Boooohhh!
Var ég mögulega að horfa á innihaldslausasta og ömurlegasta augnablik sjónvarpssögunnar á Íslandi? Ég þakka bara fyrir að við erum með þessa blessuðu kreppu til að tala um, því það er nokkuð augljóst að fjölmiðlafólki landsins er gersamlega um megn að standa að frumlegri og gefandi dagskrárgerð.
Núna var ég að enda við að horfa á hina mjög svo takmörkuðu Elsu Maríu Jakobsdóttur reyna af veikum mætti að stjórna gersamlega innihaldslausri umræðu um mögulegan eða ómögulegan dauða mögulegrar, óskilgreindrar "krútt-kynslóðar".
Til að takast á um þetta þarfa málefni voru mættir í myndver Goddur nokkur, sem er maður með álfahúfu og Valur Gunnarsson, sem er álfur með húfu.
Valur: "Ég held að Ísland sé í slæmum málum og að allt þetta fokk undanfarið hafi grafið undan Íslenskri menningu."
Goddur: "Nei, nei, þetta er allt í lagi."
Valur: "Nei, og það sem meira er þá er krútt-kynslóðin dauð!"
Elsa María (ákveður að reyna að vera eins og Helgi Seljan í smá stund): "Hverjir eru þessi krútt-kynslóð?"
Valur: "Þetta er bara konsept. Þetta er svona fólk sem að er bara eitthvað að dunda og raula og það er ekekrt innihald í því sem það er að gera."
Elsa María: "En hvað áttu við? Hverjir eru krútt?"
Valur: "Æi, bara. Eitthvað lið sem að er að pæla í þessu konsepti."
Elsa María: "En hvað áttu við? Hverjir eru krútt?"
Valur: "Æi, bara. Eitthvað lið sem að er að pæla í þessu konsepti. Kannski fer þetta fólk að skrifa einhverja texta og eitthvað..."
Goddur: "Nei, krúttin eru frábær. Þau eru alltaf að borða hafragraut og eru í lopapeysu og misstu af góðærinu. Þau munu erfa jörðina af því að þau eru rónar."
Valur: "Já, kannski. Kannski fara þau líka að skrifa texta..."
Goddur: "Já, ég held það..."
Valur: "Já, en síðan má líka segja..."
Elsa María: "Já, OK, Takk. Bæææ..."
Það er voðalega vinsælt núna að reyna að slá sig til riddara með því að ætla að vega hinn hugmyndafræðilega dreka sem "krútt-kynslóðin" er. En það er bara dálítið erfitt þegar enginn vill viðurkenna að hann sé krútt og enginn vill ganga svo langt að segja eð einhver sé krútt. Við vitum samt alveg nákvæmlega hver á að vera krútt.
Allir nema Elsa María. En hún á líka bágt með að átta sig á því hvað klukkan slær.
Krútt er fólk sem að syngur um brotna höfrunga í falsettu við undirspil spiladósa.
Persónulega finnst mér ekkert krúttlegt við illa rakaða, sveitta, fulla gaura og skakkklipptar stelpur sem að taka sig saman og þamba bjór í útmignum bílskúr og halda að það sé menning.
Mér finnst ekkert krúttlegt við dauðar hauskúpur, Austur-Evrópska bíla eða "skandinavískan sársauka". Jafnvel þótt að krúttin fari stundum í skítugar lopapeysur og hlusti á Gufuna, eins og Goddur bendir á.
Og núna, ætla ég að slá sjálfan mig til riddara með því að lýsa megnri vanþóknun á þeim sem að hleypti "krúttunum" inn í umræðuna. Þetta er algert drasl hugtak og er svo sannarlega ekki þess vert að menn sjónvarpi einhverjum nauða ómerkilegu spjalli um það á besta tíma.
En ég ætti nú eflaust síðast en ekki síst að lýsa yfir vanþóknun á sjálfum mér fyrir að hafa ráðstafað tíma mínum í að glápa á Kastljós.
(Steinn)