Áðan fór ég í 10-11 í Lágmúla með það að markmiði að fá mér eitthvað að borða og kaupa uppþvottaefni. Þegar ég kom inn í búðina blasti við mér heitir kjúklingaréttir. Ég gat hvergi fundið nokkuð verð á kjúllanum og ákvað því að fá mér frekar eitthvað verðmerkt. Ég tékkaði því á samlokunum sem voru í boði. Þar voru heldur engin verð, nema þeir lofuðu 30% afslætti af samlokunni ef ég væri með "kortið" frá Kaupþingi. Ennfremur buðu þeir samlokuna á 799 krónur ef ég keypti kók og blandaðar hnetur með.
Ekkert verð samt fyrir fólk eins og mig sem vildi bara samloku og átti ekki "kortið" frá Kaupþingi.
Ég ákvað því á endanum, af prinsipp ástæðum að versla ekki mat þarna inni, enda hefði ég mögulega getað þurft að reiða fram hundruðir og þúsundir króna ef ég hefði fallið í freistni. Við bara vitum það ekki. Það er engin leið að ímynda sér hvað hlutirnir hefðu kostað.
Ég ákvað samt á endanum að reyna að fá helvítis þvottaefnið, enda langt í næstu búð. Þegar það kemur að þvottaefni býður 10-11 upp á pakka með 20 þvottaefniskubbum á 900, og svo pakka með 30 þvottaefniskubbum á 1.500. Einhvernvegin virkar þetta órökrétt á mig. Bulk-innkaup eru sumsé dýrari (per einingu) í 10-11 en smá-innkaup.
Það má ímynda sér að 10-11 sé einskonar undraland kjörverslana, þar sem markaðslögmál og neytendalög hverfa út í buskann og maður stendur ringlaður eftir í undrun og almennum leiðindum.
Að endingu fór ég að kassanum til að greiða fyrir (minni pakkann) af þvottaefni og þar tók við mér kassadrengur sem leit meira út eins og heróin-fíkill, í þann mund að ræna búðina, frekar en afgreiðslumaður. Það var ekki á honum að sjá að hann ynni þarna, íklæddur bol sem stóð á "FUCK THE SYSTEM!" með allskonar drasl í andlitinu og munninum. Eftir að kassadrengurinn hafði urrað á mig "Eikkva flera?" fór ég út og ákvað að hádegismaturinn minn skyldi samanstanda af sígarettu, fersku lofti og göngutúr um hið annars dauðyflislega umhverfi Lágmúlans.
Ég var hvort sem er ekkert það svangur. Allavega ekki nógu svangur til að kaupa mat af þessari klígjukenndu verslun.
Hver getur annars tekið verslun alvarlega, með jafn undarlega skrýtið og bjánalegt tilboð og þetta að neðan?

Það er eitthvað brilliantly ironic við það að vera í bol sem stendur á FUCK THE SYSTEM og vinna síðan á kassa í 10-11.
The password to post a comment is:
(Doddi)