Úff, ég bara varð að linka á þetta skúbb á síðunni hjá Sveinbirni. Þessi OPTAR-pæling er mögulega mest useless hugmynd sem ég hef heyrt og það er yndislegt að lesa hvernig gaurinn reynir að réttlæta gagnageymslu á pappír sem frábæra lausn.
Gunni á líka mjög skondið komment...
Ég er búinn að vera einn í cubicle-inu mínu að flissa eins og skólastelpa síðustu 10 mínúturnar.
Og líka hvernig myndi maður í helvítinu nenna að lesa úr þessari gagnageymslu? Mata skanna handvirkt með kílóbæti og kílóbæti af kannski heilli bíómynd sem maður vildi horfa á? Væri ekki bara réttara að prenta út hvern ramma í myndinni og horfa á hana sem flipbook? Ég bara spyr!
The password to post a comment is:
(Halldór Eldjárn)