Results for 2008-11

28.11.2008 | Street Diplomacy

Steinn Linnet kom eitt sinn með blellaða hugmynd um Ultimate Fighting Championship mót þar sem þjóðhöfðingjar landa myndu mætast í búri og útkljá utanríkismál. Tillagan kom í kjölfarið á umræðu um það hvað Vladimir Pútín er hardcore gæji.

Undanfarið hefur verið þó nokkur tittlingur á sviði alþjóðapólitíkur. Íslendingar töldu sig jafnvel lenta í milliríkjadeilu við Breta, allir voru leiðinlegir við Íran og Norður-Kóreu, og leiðtogar hika ekki við að senda öðrum tóninn í núverandi kreppu árferði.

Því vil ég meina að fyrrnefnt mót sé löngu orðið tímabært. Eða í það minnsta tölvuleikur þess efnis.

Því tók ég mig til í dag og setti saman hugmyndir um það hvernig slíkur tölvleikur gæti litið út. Ég var reyndar full lengi að þessu þar sem ég var að dunda mér við ýmislegt annað, og varð fyrir sífelldum truflunum. Þannig vil ég nú afsaka hvað þetta er hroðvirknislega gert, en ég held að þið náið hugmyndinni.


streetfighter2
Medvedev og Merkel mætast á rússneskri herstöð

streetfighter3
Putín er ber að ofan á safari þegar hann rekst skyndilega á Gordo

streetfighter4
Geir freistar þess að berja lán út úr "rússneska birninum"

Persónulega myndi ég spila þennan leik þangað til það blæddi úr augunum á mér. Svo er þetta líka bara heilnæm skemmtun fyrir ungviðið þar sem það lærir eitt og annað um alþjóðapólitík og diplómasíu.

Nú vil ég freista þess að fá tillögur frá fólki um hvað leikurinn ætti að heita.

Einnig væri gaman ef fólk kæmi með tillögur að t.d.

  • Hvaða leiðtogar væru ómissandi í þessum leik.
  • Hvaða backdrop væri töff að bardagarnir ættu sér stað við. (T.d. Rauða Torgið)
  • Hvaða sérstöku "power-move" og hvaða "fighter nick-name" þeir væru með.

Einnig væri töff að fá tillögur um hvernig pólarísering væri í leiknum. Þ.e.a.s. í svona leikjum eru yfirleitt tvær fylkingar, góð og vond (þó þeir reyndar hiki ekki við að berja hvorn annan). T.d. Þróuð ríki vs. Þriðji heimurinn eða Einræðisríki vs. Lýðræði

Ræðið.


17 comments
(Doddi)



27.11.2008 | You have been nominated for a Bachelor's Degree!

Í innhólfinu mínu í morgun var tölvubréf sem bauð mér góðan daginn með því að staðhæfa: "You have been nominated for a Bachelor's Degree!"

Ég spurði mig hversvegna ég hefði eytt þremur árum í háskóla í að vinna mér inn þessa gráðu, þegar menn virðast vera tilnefndir upp úr þurru.


Að öðru leyti hef ég tekið eftir því að ég á það til að gera fraudulent samninga við sjálfan mig á morgnanna sem ég svík svo meðvitað aðeins nokkru síðar. Yfirleitt ganga þessir samningar út á það að ef ég, Arnaldur Grétarsson, sé tilbúinn að drullast á lappir og koma mér í boðlegt ásigkomulag, þá sé ég, Arnaldur Grétarsson, tilbúinn að bjóða mér stuttan lúr fram að brottför til vinnu. Alltaf skal þessi samningur svikinn, enda er maður kannski ekki mikið fyrir það að detta í einhvern lúr þegar maður er loksins kominn í gang. Það er bara erfiðara fyrir alla.

lursaming1
Svona lítur svika-samningurinn út

4 comments
(Steinn)



26.11.2008 | Stuðmenn

raiden

Það hefur verið töluvert mikið í umræðunni undanfarið hvort það sé fýsilegt að vopna lögreglumenn með rafbyssum.

Persónulega hef ég ekki haft neitt sérlega sterkar skoðanir á þessu, vegna þess að ég get bæði séð kosti þess og galla. Almennt séð er ég nú fremur mótfallin því að vopna stétt manna, sérstaklega í ljósi þess að hér er vopnuð sérsveit sem ætti að vera fær um að sinna alvarlegum útköllum. Þó verð ég að segja að mér hafa þótt þessar árásir á lögreglumenn undanfarið óásættanlegar og uggvænlegar.

Í alvöru talað. Þetta er liðið sem á að vera að gæta okkar. Ekki lemja þau!


Mjög svipuð umræða hefur verið uppi á teningnum í Bretlandi undanfarin misseri, en eins og margir vita þá ganga almennir lögregluþjónar þar í landi um óvopnaðir líkt og hér.

Röksemdin þar á bæ hefur verið í þá áttina, að menn vilji koma í veg fyrir vopnvæðingarkapphlaup, og þess utan séu vopnaðar sérsveitir til reiðu, sem séu vel í stakk búnar til þess að taka á vopnuðum glæpum.

Engu að síður hafa breskar lögreglusveitir verið að gera tilraunir með rafbyssur og stendur nú til að dreifa 10.000 slíkum milli breskra löggæslumanna.

Í þessari grein, er hinsvegar nokkuð áleitinn spurning reifuð sem mér þykir koma málinu við. Í stuttu máli fjallar greinin, (sem er afskaplega leiðinlega skrifuð en vel þess virði að renna yfir,) um það hversu fúsir lögreglumenn virðast hafa verið til að beita byssunum, sumstaðar við mjög óheppileg tækifæri. Sennilegast þar sem það er mjög ólíklegt að þær deyði fórnarlambið. Ennfremur, að strangara og nákvæmara regluverk þurfi ef til vill um notkun slíkra vopna.

Endanleg niðurstaða úr tilraunaverkefninu, eins og fyrr segir, var sú að yfirvöld ákváðu að skella rafbyssum á lögguna. Merkilegt er þó, skv. greininni, að menn innan lögreglunnar virðast skeptískir á þróun mála og hafa hugsað sér að fara varlega í slíka upptöku, til að tefla ekki trausti almennings í tvísýnu.


Ókunnugur ungur maður vatt sér að mér fyrir allnokkru og sagði mér frá því þegar hann hafði orðið fyrir stuði úr rafbyssu, og lýsti hann því sem einu því allra óþægilegasta sem hann hefði matt þola. Þar að auki hefði stuðið verið svo öflugt að hann missti stjórn á líkamanum og pissaði á sig.

Ég held að menn mættu fara ákaflega varlega í upptöku rafbyssa hér á landi, því eins leiðinlegt og mér þykir að segja það, á ég ekki erfitt með að sjá lögregluþjóna hér rafmagna menn niður við ómerkileg og ónauðsynleg tækifæri. Nóg er nú um dólgslætin í sumum án þess að bærinn fyllist af pissublautum fúlmennum.


12 comments
(Sveinbjörn)



26.11.2008 | Orðspjöll

laganemi
Laganemi?

2 comments
(Sveinbjörn)



25.11.2008 | Killjoy!

Killjoy!

Alltaf virðist þessi umræða skjóta upp kollinum nokkuð reglulega, og einmitt oftast á þessum tíma ársins einhverra hluta vegna.

Persónulega á ég erfitt með að taka undir þetta. Fyrir þau okkar sem muna hvernig þetta var fram til '99 þá held ég að ég geti alveg staðhæft að það var brjáluð riot-sena í gangi niðri í bæ um hverja helgi frá kl. 03:30.

Ennfremur get ég ekki sagt að ég hafi tekið eftir mörgum börum eða klúbbum í Þingholtunum. Trúið mér. Ég væri ótrúlega ánægður með þá þróun mála.

Ef ég skil Stefán rétt, þá minnist lögreglan 10. áratugarins með söknuði, og vildi óska að hún gæti tekist á við full-blown riot í eina klst. milli kl. 03:30 og 04:30, í stað þess að þurfa að eiga við einn og einn vitleysing hér og þar á tímabilinu 03:00-07:00. Mér finnst það ömurleg pæling, sem ef til vill lýsir frekar fjársvelti og lélegum móral frekar en einhverju öðru.

Þess utan, sé ég ekki að það sé í verkahring lögreglunnar að fara með löggjafarvaldið, eða standa að því að búa til svona regluverk fyrir okkur.

Mín skoðun er sú að það mætti alveg auka fjárveitingar til lögreglunnar og borga þessu ágæta fólki sómasamlega fyrir að passa upp á okkur um helgar og fjölga í þeirra röðum svo þau séu betur í stakk búin til að takast á við starfið sem bíður þeirra. Aftur á móti neita ég að hverfa aftur til 10. áratugarins með tilheyrandi vitleysu, þó að það sé kreppa.

Að öðru leyti er ég reyndar alveg sammála að það mætti gera einhverjar tilraunir með að dreifa skemmtanalífinu. Reyndar ekki með því að fækka stöðum, heldur mynda litla kjarna annarsstaðar. Það er fátt skemmtilegra í útlöndum en að geta valið sér skemmtileg hverfi eftir því hvernig maður er stemmdur. Það er bara töff.


P.S. Að lokum væri ég mikið til í að sjá einhverjar sönnur á því að ofbeldisverkum hefði fjölgað til muna á þessu tímabili. Allar tölur og vitnisburðir sem ég hef annars heyrt virðast benda til hins öfuga.


5 comments
(Sveinbjörn)



24.11.2008 | Upphróp!

"Það er ekki hægt! Það er ekki hægt að biðja manninn afsökunar. Merril-Lynch er farinn á hausinn!"


...dó maðurinn með Merril-Lynch?




24.11.2008 | Útvarp Reykjavík, klukkan er orðin gamalt

old radio

Þeir sátu þrír saman félagarnir, heima hjá skáldinu í kjallaraíbúð við Njálsgötu. Kjallaraíbúðin var lág til lofts og til þess að undirstrika það var bréfalúgan í augnhæð þegar staðið var upprétt við útidyrahurðina.

Nú sátu þeir þrír saman, reyktu tóbak, sötruðu molasopa úr ílátum sem voru að öllum líkindum sykurkör, og hlustuðu á ellihruman mann lesa upp endurminningar í útvarpinu.

Þeir sátu undir mónótónískum niði upplestrar mannsins og ræddu atburði vikunnar, og gildi þess að klæða Jón Sigurðsson í kjól þegar skyndilega fór að bera á undarlegri þróun mála í útvarpsviðtækinu. Heyra mátti örla á taktfastri raftónlist undir upplestri mannsins sem ágerðist hægt og rólega.

„Hvað er þetta?“ spurði einn. „Hmmmm?“ sagði annar. „Er ekki einhver að spila teknópopp í nálægum glugga?“ gat sá þriðji sér til um. „Nei, hehehe, er ekki bara RÚV að reyna að poppa aðeins upp dagskrárgerðina hjá sér? Þú veist... til að ná í unga fólkið!“

En sú var ekki reyndin. Viðtækið barðist við að útvarpa tveimur bylgjum á sama tíma, eins og persónuleikaraskaður sjúklingur. Úr varð stórkostlega brengluð kakófónía, sem hefur ekki heyrst frá því að David Bowie og Scandinavian Lounge III börðust um eyru hlustenda á kaffihúsinu Café Wilder í Kaupmannahöfn árið 2003.

Það var gerð ámátleg tilraun til að festa undarlegheitin á band, með óljósum árangri. Svo var sest aftur að molasopa og sígarettu.


3 comments
(Arnaldur)



21.11.2008 | Svanasöngur Útrásarmanna

Fram, fjáðir menn í þúsund bönkum,
sem finnið skortsölunnar tök!
Nú bárur helsis skella á blönkum,
boða velsæld ragnarök.
Brostnar Stoðir, burtu vér þjótum!
Bræður! Flýjum land í dag -
Vér bárumst á en brátt nú hljótum
að byggja örbirgt þjóðfélag.

þó að framtíð sé fallin,
gerir Geira blá hönd,
ásamt I-M-F að binda þau
í eilíf vistarbönd.


11 comments
(Arnaldur)



20.11.2008 | Æ EMM EFF!

imfucks

Tekur einhver annar eftir því en ég hvað ráðamenn landsins þrátönnlast á "Æ-EMM-EFF"?

Afhverju ekki bara "I-EMM-EFF"? Ætli þetta sé eitt af skilyrðum sjóðsins; að leggja niður íslenska tungu?

Mörður Árnason hlýtur að gnísta tönnum yfir þessu öllu saman.


7 comments
(Sveinbjörn)



19.11.2008 | Riddarar krónunnar

Ég var eitthvað að velta mér upp úr þessu IMF-láni áðan þegar ég rakst á þessa frábæru mynd sem einhver snillingur hefur soðið saman. Varð bara að birta hana hérna.

dageir
Sir David, knight of the round krona and Master Geir, his squire

Ég reyni nú almennt að leggja mig fram við að vera ekki svona svakalega blatant í að birta hérna efni eftir aðra, en ég vona að þetta fái að fljóta fyrst ég source-a þetta.


3 comments
(Sveinbjörn)



18.11.2008 | Arnaldur's Soliloquy

To beard or not to beard, that is the question;
Whether 'tis nobler on the chin to suffer
The hairy grievance of outrageous beard-growth,
Or to take arms against a sea of stubble,
And by opposing, end them?


11 comments
(Sveinbjörn)



18.11.2008 | Hugsanastuldur?

Ég ætlaði að skrifa nákvæmlega þennan pistil um ræðu Davíðs í morgun, en Árni Snævarr var á undan mér að koma þessu í orð. Svekkelsi.


3 comments
(Aðalsteinn)



16.11.2008 | Afsakið mig, meðan ég mótmÆLI

Ég sá þessa frétt um daginn og ætlaði alltaf að minnast eitthvað á þetta. Einhverntíma í byrjun mánaðarins mættu nokkrir félagsmenn úr VR fyrir utan skrifstofur félagsins til að mótmæla setu Gunnars Páls Pálssonar sem formanns. Enda er það mjög skiljanlegt, þar sem maðurinn er siðlaus dóni.

Sem þessir félagsmenn stóðu þarna og mótmæltu, var annar einstaklingur líka mættur á svæðið og stóð fyrir eigin mótmælum. Þessi einstaklingur var með ákaflega háleitt baráttumál á heilanum og tók sér stöðu með heimatilbúinn bréfmiða til að undirstrika reiðina innra með sér.

Hvaða misrétti var svo drengurinn að mótmæla? Jú, hann var að mótmæla LÉLEGUM MÓTMÆLUM.

WTF!?!?

Well fuck you too, buddy!

Ef til vill hefur drengurinn ekki fattað risastóra kaldhæðnis-drullupollinn sem hann steig sjálfviljugur í. Án vafa verður að teljast að þótt mótmæli VR manna hafi ekki látið mikið yfir sér, þá voru þau allvega rekin áfram á einhverri hugsjón og skiluðu einhverjum árangri. Hinn hugmyndafræðilega gjaldþrota drengur hinsvegar, sat þarna bara eins og kúkur með bréfmiða, og mótmælti í raun eigin veru á svæðinu, þar sem hann var klárlega að reka mjög léleg mótmæli.

omurlegurgaur
Ömurlega lélegur mótmælandi mótmælir eigin, lélegu tilvist

En þetta hefur svosem verið viðkvæðið á Íslandi um árabil. Ef menn leyfa sér að stíga fram fyrir skjöldu og benda á þessa endalausu spillingu, þetta sifaspells riðaða pólitíska landslag eða almennt misrétti, þá eru þeir bara lélegir.

