæli hins vegar með þessari grein:

http://online.wsj.com/article/SB122212948811465427.html?mod=googlenews_wsj

[ Reply ]

Sveinbjörn at 8.10.2008

Sveinbjörn

Þegar málin eru þannig að bankarnir kaupa fyritæki A, veðsetja það fyrir láni til að kaupa fyrirtæki B, veðsetja B til að taka lán fyrir fyrirtæki C o.s.frv. og það notandi sparipeninga venjulegs fólks, og með ríkisábyrgð á bakinu, þá finnst mér nú að hausar ættu að fljúga -- kannski byrja á að taka aftur þessa 300 milljón króna samninga blábjánanna sem ráku þessa banka. Þetta er algjörlega að bjóða hættunni heim.

[ Reply ]

Doddi at 9.10.2008

Doddi

Ég get alveg tekið undir þetta. Núna er verið að vinda ofan af of mikilli skuldsetningu fyrirtækja sem fóru offari og fjármálaólæsi almennings. Mun verða mjög vont. Er hins vegar enginn áfellisdómur yfir frjálsum viðskiptum.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 10.10.2008

Sveinbjörn

Mér finnst skilaboðin mjög skýr: Ef gráðugir bankamenn eru án eftirlits og aðhalds þá munu þeir taka áhættur og beita vafasömum viðskiptaaðferðum til þess að græða peninga handa sjálfum sér, án tillits til efnahagslegs stöðugleika þjóðarinnar.

Mér finnst alveg klárt mál að ríkið ætti að fara beinustu leið í asset-stripping á þessum ofurlaunakörlum.

[ Reply ]

Arnaldur at 9.10.2008

Arnaldur

Svona nú börn. Leikið ykkur fallega.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment