Ég held að ég gæti mögulega verið fífl. Eða kannski bara bjáni.
Við bíðum spennt eftir niðurstöðu frá skilanefnd um málið.
Vonandi mun verða gerð ítarleg grein fyrir atburðum, réttmætir aðilar dregnir til ábyrgðar og þeim gert að sæta viðeigandi refsingu.
Þú veist að mórall og þynnka eru hlutir sem iðulega yfirgefa mann á svipuðum tíma...
Já... en eftir stendur gapandi sár á bankareikningum til að minna mann á ófarirnar.
Íbúar Arnaldíu treystu ráðgjöfum arnaldísku bankanna með sparnaðinn sinn. Svo brann þetta bara allt upp í eintómu sukki. Ráðamenn stóðu alls ekki vaktina og sváfu á verðinum meðan tilfinningabankarnir sigldu í þrot. Núna er komin upp stjórnarkreppa í Arnaldíu. Íbúar Arnaldíu eru bálreiðir og mótmæla við hvert tækifæri. Þeir krefjast afsagna. Sem betur fer hafa stjórnvöld náð samningum um aðstoð frá gjaldeyrissjóð Visa og treysta á að lánalínur til bankastofnanna haldi meðan efnahagurinn kemst aftur á skrið. Það er mikilvægt að efnahagshjólin hætti ekki að snúast eða að það verði "brain drain" á komandi misserum.
The password to post a comment is:
(Arnaldur)