Ég held nú samt innilega að þegar fer að kreppa að þessum litla dreng muni hann átta sig á því hvað hann var mikill bjáni. Eða hvað veit ég svosem.

Almennt virðist nú vera að eiga sér stað einhver vitundarvakning í þjóðfélaginu. Um 6-7 þús. manns mættu á mótmæli á Austurvelli í gær, og það var gaman að sjá þar samankomið fólk af öllum stigum þjóðfélagsins.

Ég ætla nú ekkert að hafa of mörg orð um þennan ágæta mótmælafund, þótt ég hafi ýmsar skoðanir á því sem þar fór fram. Persónulega er mér nú nokkuð sama um þetta eggjakast þótt að mér þætti vænna um það ef menn tækju sig til og grýttu frekar Seðló, eða viðskiptabankana. Eða kannski helst Stjórnarráðið, því að það er aftur orðið fangelsi, nema í þetta skipti heldur það þjóðinni sem stendur fyrir utan í gíslingu.

Annars finnst mér þetta mótmælaskilti sem Sigurgeir benti á, summa upp öllum mínum hugmyndum um ástandið. Mig langar í svona skilti.


22 comments
(Arnaldur)



16.11.2008 | Sjö Samúræjabréf

Er það bara ég, eða er þetta mjög, ákaflega undarleg frétt. Gunni Hrafn, ef þú lest þetta máttu endilega útskýra.

Erfiðleikar vegna samúræjabréfa




15.11.2008 | Um HTML

Mér finnst innilega að það ættu að vera common values fyrir "center" og "centre".

Jafnvel líka "colour" og "color".

In ze end... ze Americains don't know ou to listen!!!


3 comments
(Sveinbjörn)



15.11.2008 | Dedicate! - Masta Ace...

Some dudes just need to be acknowledged.

mastaace

Hér er líka fáránlega ggott laaaggg.

Ég heyrði fyrst meðvitað í Masta Ace fyrir um 5 til 6 árum. (It gets fuzzy.) en fyrir mér er þessi gaur klárlega "up there" með hetjunum.

Acknowledge!




14.11.2008 | Traustur grunnur - Nýir tímar!

Ég rakst á þessa frábæru skopmynd á síðunni hans Sveinbjarnar. Mig langaði til að finna þessa mynd og jafnvel einhverjar svipaðar myndir svo ég leit inn á vef Sjálfstæðisflokksins til að reyna að grúska og sjá hvort ég gæti ekki grafið upp einhverjar gleymdar áróðursmyndir.

576small

Eh hó! Hvað blasti við mér. Á vef Sjálfstæðisflokksins er allt bara ennþá í bullandi góðæri! Kannski er þessi kreppa öll bara eitthvað bull soðin saman af fjölmiðlum eftir alltsaman.

Hér má sjá að "traustur grunnur hefur verið lagður og að efnahagslífið hefur aldrei verið öflugra."

Hér má sjá að "mikill og góður árangur hefur náðst í efnahagsmálum undanfarin ár. Efnahagslíf þjóðarinnar hefur aldrei hvílt á jafn mörgum stoðum og nú, kaupmáttur almennings hefur vaxið meira en nokkru sinni og innviðir samfélagsins hafa styrkst til mikilla muna."

Best er þó þetta outrageous kynningarmyndband sem er á síðunni. (Mér finnst sérstaklega gaman hvernig það kickar inn eftir u.þ.b. eina mínútu.)

Svo er líka bara eitthvað grátbroslega huggulegt við það hvað Geir og Þorgerður eru samrýmd fyrir framan þennan foss.

Nei, þeir mættu alveg uppfæra síðuna sína við tækifæri.

Vonandi sér maður þarna næst, í risastórum stöfum:

Like the Icelandic economy, this site and the party it stands for is under RE-construction!


2 comments
(Steinn)



13.11.2008 | Sjálfstæðisflokkurinn hvítþveginn

hvitthvottur
Menn að störfum við að hvítþvo Sjálfstæðisflokkinn



12.11.2008 | I meant Luxembourg - shit!




12.11.2008 | Skoski rakarinn

Eitt sinn komst ég í kynni við við skoskan mann í tengslum við fyrri atvinnu mína. Sá var víst milljarðamæringur, eða svo sagði hann og hef ég enga ástæðu til að rengja frásögur hans.

Maðurinn var reyndar afskaplega drukkinn þegar samskipti okkar fóru fram, en þau voru fyrirfram dæmd til að mistakast, þar sem þau hefðu aldrei átt að eiga sér stað og voru þvinguð.

Hann var íklæddur skotapilsi, eins og Skota er gjarnan von og vísa við hátíðleg tækifæri. Hann hafði meðferðis gelgjulega, miðaldra konu sem var ósmekklega, jafnvel glyðrulega, klædd. Auk þess var hann í slagtogi með öðrum skoskum manni, sem hafði sömuleiðis með sér konu, en sú hafði þó öllu smekklegri nærveru.

beardyho2

Eftir að nokkuð tregðug samskipti okkar höfðu gengið fyrir sig í þó nokkra stund, veitti maðurinn því skyndilega athygli að ég var með geypi-myndarlegt eldrautt skegg framan í mér þar sem ég stóð og stumraði yfir honum. Hann rak upp harmakvein og tók til við að útskýra fyrir mér hvað ég væri nú fallegur drengur og að ég ætti ekki að vera með svona skegg í andlitinu. Það gerði ásýnd mína ellilegri og slíkt leist honum ekki á.

Eftir nokkuð þref um ágæti skeggvaxtar míns endaði með því að maðurinn bað mig, og grátbað mig um að leyfa sér að raka af mér skeggið. Hann sagðist vera vel til þess fær, og ekki þyrfti verkið að taka neitt sérlega langan tíma. En skeggið yrði að víkja.

Ég afþakkaði pent og skömmu síðar var samskiptum okkar lokið. Ég sá manninn aldrei aftur, þó að eitthvað segi mér að skeggræður hans líðu hvorki mér né honum úr minni á næstunni.

Satt best að segja er þetta ef til vill ekki merkileg saga, og í raun hef ég ekki haft miklar ástæður til að draga hana fram, fyrr en nú.

Þegar ég las vefútgáfu Morgunblaðsins í morgun kom ég auga á ljósmynd af manni. Þetta var að vísu ekki skeggáhugamaðurinn, en allt í einu þekkti ég manninn á myndinni sem hinn þybbna og hljóðláta vin rakarans sem hafði setið hjá og fylgst með okkur rökræða um skeggið mitt.

Það var óneitanlega athyglisvert að geta loks sett saman einhverskonar kort af þessum undarlegu mönnum sem stóðu í hárinu á mér. Hitt er svo annað að það var heldur leiðara að sjá að afrakstur erfiðis þeirra virtist loks hafa borið ávöxt, en það var "að rýja Íslendinginn inn að skinni".


6 comments
(gummi)



11.11.2008 | Smokin' Joe Frazier

Ég varð bara að minnast á þetta frábæra viðtal við Joe Frazier. Frazier talar þarna m.a. um Ali einvígin, The Thrilla in Manila bardagann, hvað Ali var mikill fáviti og Rocky.

Klárlega eitt mest interesting viðtal sem ég hef lesið lengi. Mæli eindregið með því, ef fólk hefur minnsta áhuga á hnefaleikum.

---Smá viðbót---

Ég vildi bara bæta því við að einhvernveginn hef ég alltaf fundið mig knúinn til að taka afstöðu með mótherjum Ali. George Foreman var miklu sympatetískari karakter í mínum huga en Ali nokkurntíman, án þess að lítið sé gert úr ofurhetjulegheitum Ali.

Hvern hefði þó grunað að hann hefði verið svona mikið dusilmenni, þótt vitað væri að hann hefði verið illa haldinn af gorgeir?




5.11.2008 | Icesave

250px Icesave


I save,
You save,
We all save...
for Britain?


2 comments
(Arnaldur)



4.11.2008 | Bensíntré? WTF!?!

"Heyrðu! Vertu ekki að bruðla þetta með bensínið, drengur! Bensín vex sko ekki á trjám. Svo mikið get ég sagt þér!"

"Eða... jú. Apparently gerir það það...

---UPDEIT---

Anally-retentive demografían í lesendahóp mínum hefur réttilega bent mér á að hér færi mun betur á að tala um díseltré og dísel almennt. Ég skil hvernig hugtaka ruglingur af minni hálfu og tilhneyging til að tala almennt um jarðeldsneyti sem bensín gæti ruglað marga og biðst asfökunar á því.

DÍSE(L)S!!!

(P.S. Ég er núna að ímynda mér að ég hefði kallað pistilinn Vin Dísels, eða eitthvað svoleiðis... glatað, shit!)


4 comments
(Doddi)



4.11.2008 | Automobilespotting

Ég veit ekki hvort mig er að misminna eða dreyma það, en mig minnir að ég hafi einhverntíman tekið þátt í lélegasta road-trip "leik" í heimi.

Sem barn minnir mig að ég hafi einhverntíman leikið þennan "leik". "Leikurinn" fór þannig fram að ég og félagi minn í aftursætinu fengum tvö spjöld, ekki ólík bingóspjöldum. Á spjöldunum voru gluggar og í stað talna voru vörumerki hinna ýmsu bifreiðaframleiðenda í gluggunum.

"Leikurinn" gekk svo út á það að þegar maður sá bíl af tiltekinni tegund mátti maður loka glugganum. Sá sem var fyrstur til að loka öllum gluggum vann "leikinn".

Mjög augljóst, mjög glatað element í þessum "leik" er að barn sem hefur óbilandi áhuga á bílum (eins og þessi vinur minn) hefur umtalsverða yfirburði, og auli eins og ég, sem hafði, og hef eiginlega ekki, neinn áhuga á bílum, stendur mjög höllum fæti.

Það er óþarft að taka það fram að ég vann aldrei í þessum "leik", en ég vil reyndar kenna því um að ég sat yfirleitt hægramegin í aftursætinu og hafði því ekki jafn góða yfirsýn yfir bílana úr mótstæðri átt. (Kannski var þessi vinur minn búinn að átta sig á því að vinstra baksætið hafði töluverða yfirburði. Annaðhvort það eða þá að foreldrar hans voru að fixa "leikinn" með því að skipa mér í sæti hægramegin).

Man einhver annar eftir þessum glataða "leik"/auglýsingu?


5 comments
(Arnaldur)



4.11.2008 | Top of the Pops

Nýr vinsældarlisti þjóðríkja kom út á föstudaginn. Bretar féllu um 20 sæti, en hástökkvari vikunnar er Noregur.

Seriously samt. Er þetta ekki frekar mikið rúnk? Hvernig voru spurningarnar sem að leiddu að þessari útkomu? Er átt við stjórnvöld í landinu eða þjóðina sjálfa? Hvaða breytur eru teknar inn í þetta?

Eða var þetta kannski bara "Hérna... hvernig ertu að fíla Breta?"


1 comments
(Sveinbjörn)



4.11.2008 | Smá borgaraleg saga...

Þeir voru þrír, mennirnir í Hljómskálagarðinum þetta kvöldið. Þrír frumeindaðir menn í þessum stóra geimi sem ber eiginlega varla nafn með rentu og enginn þeirra hafði hugmynd um tilvist hins.

Einn þeirra lá samanhnipraður við fætur Jónasar og hraut eins og sögunarverksmiðja í Brazilíu. Hann hafði hafst við í Alþingisgarðinum undanfarið, enda er þar mun betra að vera og minni umgangur. Eitthvað hafði þó verið stuggað við honum síðan hinir háu herrar höfðu mætt aftur til vinnu. Á þessari stundu lá hann, sennilega í einhverju áfengismóki undir Jónasi sem vakti yfir honum með lítið blóm í hendinni.

Einn þeirra hljóp sem eldibrandur umhverfis tjörnina, en þó aldrei nærri Skothúsvegi. Af og til hætti hann að hlaupa og kýldi og sparkaði út í loftið og barði niður ósýnilega óvini af hinni mestu lipurð og færni. Hann hlustaði á ægilega, ofsakennda tónlist í vasadiskói um leið og hann gaf Skuggaböldrum á baukinn.

Það var ekki ljóst afhverju hann hafði byrjað að leggja stund á austurlenskar bardagakúnstir. Sumir héldu að það væri útaf vanmætti sem hann finndi enn til eftir leiðindatímabil í barnaskóla. Aðrir hölluðust að því að þetta hefði allt byrjað þegar hann tók sig á og ákvað að gera eitthvað í aukakílóunum. Eitt var víst, að hann tók hlutverk sitt alvarlega og sinnti því af alúð.

Þriðji maðurinn gekk um og söng hástöfum út í bláinn. Hann var að hlusta á dægurlagaslagara í vasadiskói meðan hann gekk um garðinn. Einu skiptin sem hann leyfði sér að syngja með vasadiskóinu var þegar hann gekk um garðinn, enda aldrei neinn á ferli þar til að hlusta með gagnrýnum eyrum á raust hans.

Þeir voru allir sameinaðir í þeirri trú að þeir væru einir og athöfnuðu sig því í samræmi við það, óhræddir við að verða dæmdir af smáborgaralegum viðmiðum vegfarenda sem engir voru.

En svo gerðist svolítið. Stóri geimurinn sem Hljómskálagarðurinn er, varð of lítill fyrir þessa þrjá menn. Þeir urðu allir varir við tilvist hvors annars á sama tíma, á óþægilegann hátt. Söngvarinn kom fyrir hornið um leið og viðlagið náði hápunkti sínum. Hann gekk fram á drykkjuraftinn og bardagamanninn, sem voru mun nær hvor öðrum en þeir hefðu viljað. Drykkjurafturinn rumskaði við þessi óhljóð og gaf frá sér baul í hálfum hljóðum. Bardagamaðurinn varð á sama tíma var við þá báða.

Þeir stöðvuðust allir í eina sekúndu. Söngvarinn hélt áfram að syngja, en aðeins rétt svo að það heyrðist. Bardagamaðurinn hélt áfram að sparka, en löturhægt. Drykkjurafturinn starði ringlaður í kringum sig og svo upp til Jónasar.

Að lokum tóku þeir sameiginlega ákvörðun um að viðurkenna ekki tilvist hvor annarra og héldu áfram athæfi sínu eins og ekkert hefði í skorist.

Hljómskálagarðurinn varð aftur athvarf þessa undarlegu manna sem aðeins koma út á kvöldin.


1 comments
(AnonymoSteinius Coward)



3.11.2008 | Til Hamingju

Datt í smá Tvíhöfða áðan. Ég er algerlega búinn að sjá það út að ef við eigum að komast upp úr þessu efnahagslega inspíraða þunglyndi, þá þurfum við Tvíhöfðann okkar.

Mér fannst þetta mjög viðeigandi:

Spilling!

Alþingismenn eru lygarar!




3.11.2008 | Endurmat á aðfaranótt sunnudags

Ég held að ég gæti mögulega verið fífl. Eða kannski bara bjáni.

Við bíðum spennt eftir niðurstöðu frá skilanefnd um málið.

Vonandi mun verða gerð ítarleg grein fyrir atburðum, réttmætir aðilar dregnir til ábyrgðar og þeim gert að sæta viðeigandi refsingu.


3 comments
(Arnaldur)



3.11.2008 | Tónlistaráhlustun á mánudags eftirmiðdegi

Er þetta lag svona frábært af því að það er fullkomnlega lýsandi fyrir það hvernig mér líður akkúrat núna. Eða líður mér svona útaf laginu?


5 comments
(Arnaldur)